Vikan - 09.01.1992, Qupperneq 48
en lengra er haldið.
Það var ekki fyrr en farið var
að ganga um kunnar slóðir
miðborgarinnar að í Ijós kom
að ekki var allt alveg eins og
fyrrum. Að vísu virtist breyting-
in alls ekki vera mikil og í raun
aðeins til bóta. Veitingahúsum
hefur til dæmis fjölgað til
muna. Matarlykt berst að vit-
um vegfarenda úr öllum áttum
og uppruninn greinilega mis-
jafn - úr hinum fjölbreyttu og
margþjóða eldhúsum ná-
grennisins. Það var ekki laust
við að lyktarskynið ruglaðist
þegar samferðafólkið gekk
hægum skrefum um Strikið og
hliðargötur þess eitt síðdegi í
ágúst. Það vakti líka athygli að
nokkrum af stóru vöruhúsun-
um hafði verið breytt í tóm-
stunda- og veitingahallir. Það
er einnig tímanna tákn ef
marka má.
FÆRRI FERÐAMENN -
FLEIRI VEITINGAHÚS
Ýmislegt í þessa veru hefur
gert Kaupmannahöfn jafnvel
enn meira aðlaðandi. Umferð
virðist hafa minnkað um mið-
bæinn, bæði bíla og gangandi
vegfarenda. Ferðamönnum
mun hafa fækkað talsvert á
síðustu tíu árum eða svo.
Borgina heimsækja ekki eins
margir og áður þegar þar varð
ekki þverfótað fyrir ferða-
mönnum. Þess í stað er eins
og búið hafi verið betur í hag-
inn fyrir borgarbúa sjálfa og þá
gesti sem koma til Kauþ-
mannahafnar vegna þess að
hún er og verður alltaf svolítið
sérstök.
Til marks um breytingarnar (
mannúðarátt mé nefna að í
nágrenni Striksins hefur verið
komið á fót skemmtilegri veit-
inga- og menningarmiðstöð.
Nokkur gömul hús í þyrpingu
hafa verið gerð upp og þau
síðan tengd saman. Úr hefur
orðið feiknaskemmtilegt afdrep
fyrir þá sem vilja njóta lista
og góðra veitinga. Þarna er
líka að finna nokkrar sérversl-
anir með skemmtilega muni.
Eins og Tivolí og mörg
hinna gömlu gilda gegnir
gamla og góða Strikið enn
sínu hlutverki með glæsibrag.
Eftir þessari mjóu og löngu
götu ganga allir þeir sem eiga
erindi í bæinn. Þetta er eins og
Austurstrætið í Reykjavík,
nema þarna hefur tekist að
halda glæðum í eldinum allan
tímann. Þarna er alltaf krökkt
af fólki, þó svo að ferðamönn-
um hafi fækkað eitthvað og ís-
lendingum í ævintýraleit.
Þó svo að mörgum skipasmíðastöðvum hafi verið lokað á siðustu árum eru enn verulegar framkvæmdir i gangi. Þetta
stóra olíuskip mun hafa verið í lengingu. Og þarna mættust gamli og nýi tíminn þegar skólaskipið sigldi makindalega
inn í höfnina.
Hafmeyjan var líka á sínum stað. Hún gefur ávallt þegjandi samþykki sitt þegar hún
er mynduð í bak og fyrir og lætur skipaumferðina heldur ekki trufla sig.
Frh. af bls. 43
Hópar framhaldsskólanema,
sem lokið hafa prófum á vorin,
fara ekki lengur til Kaup-
mannahafnar, slíkt er orðið
svo hversdagslegt. Ferðasjóð-
irnir eru greinilega digrari
orðnir en áður tiðkaðist. Ekki
er óalgengt að staðir eins og
Mexíkó, Brasilía eða Tæland
verði fyrir valinu. Unga fólkið
fer heldur ekki lengurtil Kaup-
mannahafnar til að vinna í
sumarfríinu. Þar hefur um ára-
bil ekki verið neina vinnu að fá
hvort eð er því þúsundir Dana
ganga atvinnulausir um göt-
urnar. - Það eru breyttir tímar.
MJÚKT AÐ LENDA
Tíðindamaður Vikunnar
staldraði við í Kaupmanna-
höfn í tvo daga síðsumars. í
fyrstu var eins og ekkert hefði
breyst. Lendingin á Kastrup
var jafnmjúk og hún hafði alltaf
verið, koman til borgarinnar
eins og maður væri að koma
heim tilsín eftir langar fjar-
vistir. Meira að segja litla haf-
meyjan var enn á sínum stað,
en það er alltaf vissara að
ganga úr skugga um slíkt áður