Vikan - 01.10.1992, Síða 68
ÞARF EKKI AÐ VERA
ÞJÁNING!
ÞÚ GETUR BORÐAÐ
OG GRENNST!
ÞAÐ góöa, sem ég vil, þaö
1 gjöri ég ekki, en hiö vonda,
sem ég vil ekki, þaö gjöri
ég.“ Þetta sagði Páll postuli en
þessi orð gætu allt eins verið
viðkvæði þeirra þúsunda
íslendinga sem stríða við
aukakílóin og hafa reynt að léttast
án árangurs.
Hvers vegna tekst okkur
sjaldnast að grennast?
Svarið er einfalt: Ótal aðferðir
við megrun byggjast á því að við
borðum ekki það sem okkur þykir
gott, t.d sælgæti, kökur, sósur,
vín, rjóma út í kaffið og margt
fleira. Við gefumst hreinlega upp.
Nupo kúrinn er ekki þannig.
Þegar þú notar NUPO-létt
geturðu borðað góðan mat en
grennist samt.
Nupo kúrinn er framhald af
hinum þekkta Hvidovre kúr sem
margir íslendingar kannast eflaust
við. Hvidovre kúrinn byggðist á
aðferðum próf. dr. med Flemming
Quaade sem er þekktur danskur
læknir og vísindamaður á sviði
fiturannsókna.
Nupo kúrinn byggist á tveim
grundvallaratriðum:
1. Þú borðar NUPO-létt nær-
ingarduft daglega.
2. Öll neysla þín er byggð á
einingakerfi.
Hver er tilgangurinn með
því að borða durt?
Skýringin er afar einföld. Til að
léttast þarftu að minnka orku-
neysluna og margir, sem eru
mikið umfram kjörþyngd, þurfa
að minnka hana mikið. Þaö er því
nauðsynlegt heilsunnar vegna að
sú fæða, sem nærst er á, sé bæði
holl og næringarrík. Annars fær
líkaminn til dæmis ekki nóg af
vítamínum og málmsöltum.
Slíkan matseðil, með aðeins 400-
600 hitaeiningum, er ókleift að
setja saman úr venjulegri fæðu.
Þess vegna er næringarduftið
NUPO-létt mjög mikilvægt því
að í því eru öll vítamín, steinefni,
prótein, fitusýrur og snefilefni sem
líkaminn þarfnast, auk trefjaefna
og omega-fjölómettaðra fitusýra.
Konur þurfa 5 skammta á dag en
karlmenn 6 skammta því
próteinþörf þeirra er meiri.
Líkaminn fær því öll næringarefni
en konur aðeins 444 hitaeiningar
og karlmenn 534. Líkaminn
veikist ekki á nokkurn hátt;
samsetning fæðunnar bitnar
aðeins á fitufrumunum enda
ætlum við í stríð við þær.
Hvernig virkar
einingakerfið?
Eins og áður er sagt fáum við öll
nauðsynleg næringarefni úr dag-
skammti af NUPO-létt en það
fæst í öllum apótekum á landinu.
Við viljum þó ekki að fólk neyti
færri en 1000-1100 hitaeininga á
dag til þess að ekki gangi á
magra vöðva líkamans, enda er
illt að þurfa aö neyta sér um allt
sem gefur lífinu lit. Þetta er
einmitt meginkostur Nupo
kúrsins: Einingakerfið gerir þér
fært að fylgjast með þeim
hitaeiningum, um 600 talsins,
sem þú mátt neyta umfram
skammtanna 5 eða 6. Aftar í
blaðinu er listi þar sem mat og
drykk er raðað í þrjá meginflokka.
Blátt ■ táknar prótein, grænt ■
trefjar og rautt ■ merkir fæðu-
tegundir með miklum sykri, fitu
eða áfengi. Hver eining eða
kubbur samsvarar um 62
hitaeiningum.
10 einingar á dag
Þú mátt neyta 10 eininga á dag
og valið er algjörlega þitt.
Ef þú neytir 1000-1100
hitaeininga daglega losnarðu við
um 1,5 kg af fitu á dag eftir því
hvað þú hreyfir þig mikið.
Hér á eftir sést hvernig
matseðil þú getur sett saman.
Möguleikarnir eru margir og þú
getur notað einingarnar nákvæm-
lega eins og þú vilt. Þær rauðu
mega þó ekki vera fleiri en 10 á
dag. í þessu er sérstaða Nupo
kúrsins meðal annars fólgin því
margir geta hreinlega ekki neitað
sér um köku, súkkulaði, vín eða
sælgæti. Nupo kúrinn útilokar
ekki „þungvægar" hitaeiningar;
þær eru hluti af kerfinu þannig að
þú léttist þrátt fyrir allt.
Teldu einingarnar og kílóin
hverfa -
hitaeiningasnautt lostæti
Kosturinn við Nupo kúrinn er að
þú ákveður hvað þú vilt borða -
hæfilega auðvitað. Á hverjum
degi hefur þú til umráða 10
einingar í mat og drykk, auk
skammtana þinna af Nupo. Þú
getur ráðstafað þeim að vild.
Notaðu þær í súrt, sætt. grænt
eða gróft.
NupoMétt