Vikan - 01.10.1992, Qupperneq 82
FRAMHALD AF BLS. 80
Keppnin í ár einkennist af
þeim vindum sem blásið hafa
víða um lönd að undanförnu
og hafa innleitt hollara fæði
og snauðara af hitaeiningum.
Þess vegna verður nú lögð
mikil áhersla á hreint og gott
hráefni, engin aukaefni, fá-
breytta framreiðslu og umfram
allt verður lögð rík áhersla á
næringargildi og hollustu. Því
verða miklar sósur og óþarft
meðlæti óæskilegt.
Sunnudaginn 20. septem-
ber síðastliðinn var boðið til
þriggja rétta hádegisverðar í
veitingahúsinu Perlunni.
Landsliðið annaðist matseld-
ina en Perlan sá um þjónust-
Aöalbláberja-jógúrtfrauö,
boriö fram meö íslenskum
berjum - hollur og gómsætur
eftirréttur.
una. Á annað hundrað gestir
komu í hádegismat þennan
dag og bragðaðist þeim mat-
urinn vel og voru viðbrögðin
mjög jákvæð.
í forrétt voru bornar fram
gufusoðnar gellur á hvítu káli,
með korianderfræjum og kart-
öflu-mysusósu.
Aðalrétturinn var klukku-
tímasaltað lambafile með
sítrónu- og blóðbergskrydd-
uðu soði. Það má segja að
hér sé á ferðinni nútímaleg
framreiðsla á íslenskri kjöt-
súpu - nema hvað fituna er
hvergi að finna.
í eftirrétt var boðið upp á
aðalbláberja-jógúrtfrauð með
íslenskum berjum.
íslenska landsliðið mun
þurfa að sýna snilli sína í heit-
um réttum þann 12. október
og verður þá eldað sam-
kvæmt ofangreindum mat-
seðli handa 130 manns sem
gefa síðan matseldinni ein-
kunn. í Perlunni gæddu sér
einmitt álíka margir gestir á
réttunum og því fengu mat-
reiðslumeistararnir þar góða
æfingu fyrir keppnina.
Þann 14. október verður
keppt í köldum réttum og þá
matreiða okkar menn 58 að-
greindir rétti, í raun bæði heita
og kalda, sem verða sýndir
kaldir því að þeir standa á
borðum til sýnis í heilan dag.n
H
s
O
T
E
L
L
I
N
D
VINIÐ
SERLEGA MERKT
STAÐNUM
Vínáhugamönnum þótti
ákaflega girnilegt
hlaðborðið á veitinga-
staðnum á Hótel Lind hér eitt
kvöldið. Það var alsett vín-
flöskum, rauðvín, hvítvín og
rósavín, vínber og ávextir.
Þarna gat að líta úrval þeirra
vína sem flutt eru inn á veg-
um Lindarinnar og flöskurnar
eru einmitt merktar veitinga-
staðnum; Lindin Restaurant,
sérstaklega af framleiðanda
vínsins í Bandaríkjunum.
Vínin koma frá Washington-
fylki en framleiðandinn, Arbor
Crest, er sagður einn besti
vínframleiðandinn í fylkinu.
Aðeins Kaliforníu-fylki státar af
meiri vínframleiðslu en Was-
hington-fylki hefur um langt
skeið verið talið ákaflega hent-
ugt til vínberjaræktunar og á
sér langa sögu á því sviði.
Kólombíuáin er gjöful og veitir
vínviðnum ríkulega af vatni,
ast hvar annars staðar, til
dæmis vegna einstaks lofts-
lags og annarra skilyrða sem
hér hafa verið nefnd.
Aftur til íslands, inn í veit-
ingasal Hótel Lindar. Þar hafa
tappar verið teknir úr vínflösk-
um og meðan viðstaddir
draga að sér ilminn af sér-
staklega tæru og fallegu
Sauvignon Blanc frá árinu
1989 er gott að glugga í Ijósrit
úr vínatlasinum þar sem
stendur að framleiðandi víns-
ins sé meðal þeirra sem mælt
er með. Það er ágætt vega-
nesti í fyrsta sopann. Vínið er
framleitt sem þurrt vín en
ágæt samstaða næst um það
við borðið að nokkuð mikið á-
vaxtabragð gefi því svolítið
sætt yfirbragð í fyrstu. Eftir-
keimurinn er á þurru nótun-
um. Vínið er létt, sennilega
gott með mat og gott kælt en
vissulega fer um sli'kt eftir
▲ Guó-
ríóur Hall-
dórsdóttir
tók á móti
gestum
viö þetta
veglega
hlaóborö.
Og fleiri
góóar
fréttir:
Vínió er á
mjög viö-
ráóanlegu
veröi.
skapar þannig kjörnar aðstæð-
ur fyrir berjaþroskunina. Einnig
er fullyrt að norðlæg lega fylk-
isins með heitum sumardög-
um og svölum nóttum gefi
mjög hentug veðurskilyrði til
vínframleiðslu þar sem sykur-
sýruinnihald berjanna sé í
góðu jafnvægi við slfkar rækt-
unaraðstæður. Þetta er sagt
gefa berjunum ákaflega sér-
stök einkenni. Einnig segir um
Washington sem vínræktar-
fylki að þar séu ýmsar að-
stæður um margt betri en víð-
smekk eins og allt annað á
þessum vettvangi.
Rósavínið var næst á dag-
skrá. Það hefur þau sammerki
með hvítvíninu að vera tært
og fallegt, nokkuð Ijósrautt og
sterkilmandi. Þarna er á ferð-
inni N.V. Jardin Des Fleurs.
„Þetta er eitthvað fyrir konur,"
sagði ein daman við borðið og
var hrifin en ýmsar getgátur
og hugleiðingar komu upp við
smökkun vínsins og þar kom
greinilega fram ofangreindur
einstaklingsmunur.
„Þetta vín gæfi villibráðinni
aukinn kraft," sagði einn
veislugesta þegar rauðvínið,
Merlot af árgangi 1990 -
þurrt, var borið fram. „Og ef
menn væru safnarar má gera
ráð fyrir að eftir tvö til þrjú ár
væri tilvalið að opna flöskurn-
ar,“ sagði annar. Einmitt kom
á daginn í máli Guðmundar
Magnússonar þjóns að fram-
leiðandinn gæfi upp geymslu-
tíma um tvö til þrjú ár í viðbót.
Vinið er gott og bragðmikið,
hefur sterkan eikarkeim enda
hefur það verið geymt í 225
lítra franskri eikartunnu. Og
það er blandað með Cabernat
Sauvignon, víni sem framleitt
er úr annarri berjategund.
Öll eiga þessi vín það sam-
eiginlegt að hafa hlotið fjöl-
mörg verðlaun innan Banda-
ríkjanna í ýmiss konar sam-
keppni sem þar fer fram á ári
hverju. Sérstaklega má nefna
hvítvínin frá Arbor Crest sem
hafa sankað að sér miklum
fjölda verðlauna en hvítvínið
sem Lindin flytur inn,
Sauvignon Blanc af ýmsum
árgöngum, hefur verið mjög
sigursælt og ber þar helst að
nefna árganginn 1986.
Ef við að lokum eigum að
skipa vínunum upp í röð eftir
því hve þeim tókst að grípa
hug okkar og hjarta þá varð
rósavínið í þriðja sæti, rauð-
vínið í öðru og ókrýndur sigur-
vegari kvöldsins, að okkar
mati, var hvítvínið. Það er vel
þess virði að hljóta nánari at-
hygli innan tíðar og þá með
öllu tilheyrandi. Vitaskuld verð-
ur það á Lindinni, eina staðn-
um þar sem vínið má fá. □
82 VIKAN 20. TBL. 1992
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON