Vikan - 25.02.1993, Side 59
TRÚBROT: TRÚBROT
/UNDIR ÁHRIFUM
Hver hefði trúað því að það
hefði verið Árni „eyjagöslari”
Johnsen sem fann upp nafnið
Trúbrot á fyrstu eiginlegu
súpergrúppuna hérlendis sem
allt varð vitlasut út af, strax
við stofnun 1969. Fyrsta plata
Trúbrots bar einfaldlega nafn
sveitarinnar og seldist gríðar-
vel (3000 eintök), var valin
plata ársins 1969. Hápunktur
plötunnar, sem inniheldur ell-
efu upprunaleg lög og sex
aukalög, er að sjálfsögðu Án
þín sem Shady Owens syngur
svo yndislega. Á Undir áhrif-
um frá 1970 höfðu orðið
mannbreytingar, Shady, Kalli
Sighvats og Gunnar Jökull
hætt en í þeirra stað komnir
Magnús Kjartansson og Ólaf-
ur Garðarsson.
Þessi plata var merkileg
fyrir þá sök að á henni var
eingöngu frumsamið efni,
sem var nýlunda hér á landi.
Á plötunni er meðal annars
sungið um þreytandi borgarlíf,
flótta úr sveit í borg, hraðann
og firringu. Allt gott og bless-
að en ekki þar með sagt að
það eigi að endurútgefast.
Það eru tuttugu ár síðan þetta
var tekið upp á tíu rása tæki.
Það heyrist mjög greinilega
en platan á sína Ijósu punkta,
meðal annars lögin Feel Me
og Relax sem inniheldur
smekklegan flautuleik. Og
myndin á umslagi plötunnar,
tekin á ruslahaugum Keflavík-
urflugvallar, er tileinkuð nátt-
úruvernd. Það hefur væntan-
lega líka þótt nýlunda.
STJÖRNUGJÖF:
TRÚBROT: **★
UNDIR ÁHRIFUM: ★★
Trúbrot var umdeild
súpergrúppa. Árni Johnsen
fann upp nafniö!
Tónlistarlegt
tívolí meö til-
heyrandi húll-
umhæi frá Stuö-
mönnum.
HINN ÍSLENSI ÞURSA-
FLOKKUR: ÞURSABIT
Svo maður haldi áfram að tala
um súpergrúppur þá er
Þursabit annað tveggja meist-
araverka Hins íslenska þursa-
flokks. Hér er þjóðlaga- og
vísnahefðin áfram klædd í
þjóðlagarokkbúning, meira
nostrað en á fyrstu plötunni,
vandvirknin og fagmennskan í
hámarki; Sigtryggur vann,
Skriftagangur, Bannfæring,
Brúðkaupsvísur. Snilld í einu
orði sagt. Allir fara á kostum,
allir njóta sín til fulls. Það hlýt-
ur að hafa verið gaman að
standa að gerð þessarar
plötu. Kaupa, kaaauupa,
kaaaauuupaaaa!
STJÖRNUGJÖF: ★★★★★
Hugsun Rún.
ars Þórs er
tær.
Sniltdarverk á borö
viö Þursabit eru
sjaldgæf á íslensk-
um plötumarkaöi.
IfAfi g. w /A«K