Vikan - 09.01.1992, Qupperneq 70
NÆRMYND
KANADÍSKl
LEIKSTJÓRINN
NORMAN
JEWISON
Leikstjórinn og framleiö-
andinn Norman Jewi-
son fæddist þann 21.
júlí árið 1926 í Toronto í Kan-
ada. Hann hóf feril sinn hjá
breska sjónvarpinu (BBC)
sem leikari og handritahöfund-
ur. Eftir það fór hann aftur til
Kanada og hóf að starfa sem
leikstjóri hjá kanadíska sjón-
varpinu. Þaðan lá leiðin til
Bandaríkjanna. Síðan þetta
var hefur hann leikstýrt 25
kvikmyndum. Nefna má The
Russians Are Coming, The
Russians Are Coming
(1966), In the Heat of the
Night (1967), Fiddler on the
Roof (1971), Jesus Christ
Superstar (1973), Rollerball
(1975), F.I.S.T. (1978), And
Justice for All (1979), Sold-
iers Story (1984), Agnes of
God (1985), Moonstruck
(1987), In Country (1989) og
nú nýlega Other Peoples
Money sem hefur á að skipa
leikurum eins og Gregory
Peck, Danny DeVito, Penel-
ope Ann Miller (Freshman,
Kindergarten Cop) og Piper
Laurie (Twin Peaks þættirnir).
Norman Jewison hefur alls
fengið tólf óskarsverðlaun fyrir
kvikmyndaframtak sitt og telst
það góður árangur. Margir
vilja meina að hann hafi orðið
fyrstur kvikmyndaleikstjóra til
að berjast gegn kynþáttamis-
sem fyllti leikhús eitt í New
York-borg fyrir þremur árum.
Warner Bros kvikmyndafyr-
irtækið bað Norman Jewison
að gera heilsteypta kvikmynd.
Norman Jewison breytti síðan
tveggja þátta leikriti með að-
eins fimm leikurum þannig að
til varð heil biómynd. Myndin
var tekin í hittifyrra og öll kvik-
myndatakan fór fram í Conn-
ecticut. Hann færði líka sögu-
sviðið meira inn í nútímann og
fékk Alvin Sargent, ritfæran og
reyndan handritahöfund, til að
skrifa handritið. Sargent hafði
meðal annars skrifað handrit
að myndum eins og Julia sem
var með Jane Fonda og Van-
essu Redgrave og Ordinary
People sem var með Donald
Sutherland og Timothy Hutt-
on (Turk 182, Taps, Q&A).
Other Peoples Money grein-
ir frá kaupsýslumanni sem er
svo fégráðugur að það nær
engri átt. Hann nýtur þess að
afla fjár. Að græða er hans
mesta yndi. Hann lítur á fé-
græðgi sína sem leik, leik sem
hann kann meistaravel.
Hvernig varð svo Danny De-
Vito fyrir valinu? Hann leikur
einmitt kaupsýslumanninn.
rétti. Hver man ekki eftir mynd-
inni In the Heat of the Night
með Rod Steiger og Sidney
Poitier? Þá mynd gerði hann
árið 1967. Auk þess gerði
hann myndina Soldiers Story
árið 1984. Þar er greint frá dul-
arfullu morðmáli í bandarískri
herstöð í Suðurríkjunum á
árum seinni heimsstyrjaldar-
innar. Myndin er byggð á
sannsögulegum atburðum.
Það má því segja að Norman
Jewison hafi verið fyrsti kvik-
myndagerðarmaðurinn sem
lét málefni þeldökkra til sín
taka en ekki Spike Lee, John
Singleton eða Mario Van
Peeples.
Hvernig er hægt að lýsa
nýju myndinni sem hann sendi
frá sér í októbermánuði? Fyrst
skulum við athuga hvernig
myndin varð til.
I raun réttri er myndin byggð
á geysivinsælu leikhúsverki
▲
Norman
Jewison við
tökur á
nýjustu
mynd sinni,
Other
Peoples
Money.
Gregory
Peck, Piper
Laurie og
Penelope
Ann Miller
í Other
Peoples
Money.
V
ÓSKAR...
Frh. af bls. 65
konan Annette Bening, en
þau léku saman í mynd Barr-
ys Levinson, Bugsy. Robert
De Niro fyrir leik sinn í nýjustu
mynd hins virta og farsæla
leikstjóra Martin Scorsese.
Sú mynd heitir Cape Fear og
er endurgerð frá árinu 1962.
Jodie Foster og Anthony
Hopkins fyrir meistaraleik
sinn í myndinni The Silence
of the Lambs. Robin Willi-
ams og Jeff Bridges fyrir leik
sinn í myndinni The Fisher
King. Auk þess stöllurnar
Geena Davis og Susan Sar-
andon fyrir leik sinn í mynd
Ridley Scott, Thelma and
Louise. Greinarhöfundi þykir
það þó ólíklegt þar sem mynd-
in reis ekki nógu hátt og er
langt frá því að vera besta
mynd leikstjórans, Ridley
Scott.
Skæður keppinautur Prince
of Tides gæti mynd hins unga
Johns Singleton orðið. Hann
var aðeins 23 ára gamall þeg-
ar hann gerði myndina Boyz N
The Hood í fyrra. Þetta er
mynd sem á svo sannarlega
skilið að hljóta tilnefningu og
bronsstyttuna því hún er hreint
afbragð og kraftmikil. Greinar-
höfundur hélt varla vatni þegar
hann sá myndina í stærsta
kvikmyndahúsi Skotlands
þann 16. nóvember. Það má
merkilegt heita ef myndin sú
hlýtur engin verðlaun.
Tvær kvikmyndir verða án
efa tilnefndar fyrir tæknibrellur.
Það eru metsölumyndirnar
Robin Hood: Prince of
Thieves og Terminator 2:
Judgement Day.
Við megum þó ekki gleyma
66 VIKAN 1.TBL1992
Það kom enginn annar til
greina. Þessi knái og skemmti-
legi gamanleikari lék sér að
Arnold Schwarzenegger í
myndinni Twins, Bette Midler
í Ruthless People og Micha-
el Dougias i War of the
Roses. Þrátt fyrir smæðina
streymir ótrúlegur kraftur frá
Danny DeVito.
Hvað um Penelope Ann
Miller? Þetta er nýstirni sem
hefur getið sér gott orð sem
gamanleikkona. Við höfum
séð hana í myndum eins og
Freshman (1990) og Kinder-
garten Cop (1990). Upphaf-
lega komu til greina leikkonur
eins og Debra Winger, Susan
Sarandon, Holly Hunter og
Geena Davis. En nei, Norman
Jewison var fastur fyrir. Hann
vildi prófa eitthvað nýtt og því
varö Penelope Ann Miller fyrir
valinu. Þar með höfum við
það. Other Peoples Money er
farsakennd mynd og hin
mesta skemmtun. Danny De-
Vito er alltaf jafnfrísklegur og
það er alltaf gaman að sjá
gamla brýnið og sígilda leikar-
ann Gregory Peck (To Kill a
Mockingbird, Boysfrom Brazil,
Old Gringo).
Norman Jewison býr nú á
búgarðinum Putney Heath
Farms sem er fyrir utan Tor-
onto. Hann er hamingjusam-
lega giftur Dixie sem er búin
að vera eiginkona hans í 35
ár. Auk þess á hann þrjá upp-
komna syni. Þegar þessi kan-
adíski leikstjóri er ekki að
vinna að kvikmynd er hann að
sinna blómarækt. Hann dá-
samar túlípana. Fyrir utan bú-
garðinn á hann hús og híbýli í
Malibu og á Manhattan. Þess
má að lokum geta að Norman
Jewison stofnaði kvikmynda-
skólann Canadian Film Centre
árið 1988. Það gerði hann til
að styrkja kanadíska kvik-
myndagerð.
myndum eins og JFK, nýjasta
kvikmyndaverki Olivers
Stones, og The Addams
Family. Addams-fjölskyldan
gæti fengið tilnefningu fyrir list-
ræna framsetningu og frum-
leika.
Leikstjórar, sem verða án
efa tilnefndir, eru Martin
Scorsese, Barry Levinson,
Terry Gilliam, Oliver Stones
og Jodie Foster.
Og sigurvegarinn árið 1992
er...! Svona, svona, ekkert
liggur á. Óskarsverðlaunaaf-
hendingin verður sýnd í beinni
útsendingu þann 30. mars.