Vikan - 09.01.1992, Page 34
ÍSLENSKAR STEINGEITUR
Hvaö hiö smáa íslenska þjóðfélag varöar eru
Steingeitaráhrifin áberandi og áhugaverð.
Fyrst skal valdamestan telja, Davíö Oddson
forsætisráöherra, meö sól í Steingeit. Breskur
stjörnuspekingur, sem leit á kort Davíðs fyrir
mörgum árum, lét hafa eftir sér við það tæki-
færi aö þessi aðili væri fæddur forsætisráð-
herra. Davíö er meö Satúrnus á miöhimni og
orka Satúrnusar er miskunnarlaus er uppskera
hans ávallt raunveruleikinn. Þaö umrót sem er
á Steingeitum vegna Úranusar í merkinu kem-
ur þó ekki fram hjá Davíð fyrr en 1994. Þá
veröur bylting hjá honum.
Aðrir íslenskir forsætisráðherra í Steingeit-
armerkinu voru þeir Gunnar Thoroddsen og
Ólafur Thors.
Af samherjum Davíðs eru þeir Jón Baldvin
Hannibalsson meö rísanda og Venus (sam-
skipti) í Steingeit og Jón Sigurðsson meö tungl
(tilfinningar) í Steingeit. íhaldssemi og gam-
aldags yfirbragö einkennir oft Steingeitarmerk-
ið. Þær eru yfirvegaðar, formfastar og oft
þvingaðar í framkomu. Rykfrakka og fyrrum
hatt Jóns Baldvins má því skrifa á smekk
Steingeitarinnar og sama gildir um jakkaföt
Davíös.
Annar valdsmaöur meö sól í Steingeit er
biskup (slands, herra Ólafur Skúlason. Einnig
má geta Þóröar Friðjónssonar og ritstjóranna
Matthíasar Johannessens, Þórarins Jóns
Magnússonar auk Eddu Andrésdóttur, fyrrum
ritstjóra. Tvær þeirra stúlkna sem hvaö stærst-
ar fegurðarviðurkenningar hafa hlotið á erlend-
um vettvangi eru Steingeitur, þær Henný
Hermannsdóttir og Linda Pétursdóttir.
Hugsun í Steingeit bendir til þess aö viö-
komandi beiti rökum ítarlega og af nákvæmni,
sé alvörugefinn efahyggjumaöur og hafi góða
einbeitingu. Forstjórarnir Hjördís Gissurardótt-
ir og Óli Kr. Sigurðsson, Ragnar í Smára og
Þorvaldur Guömundsson falla öll í þennan
flokk.
Framkvæmdaorka í Steingeit bendir til þess
aö viðkomandi sé fæddur framkvæmdastjóri,
verklaginn, ábyrgur í starfi og gæddur góöum
skipulagshæfileikum. Þennan hóp skipa meðal
annarra framkvæmdastjórarnir Davíð Schev-
ing Thorsteinsson, Guðjón B. Ólafsson, Högni
Óskarsson, formaður Læknafélags Reykjavík-
ur, Lýður Friðjónsson, Páll Magnússon og Þór-
arinn V. Þórarinsson.
Árið 1992 er Vatnsberi í öðru húsi Steingeita
en annað húsið tengist peningum og persónu-
legum úrræðum. Stöðug og íhaldssöm afstaða
til fjármála reynist þeim því nauðsynleg út árið.
Úranus og Neptúnus hafa nú áhrif á hvernig
Steingeitur koma fram og gera það að verkum
að þær eru nú opnar fyrir samböndum og
reynslu sem þær hefðu ek.ki kært sig um áður
fyrr.
ÞÆGINDI, RÓ OG ÞÖGN
Á yfirborðinu er Nautið fulltrúi hagsýni og raun-
veruleika. Þægindi, ró og raunveruleiki eru hin
andlegu markmið Nautsins. Þögn sömuleiðis -
en ekki sú þögn sem fylgir í kjölfar þess að
loka munninum. Þögn Nautsins er dýpri; hún
er rótt hjarta. Finndu vindinn leika í hári þínu.
Finndu atorku líkama þíns, greindina í frumum
þínum og vöðvum. Þannig er Nautið. Sá hluti
þinn sem lært hefur lexíur Nautsins er að
verða jarðbundnari, meira í núinu, opnari fyrir
raunveruleikanum hér og nú. Vegna þessa
hefur Nautið líkamlega afstöðu og hagnýta til-
finningu. Það hefur lítinn áhuga á flóknum
heilabrotum. Það forðast hin frumspekilegu
Disney-lönd sem virðast heilla marga. Það sér-
hæfirsig í orðlausri dulspeki hversdagslífsins.
Nærðu Nautið í þér með garðyrkju, trésmíði,
saumaskap, samveru við dýr. Róaðu það með
tónlist. Endurnýjaðu það með þvi að dvelja í
skógi, fjalladal, við sjóinn. Klæddu það í galla-
buxur og flónel. Og biddu það aldrei nokkurn
tíma að koma í kokkteilboð!
GÖNGUFERÐ í SKÓGI
Þeir sem hafa sól í Nauti endurnýja lífskraftinn
á einfalda vegu. Farðu í gönguferð í skógin-
um. Smíðaðu eitthvað úr eik. Innsta eðli þitt er
hæglátt og traust. Sterkt samhengi í lífinu
kemur þér til góða - sérstaklega samhengi í
samböndum. Haltu sambandi við gamla vini.
Vertu nálægt fólki sem ekki hendir of mikið af
dellum á lofti, hvort sem það eru ný trúarbrögð
eða áform um að græða milljónir. Þú ert að
læra ró og eðlileik á dýpsta stigi. Haltu því mál-
um einföldum. Hagnýtir hæfileikar þínir eru
magnaðir: þú skilur heim hráefna, peninga,
daglegs lífs. Gættu þess að þessir hæfileikar
hlaupi ekkert með þig! Þér er dulin hætta búin
í því að uppfylla allar skyldur þínar svo frábær-
lega að þú sveltir í þér þörfina fyrir ró og frið.
Þá verður sólarljósið í þér daufara og allir aðrir
hlutar persónuleika þíns fá minna Ijós að
endurvarpa.
HJARTA NÁTTÚRUBARNSINS
Þeir sem hafa tungl í Nauti hafa hjarta náttúru-
barnsins. Eðlisávísanir þeirra eru rólegar, jarð-
bundnar, hagsýnar. Á þróunarstiginu ertu að
kenna hjarta þínu að finna til friðar — friöar sem
kemur við þaö að viðurkenna líkama okkar,
persónuleika, „vitra apann" innra með okkur. f
kringum innsta kjarna þinn ríkir þögn; hve vel
máli farinn sem þú ert á ytra borðinu þá er eitt-
hvað í sambandi við þitt huglæga líf sem erfitt
er að túlka með orðum. Allir þeir sem þér líður
vel með til langframa eru fólk sem setið getur
orðlaust við hlið þér í tuttugu mínútur og horft
á kónguló vefa sinn vef eða öldu skolast yfir
sandkastala. Gættu þess að verða ekki svo
jarðbundinn að þú gleymir töfrunum, því
undursamlega, því óvænta í lífinu. Til að halda
heilsu þarftu að rækta með þér að gera hluti án
yfirvegunar og læra þá list að gera hin skilvirku
vanaverk þín stundum að engu.
Þeir sem hafa Naut rísandi virðast jarð-
bundnir og traustir. Fólk treystir þeim ósjálfrátt
og líður vel í návist þeirra. Þetta á við jafnvel
þó þú sért í brjáluðu skapi - fólk sér samt ró-
semisyfirborð. Eitthvað í áru þinni virðist segja
fólki að slaka á, vera raunverulegt, hætta aö
þykjast vera Madonna eða Donald Trump.
FULLTRÚI FÁGUNAR
Meyjan er fullkomnunarsinninn. Á yfirborðinu
er hún fulltrúi greiningar og fágunar. Á dýpri
hátt táknar hún sjálfsgagnrýnin þróunarþrep er
leiða til róttækrar hreinsunar.
Meydómur er ekki málið. Hann er aðeins
reynsluleysi og enginn lærir mikið af því að
forðast reynslu. Meyja táknar hreinleika. Full-
komnun. Að gera allt kórrétt. Það er ekki farið
fram á lítið. Fullkomnun er strangur meistari.
Hún rekur Meyjuna í þér áfram, vísar þér á
hvað gæti orðið. Hún heldur líka upp að þér
lýtalausum spegli sem opinberar alla gallana
og brestina í persónuleika þínum. Samsetn-
ingin er mögnuð. Hún fyllir huga þinn þrá og
óánægju, gerir þig jafneirðarlausan og værir
þú tryggður gegn sjálfsánægju. En farðu var-
lega: Meyjarorkan getur orðið að lamandi
næmi á alla galla og bresti í fólki, sjálfum sér,
eigum, framtíðarmöguleikum - öllu. Og ekkert
hindrar göngu okkar í átt að fullkomnun hraðar
en það.
MEÐFÆDD FRAMKVÆMDAÞRÁ
Fólk með sól í Meyju kyndir ekki tilvistarofninn
með því að sitja kyrrt og vera ánægt með sig.
Viðleitnin rekur þig áfram og veitir þér kraft. Þú
fæddist með framkvæmdaþrá. Sú þrá heltekur
30 VIKAN 1.T8L. 1992