Vikan - 01.10.1992, Síða 25
Oskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður:
LEIÐINLEG
SJÓNVARPS
LEIKRIT
listævintýriö byrjaði með Oxsmá, sem var fé-
lag Óskars og vina hans.
„í nýlistadeild myndlistarskólans hefur mað-
ur nokkuð frjálsar hendur um það með hvað
maður vinnur og við vorum þar að gera kvik-
myndir - við vorum næstum farnir að gera
bíómyndir í fullri lengd,“ segir Óskar en félag-
ar hans í fyrirtækinu voru meðal annarra
Hrafnkell Sigurðsson, Axel Jóhannesson -
Langi Seli, öðru nafni - Kormákur Geirharðs-
son - kallaður Kommi, nú f KK-bandinu -
Hörður Bragason, Jón Steinþórsson og ennþá
fleiri en þetta var kjarninn.
GEIMSKIPIÐ OG LÖGGAH
Hvað var Oxsmá? „Hljómsveit. Og við gerðum
skúlptúra, vorum með sýningu í Tjarnarbíói
með leikurum og tónlistarfólki og unnum mikið
með Svörtu og sykurlausu." Óskar sækir Ijós-
myndir frá þessum tíma og bendir á virðulegt
Fólksvagen rúgbrauð með risavaxna rakettu á
þakinu. „Bíllinn okkar," segir hann og hlær við.
„Löggan vildi nú ekki bekenna þennan bíl en
við vorum búnir að keyra hann nokkrar vikur
áður en þeir stoppuðu okkur fyrir að vera með
þetta geimskip ofan á honum - vakti of mikla
athygli," bætir hann við, svolítið stoltur f rödd-
inni eins og það hafi verið takmarkið að láta
banna sér hlutina.
Hann skilur ekki að hann skuli hafa nennt
þessu, svona eftir á að hyggja. „Alltaf í sjálf-
boðavinnu. Núna hreyfir maður sig ekki spönn
frá rassi án þess að semja um einhverjar
greiðslur fyrir það. Það er samt gaman að
gera hlutina ókeypis.1' Gaman að gera þá ó-
keypis? „Já, sérstaklega finn ég þetta niðri í
Nemendaleikhúsi þar sem greiðslur eru ekk-
ert inni í myndinni hjá nemendunum. Maður
finnur hvergi eins áhugasaman leikhóp sem
leggur á sig hvaða vinnu sem er,“ svarar Ósk-
ar en nú er hann að leikstýra verki hjá Nem-
endaleikhúsinu. Hann fær borgað fyrir það.
Komum nánar að þvf sfðar og þá sérstaklega
því hvernig maður sem ekki er leikari og því
- ekki leikurum eða
tæknifólki að kenna
20.TBL. 1992 VIKAN 25