Vikan - 25.03.1993, Qupperneq 31
hlutverkið í Gaukshreiðrinu
1975 og aukahlutverk í
Tearms of Endearment 1983,
sigrar nú verður hann fyrstur
núlifandi leikara til að ná I
styttuna eftirsóttu í þriðja sinn.
Óskarsverðlaunin eru að
þessu sinni tileinkuð konum í
kvikmyndagerð en kaldhæðni
tíðarandans í Hollywood er á
sama tíma sá að sterkum og
áberandi kvenhlutverkum hef-
ur fækkað stórlega. Markaðs-
stjórar í kvikmyndaborginni
virðast ekki hafa mikla trú á
konum sem vitsmunaverum
og hlutverk þeirra eru flest
notuð til skrauts í kringum
karlleikarana sem þjást ekki af
verkefnaskorti. Aðeins tvær
þeirra mynda sem kona er til-
nefnd fyrir aðalhlutverkið í eru
framleiddar í kvikmyndaborg-
inni og það er hæpið að flokka
aðra þeirra, Love Field, mynd
Orion kvikmyndafyrirtækisins
sáluga, undir Hollywood-fram-
leiðslu. Það er Michelle Pfeif-
fer sem krækti sér í sína
þriðju tilnefningu með frammi-
stöðu sinni í henni en myndin
segir frá hvernig leiðir skerast
á ferðalagi hvítrar konu og
svarts manns í Suðurríkjum
Bandaríkjanna eftir morðið á
Kennedy forseta.
Almannarómur í Los Angel-
es segir að tilnefning Pfeiffer
sé í raun fyrir hlutverk kattar-
konunnar í Batman Returns
en það er ólíklegt að hún hafi
eitthvað að gera í samkeppni
við Susan Sarandon og
Emmu Thompson. Sarandon
er eini leikarinn sem tilnefndur
er í ár og einnig var með í
fyrra og túlkun hennar í
Lorenzo's Oil, á konu sem á í
baráttu við heilbrigðiskerfið
fyrir lífi sonar síns, kemur
sterklega til greina verðlauna-
kvöldið. Það er samt Emma
Thompson úr Howards End
sem flestir spá sigri því hún
hefur þegar hlotið flestar þær
viðurkenningar sem gefa til
kynna að óskarinn falli við-
komandi leikara í skaut.
Neöar á blaði eru Mary
McDonnel úr Passion Fish og
Catherine Deneuve I frönsku
myndinni Indochine en hún er
tuttugasti leikarinn í sögu
óskarsverðlaunanna sem til-
nefndur er fyrir hlutverk á
öðru tungumáli en ensku. Að-
eins tveimur þeirra hafa verð-
launin fallið í skaut.
Nafn Marisa Tomei var það
sem kom flestum mest á óvart
þegar tilnefningarnar til ósk-
arsverðlaunanna voru til-
kynntar. Hún er eina leikkon-
an úr kvikmyndum Hollywood-
risanna sem nefnd er fyrir
aukahlutverk að þessu sinni
og þó að hún sé óborganleg
sem kærasta Joes Pesci í
grínmyndinni My Cousin
Vinnie verða möguleikar
hennar til verðlauna að teljast
litlir. Ekkja Laurence Olivier,
Joan Plowright, úr Enchanted
Aprii er líklegri ásamt ástr-
ölsku leikkonunni Judy Davis
úr mynd Woody Allen, Hus-
bands and Wifes. Hlutverk
Vanessu Redgrave í Howards
End er að mínu mati of lítið til
að koma til greina en fimmta
leikkonan, Miranda Richard-
son, er til alls vís. Hún er til-
nefnd fyrir hlutverk sitt á móti
Jeremy Irons í Damage en að
auki lék hún í The Crying
Game og Enchanted April á
árinu sem leið þannig að hún
hefur verið áberandi víða.
Plássins vegna veröum við
að láta hjá líða að velta vöng-
um yfir hvaða myndir verði
hlutskarpastar í hinum fjöl-
mörgu tæknilegu greinum
sem metnar eru til óskars-
verðlauna. Búast má við að
þær myndir sem þegar hafa
verið nefndar skipti þeim á
milli sín að mestu en einnig er
líklegt að myndin um Drakúla
greifa og Death Becomes Her
bætist í þann hóp ásamt The
Bodyguard.
Forleikurinn að kjöri mynda
á erlendu máli hefur vakið at-
hygli en myndin A Place in the
World, sem er fyrsti fulltrúi Ur-
uguay í keppninni, var dæmd
úr leik því aðstandendur
hennar munu teljast heldur
argentískir. Eftir standa því
einungis myndir frá Rússlandi,
Belgíu, Þýskalandi og Frakk-
landi. Þetta er í tuttugasta og
áttunda sinn sem frönsk mynd
er tilnefnd og ef hún sigrar nú,
eins og flestir reikna með,
jafna Frakkar met ítala sem
nlu sinnum hafa hirt verðlaun-
in. Fulltrúi íslands, kvikmynd
Kristínar Jóhannesdóttur, Svo
á jörðu sem á himni, komst
því miður ekki á blað en þeir
meðlimir akademíunnar sem
ég talaði við voru sammála
um að hún væri falleg en
leiknum væri ábótavant ásamt
því að það tæki atburðarásina
of langan tíma að fara úr
startholunum. Það er samt
engin ástæða til að leggja
árar í bát og við getum verið
stolt af frammistöðu okkar f
fyrra. Hver veit hvað gerist að
ári? Þangað til verðum við að
horfa á aðra berjast um bitann
en verðlaunaathöfnin, sem
enn verður undir stjórn Billy
Crystal, fer eins og kunnugt er
fram I borg kvikmyndanna
mánudagskvöldið 29. mars.
VETRARÆVINTÝRI
í SKAGAFIRÐI
FERÐAÞJÓNUSTA Á BAKKAFLÖT
hádeginu kemur síðan hús-
freyjan á Bakkaflöt með heitt
kaffi, kakó, brauð og kökur til
að hressa svangt útivistarfólk-
ið. Eftir máltíðina er fólki boð-
iö upp á vélsleðaferðir um fjöll
og firnindi. Þeir sem vilja geta
látið draga sig á vélsleðum
með skíði undir fótum eftir
svellinu eða upp í fjöllin og
rennt sér síðan niður eins og
kunnáttan býður. Haldið er
heim þegar langt er liðið á
daginn, slakað á eftir átök
dagsins og látið fara vel um
sig í sundlauginni. Um kvöldið
er borinn fram hátíðarkvöld-
verður og loks skemmtir fólk
sér fram eftir kvöldi við söng,
leik eða spjall.
Eftir morgunverð á sunnu-
deginum, sundsprett í lauginni
góðu og gönguferð um ná-
grennið halda gestir heim á
leið, endurnýjaðir á á sál og
líkama.
Fyrir þá sem áhuga hafa er
unnt að skipuleggja heimsókn
í hesthúsið á nágrannabæn-
um Varmalæk, llta á hinn
landsþekkta gæðing Hrímni
frá Hrafnagili og sjá glæsta
gæðinga svífa um skagfirskar
grundir, auk þess sem hús-
ráðendur taka jafnvel lagið að
skagfirskum sið. Einnig býðst
þeim sem vilja að þeysa um á
hestasleða eftir ísilögðu
Vatnshlíöarvatni.
Til vors býðst þessi helgar-
pakki á kynningarveröi, kr.
6.800 á mann I tveggja
manna herbergjum. Börn
yngri en 16 ára í fylgd meö
fullorðnum greiða hálft gjald.
Ferð af þessu tagi er tilvalin
fyrir fjölskyldur, kunningja-
hópa eða til dæmis starfs-
félaga sem vilja breyta til í frí-
stundum sínum og draga sig
um stund í hlé frá skarkala
heimsins. □
Nesti snætt a vatmnu.
Skál og velkomin! Siggi
býöur upp á hressingu í laug-
inni.
Abænum Bakkaflöt í
Skagafirði er f vetur
boðið upp á skemmti-
legan helgarpakka sem er
hæfilegt sambland af hvíld,
útiveru og vetraríþróttum. Ný-
lega fór hópur fólks í helgar-
ferð þessa til reynslu og eins
og sjá má á meðfylgjandi
myndum heppnaðist ferðin vel
og var fólk hæstánægt með
þann viðurgjörning sem boðið
var upp á.
Fólk kemur á staðinn
snemma á föstudagskvöld og
byrjar á að fá léttan kvöld-
verð. Síðan er feröarykið skol-
að af í lítilli einkasundlaug
heima á bænum. Á milli sund-
taka er dreypt á Ijúfum veig-
um sem bóndinn kemur með
á bakka að sundlaugarbarm-
inum.
Laugardagurinn er tekinn
snemma og byrjað á staðgóð-
um morgunverði af hlaðborði.
Að því búnu er haldið út í heil-
næmt vetrarloftið. Dorgað er í
gegnum ís á Vatnshlíðarvatni
sem er þarna skammt frá. í
6, TBL, 1993 VIKAN 31