Vikan


Vikan - 09.01.1992, Page 41

Vikan - 09.01.1992, Page 41
Her lagu jardneskar lelfar Reynistaðarbrædra i 65 ar og her urdu þeir uti við Beinhol á Kili. Myndin er ur bok Hjálmars R. Bárðarsonar ..Hvita - fra upptökum til ósa ‘. Þeir lögöu nú upp úr Hreppum laugardag annan I vetri (þ.e. 28. okt.) með tvö hundruð fjár og fimm klyfjahesta. Veður var ískyggilegt enda gerði mikla snjóhríð sem sagt var að ekki hefði rofið í mörg dægur í byggð en varað þó lengur á fjöllum. Engu að síður virðast þeir hafa komist allt noröur í Kjalhraun og tjaldað þar tveim tjöldum, öðru yfir farangur sinn, en þar beið þeirra dauðinn. Þegar Ijóst var orðið að þeir höfðu orðið úti kvað Jón prestur Hjaltalín svo um það í Tíða- vísum sínum: Angurssaga ullum brands olli baga Norðanlands, gleðitóninn minka má mannatjónið fjöllum á. Ríklundaðir rakkar pá Reynistaðaklaustri frá sendir fjórir sem með skil sauða fóru kaupa til. Hér um sveitir fengu féð fyrðar teitir kaupi með, fjölguðu manni fimmta þeim, ferðast þannin vildu heim. Norður Kjalveg langa leið lögðu halir hausts um skeið fengu stríðu fjör-þurrðar, fregnast síðan dauðir þar. Það var öndverðan vetur þennan fyrir jóla- föstu, að Jón að Hryggjum stóð að fé sínu eins og venja hans var. Hann hafði þá misst Sigríði konu sína en átti nú þá sem Guðbjörg hét Ein- arsdóttir og með henni mörg börn sem þá voru allung. Guðbjörg var ein heima með börnin. Kafald var á um daginn en herti þó meira með kvöldinu. En þó Jón ætti forystusauð góðan gat hann með engu móti komið honum undan. Og sagði svo síðar...að jafnan sýndist mér sem maður nokkur bandaði á móti fénu.“ Svona gekk það alla nóttina, hversu ötull sem Jón var við það að koma fénu heim. Konu hans leiddist eðlilega eftir manni sín- um og tók að óttast um hann. Kú áttu þau eina sem var undir palli í baðstofu. Kýrin sleit sig nú upp með miklu öskri. Guðbjörg hugðist þá kveikja og bæla niður í kúnni og fór fram til eld- húsdyra. Sýndist henni þá Jón bóndi sinn standa fannbarinn í bæjardyrunum. Hún varð allshugar fegin og sagði við hann: „Guði sé lof að þú ert kominn." En þá hvarf maðurinn út í náttmyrkrið. Þegar hún kveikti komst hún ekki lengra með Ijósið en inn í mið göngin, þá slokknaði það. Börnin tóku nú að æpa mjög og kýrin öskraði. Freistaði hún þess þá enn að kveikja en þóttist þá sjá mann snæbarinn í dyrunum. Henni var nú, sem eðlilegt er, mjög brugðið því nú var eldurinn líka dauður. Hún sagði síðar frá því að aldrei hefði hún lifað hræðilegri nótt því oft heyrðist hælum bar- ið í þekjuna og stundum sem húð væri dregin um bæinn með drunum og dynkjum. Þó kom Jón heill heim um morguninn og sagði þá við konu sína að víst myndi Jón Austmann dauður vera. Þaö var síðar að Jón kom til kirkju að Reyni- stað. Spurði Ragnheiður hann þá hvað hann hygði að liði um menn sína en hún hafði fregn- að um feigðarspá Jóns fyrr um þá. Hann svar- aði: „Eigi veit ég það fyrir víst en það hygg ég að Jón Austmann sé kominn til helvítis." Spurði Ragnheiður hann þá ekki frekar. En það sagði Jón öðrum að sér hefði þótt undar- lega við bregða að hann sæi þá bræður Hall- dórssonu, Bjarna og Einar, sitja allvesæla í herbergi því sem djáknastúka var kallað og víst myndu þeir eigi heilir. Ekki gat hann þess þó við Ragnheiði. Og árin liðu. Er sagt að Hall- dór á Reynistað bæri sig miklu hörmulegar Ragnheiði. Engu að síður var hún full örvænt- ingar og sorgar þótt hún bæri sig betur en maður hennar. Henni lá við að örvinglast, svo iðraði hana þess að hafa sent Einar litla frá sér þótt hann hefði beðið hana svo innilega um að vera hlíft við ferð þessari. En vitanlega gat hana ekki grunað hvernig fara myndi. Það var um aldamótin að Halldór Vídalín lést að Reynistað. Ragnheiðurekkja hans fékk þegar klausturumboðið og hélt því allt til dauða- dags. Löngu síðar spurðist það, að grasakona að sunnan fyndi lík Staðarbræöra. Og síðar varð það að Jón prestur Eiríksson að Brekku við Víðimýri reið suður til fylgdar Helga prófasti í Odda, sem síðar varð biskup. í för þessari fann Jón Eggert prest Bjarnason sem þá sagði honum að beinin væru fundin og kvaðst mega á vísa. En áöur en Jón prestur, sem var mægður við Staðarbræður, vitjaði beinanna fann maður sá sem Brynjólfur hét frá Bjarna- staðahlíð í Skagafjarðardölum bein á grjótmel einum. Setti Brynjólfur þar upp merki og gat þess. Þá bjó á Sveinsstöðum í Tungusveit Jó- hannes bóndi Jónsson frá Balaskarði. Hann lét þau Einar umboðsmann á Reynistað og Ragn- heiði konu hans vita um beinafundinn en þau háðu hann hljótt með að fara. Jóhannes reið síðan fjöllin og fann beinin að tilvísun Brynjólfs. Flutti hann þau í skinnbelgjum norð- ur til Reynistaðar. Þau Einar sendu eftir Jósep lækni Skaptasyni vestur til Hnausa. Hann kom að skoða beinin og taldi þau af manni um tví- tugsaldur og unglingi. Þóttust menn þá vita að þau væru bein Staðarbræðra. Þau Einar létu smiða beinunum litla kistu og buðu til erfis nokkrum mönnum, eins og getið var í upphafi þessa máls, en fengu Halldór prófast í Glaumbæ til að syngja yfir þeim. Að bón Einars kvað einn erfisgesta um þessi atvik og er þar þessi vísa: Eftir sextíu ár og sex yfir þeim jarðarhaddur vex. Dáleg var þeirra að dykja hel, dysjaðir fyrri á eyðimel. Mælt er að Bjarni hafi í þessu fræga ferða- lagi verið klæddur grænum fötum og riðið bleikum hesti. Fólk af Reynistaðarætt hefur tjáð mér að það hafi lengstum verið talið óláns- merki að nokkur úr ættinni væri skírður Bjarni, riöi bleikum hesti eða klæddist grænum fötum. Þetta kemur glöggt i Ijós i frásögninni um Einar skáld Benediktsson, sem var þessarar ættar, í æviminningum séra Árna Þórarinsson- ar. Þar kemst höfundur m.a. svo að orði um Einar: „Það var um hann sagt til dæmis, að hann hefði aldrei þorað að ganga í grænum fötum, sökum þess aö við því hefði legið bann í ætt- inni síðan Bjarni Reynistaðarbróðir varð úti grænklæddur á Kili. Indriði Einarsson sagði þá sögu, að hann hefði eitt sinn hitt Einar skáld á götu í nýjum fötum grænum. Kveðst Indriði þá hafa sagt: „Heyrðu frændi, þú ert kominn í græn föt!“ - „Nei, hver andskotinn," svaraði Einar og flýtti sér heim, fleygði þar af sér fötun- um og fór aldrei í þau framar." Þessir voveiflegu atburðir, sem hér hefur aðeins lauslega verið lýst, hafa löngum síðan orkað á ímyndunarafl íslenskra skálda. Ekkert þeirra hefur þó komist betur að orði en Jón prófessor Helgason þegar hann orti með þess- um hætti: Liðið er hátt á aðra öld, enn mun þó reimt á Kili, þar sem i snjónum bræðra beið beisklegur aldurtili. Skuggar lyftast og líða um hjarn, líkt eins og mydn á þili, hleypur svo einn með hærusekk, hverfur í djúpu gili. 1. TBL. 1992 VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.