Vikan - 09.01.1992, Side 43
TTll í Kriv'' jk v ímlS K |
3 LiA-i ■ slfl ■ 111 ijjív*“Tr k’<L
C W A "'l- *p|' Ifei' fí í
yfir alla Parísarborg. Það ætti
enginn að láta fram hjá sér
fara. Ef brúðurin vill eyða tíma
í golf er einkagolfvöllur á þak-
inu á hótelinu.
HVERNIG FERÐAST
MAÐUR UM PARÍS?
Auðveldasti og þægilegasti
feröamátinn í París er Metró.
Þetta neðanjarðarkerfi var
opnað fyrir níutíu árum og eru
sum skiltin orðin hluti af safni.
Þetta er án efa fljótlegasti og
ódýrasti ferðamátinn. í stað
þess að kaupa miða í hvert
sinn sem farið er í Metró er
ódýrara að kaupa tíu miða í
einu. Þess ber þó að gæta að
fara ekki í fyrsta farrými með
miða sem vísar á annað far-
rými. Það er illa séð og við-
komandi vísað út úr lestinni.
Fyrsta lestin fer af stað kl.
05.30 að morgni og síðasta
lest hættir kl. 00.45. Eftir það
þarf að taka leigubíl. Það er
mun dýrara að taka leigubíl í
París en víða annars staðar
▲ Mælt er
með veit-
ingastaðn-
um La
Entrecode.
Þangað
kemur fólk
aðeins til
að borða
nautakjöt
með
grænni
sósu.
vegna þess að umferðin er
það mikil að langur tími fer til
spillis. Aukagjald er tekið ef
töskur eru meðferðis. Þá er
greitt sérstaklega fyrir hverja
tösku. Það er ætlast til að 15%
þjónustugjald sé gefið þegar
leigubíllinn er greiddur.
GÓÐUR
VEITINGASTAÐUR
Að þessu sinni mælum við
aðeins með einum skemmti-
legum veitingastað. Hann er í
næsta nágrenni Concorde La
Fayette við götu sem heitir
Avenue Hoche. Þar er aðeins
einn réttur á matseðlinum,
nautakjöt með grænni sósu. Á
þennan veitingastað, sem
heitir La Entrecode, kemur fólk
alls staðar að til þess eins að
borða þennan eina rétt. Ekki
er hægt að panta borð og er
beðið í biðröð eftir að röðin
komi að manni. Biðröðin getur
verið nokkuð löng en það
þýðir ekki endilega langa bið.
Afgreiðslan gengur nokkuð
hratt fyrir sig því ekki þarf að
bíða eftir að fólk ákveði hvað
það vill borða.
MARGRÓMAÐUR
FLÓAMARKAÐUR
Flóamarkaður Parísarborgar
er margrómaður. Þar er hægt
að fá allt milli himins og jarðar.
Markaðurinn er milli La Porte
de Saint-Ouen og La Porte de
Clignancourt. Þar eru saman
komnar þúsundir antik-
kaupmanna og annarra versl-
unarmanna sem vilja koma
vöru sinni á framfæri. Þar er
hægt að prútta og athuga
hvaða happadísir fylgja manni
þann daginn. Flóamarkaður-
inn er opinn laugardaga,
sunnudaga og mánudaga. □
Kraftmikill
5 dyra
lúxusjeppi
Suzuki Vitara er einstaklega
sparneytinn jeppi með
frábæra fjöðrun, vökvastýri,
vandaða innréttingu,
rafdrifnar rúður, samlæs-
ingu á hurðum og upphituð
sæti auk fjölda annarra
kosta. Reynsluaktu Suzuki
Vitara og það verður ást við
fyrsta akstur.
$ SUZUKI
SUZUKIBILAR HF
SKEIFUNNI 17 • SlMI 685100
1. TBL. 1992 VIKAN 39