Vikan - 01.10.1992, Page 58
AKADEMIA CAFE OPERU
LYKILLAD
NÝSKÖPUN
ÞJÓÐFÉIAGS
Mensa Academica
hét merk stofnun
sem setti svip á
bæjarlífið af miklum þrótti á
árunum 1921-1929. Hún var í
gömlu timburhúsi við Lækjar-
torg, því sama húsi þar sem
Café Ópera starfar nú. Eins
og Café Ópera var Mensa
Academica matsölustaður -
fyrir þá heppnu sem áttu þess
kost að nema við Menntaskól-
ann í Reykjavík.
▼ Dóm- Mensa Academica varð þó
nefnd snemma annað og meira en
árs^ásamt mötuneyti fyrir stúdenta. Árið
veróiauna- 1918 tók Reykjavík við hefð-
höfum. bundnu hlutverki Kaupmanna-
jafnvel einhverju sterkara.
í Reykjavík varð Mensa
Academica helsti vettvangur
þessarar umræðu og þegar
matartímar hrukku ekki lengur
til var umræðunum haldið á-
fram á sérstökum þjóðmála-
fundum á kvöldin þar sem
tekist var á um stefnur og
strauma.
Enda þótt þau tímamót sem
íslendingar standa frammi fyr-
ir nú séu annars eðlis en þau
sem blöstu við stúdentunum á
þessum málfundum fyrir
meira en hálfri öld eru þau af
sama toga spunnin. Enn á ný
logar landið í umræðum og
99 hafnar og varð í senn höfuð-
,£5 borg landsins og miðdepill
stúdentalífsins. Landið bók-
staflega logaði í umræðum og
S deilum um framtíð þessa litla
lands í heimi þar sem hver
'aá höndin var uppi á móti annarri
o2 þrátt fyrir endalok fyrri heims-
^ styrjaldarinnar.
MENSA
ACADEMICA
Mensa Academica - mötu-
neyti og málfundastaður stúd-
enta við Lækjartorg - setti
mikinn svip á bæjarlífið á ár-
unum eftir fyrra stríð fram að
heimskreppunni miklu. ís-
lenskir stúdentar - sem voru
leiðandi afl í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar - þjörkuðu
þar um þjóðmálin yfir matar-
diski og kaffikrús, kannski
deilum um hvernig íslendingar
geti best látið drauma sína
rætast. Að þessu sinni er tek-
ist á um leiðir til að ná þjóð-
inni upp úr kreppunni sem
steðjar aö atvinnulífinu og
stefnir efnahagslegu sjálf-
stæði okkar í stóra hættu.
Þegar Akademía Café Óp-
eru var stofnuð 1. maí 1991
var það til þess að virkja eitt
af merkustu húsum þjóöarinn-
ar á nýjan leik í þessa baráttu.
Enn á ný er sjálfstæðið í húfi.
Enn á ný mun taka langan
tíma aö finna leiðirnar sem
duga - ef þær finnast á annað
borð. Enn á ný þarf útboð
allra krafta þar sem allir leggj-
ast á eitt við aö leysa vand-
ann. Enn á ný leitum við meö
logandi Ijósi að einstaklingum
sem eru líklegastir til að finna
nýjar leiöir, uppgötva þær
lausnir sem duga.
Akademíu Café Óperu er
ætlað að verða eins konar
hvati eða aflvaki þessarar um-
ræðu og þessarar leitar. Á ári
hverju sitja í henni frammá-
menn og -konur úr íslensku
atvinnulífi, fólk sem er þekkt
fyrir ferskar hugmyndir, áræði
og útsjónarsemi. Áuk þess að
skapa umræöu er hlutverk
Akademíunnr að örva til dáða
hugmyndaríka og djarfa ein-
staklinga sem hún telur að
hvorki samfélagið né stjórn-
völd hafi gefið nægan gaum til
þessa.
VERÐLAUNA-
GRIPURINN
Verðlaunagripur Akademíunn-
ar er afar voldugur silfurlykill
sem Sigurður Steinþórsson
smíðar árlega eftir fornum
lykli sem er varðveittur á
Þjóðminjasafni íslands. Þann-
ig á lykillinn einnig að minna á
að „að fortíð skal hyggja ef
frumlegt skal byggja“. Þar
sem lyklarnir eru handsmíð-
aðir eru engir tveir nákvæm-
lega eins.
Enda þótt nokkur svartsýni
hafi náð að grípa um sig má
ekki gleymast að ísland býður
upp á marga góða og arð-
vænlega kosti. Oft vantar að-
eins herslumuninn. Til að
brúa bilið boða hagræðingar-
meistarar útsjónarsemi og
samruna, fækkun starfsfólks
og betri nýtni. Enda þótt
þeirra ráð séu orð í tíma töluð
duga þau skammt ef ekki er
annað og torráðnara fyrirbæri
fyrir hendi.
Þetta fyrirbrigði - lykilorðið
- er að sjálfsögðu nýjar hug-
myndir og nýjar lausnir. Stað-
reyndin er sú að aðstæður
hér úti á norðurhjara eru ein-
hæfari og fábrotnari en margir
gera sér grein fyrir og því er
lífsnauðsyn að þær auðlindir
sem þjóðin á séu rétt notaðar.
Einu auðæfin sem við eigum
hins vegar gnótt af eru hug-
myndirnar pg orkan sem í
fólkinu býr. íslendingar - eins
og aðrar þjóðir - verða að
muna að hlunnindin, sem
náttúran gefur, verða seint
annað og meira en stökkpall-
ur. Þrátt fyrir fisk, orku og
ferskt vatn verðum við - eins
og aðrir - að seilast miklu
dýpra í hugskot þjóðarinnar
sjálfrar eftir þeim hugmyndum
og afuröum sem velferð
landsins verður að byggjast á.
Þótt lykillinn að velgengni
okkar - sem annarra - séu
nýjar hugmyndir vaxa þær
ekki á trjánum hér fremur en á
öðrum stöðum. Reynslan alls
staðar sýnir að eingöngu ef
tekst að skapa aðstæöur sem
eru svo hvetjandi og örvandi
að þær bókstaflega vekja
heilu byggðarlögin eða þjóð-
irnar til umhugsunar - ein-
göngu þá er líklegt að bylting-
in komist á flug.
Akademía Café Óperu get-
ur auðvitað ekki - ein og sér -
skapað slíkar aðstæður. Hún
getur hins vegar og mun leit-
ast við að verða öðrum hvatn-
ing til dáða. Ef nógu margir
einstaklingar og fyrirtæki
leggjast á eitt getur hún
kannski orðið kveikjan að
þeirri vakningu sem ein getur
gert okkur kleift aö endur-
heimta og efla velferð þjóðar-
innar.
Til að minna á að lykillinn
að nýsköpun íslensks þjóðfé-
lags eru nýjar hugmyndir valdi
Akademían silfurlykil að tákni
sínu. Þessi „lykill framtíðar" er
afhentur árlega manni eða
konu sem Akademían telur að
hafi með framúrskarandi hug-
viti, dirfsku og þrautseigju
unniö atvinnulífinu gagn. Hug-
myndin að lyklinum er frá Sig-
urði Steinþórssyni gullsmiði
en hann smíðar verðlauna-
gripina eftir lykli sem fannst í
jörðu aö Stórólfshvoli um síð-
ustu aldamót.
AKADEMÍA
CAFÉ ÓPERU
1992-1993
í Akademíunni sitja valinkunn-
ir forstjórar í eitt ár í senn,
Verólaunahafar síóasta árs
sestir aó glæsilegu kvöld-
veróarboröi ásamt mökum
sínum.
valdir eftir ábendingum fólks
úr öllum stéttum atvinnulífs-
ins. Akademíu Café Óperu
tímabilið 1992-1993 skipa eft-
irtaldir einstaklingar: Jón Ás-
bergsson, Hagkaup; Magnús
Oddsson, Ferðamálaráöi;
Svava Johansen, Sautján;
Kristinn Björnsson, Skeljungi;
Þórarinn J. Magnússon, Sam-
útgáfunni Korpus; Elsa Har-
alds, Salon Veh; Hörður
58 VIKAN 20. TBL. 1992