Vikan - 25.02.1993, Síða 53
FÖRÐUN: LÍNA RUT,
FÖRÐUNARMEISTARANUM,
BORGARKRINGLUNNI
HÁR: HÁR EXPO
FÖT: PLEXIGLAS
UÓSM.: GÚSTAF GUÐMUNDSSON
TEXTI: HELGA MÖLLER
STAKKASKIPTI
MEÐ AAAKE-UP FOREVER
Þórunn Högnadóttir, tutt-
ugu og tveggja ára
Reykjavíkurstúlka, brá
sér úr hlutverki förðunardömu,
sem hún hefur venjulega með
höndum, í hlutverk fyrirsætu,
eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum. Þórunn starfar við
hlið Línu Rutar í Förðunar-
skólanum, sem og í verslun-
inni Förðunarmeistaranum í
Borgarkringlunni, en þar sem
hún hefur sérlega fallega
augnaumgjörð, sem gott er að
farða, fékk Lína Rut hana til
að setjast í stólinn hjá sér.
Þórunn hefur hins vegar
þunnar varir svo að þær þarf
að stækka, eigi þær að stand-
ast kröfur tískunnar. Lína Rut
segir hreint ekki óalgengt að
varir séu stækkaðar. Til þess
notar hún dökkan varalita-
blýant og teiknar varirnar utan
hinna eiginlegu vara. Síðan er
hefðbundinn varalitur látinn
þekja varirnar út að blý-
antslínunum. Á myndinni þar
sem Þórunn er í fötunum með
tígrismunstrinu hefur Lína Rut
til dæmis teiknað útlínur neðri
vararinnar um hálfum sentí-
metra fyrir neðan raunveru-
legu vörina. Hún segir hins
vegar ekki óalgengt að varir
séu stækkaðar með förðun
um þrjá til fimm millímetra.
Þykkar varir eru líka í tísku! □