Vikan - 25.03.1993, Page 49
þess aö lifa sjálfstæðu lífi og
styðja hann í því þannig að
hann geti einnig borið ást og
virðingu fyrir okkur sjálfum
sem sjálfstæðum einstaklingi í
stað þess að upplifa að við
séum háð sambandinu eða
honum.
Hins vegar fara alltof mörg
sambönd út f samkeppni. Þá
verður allt að samkeppni -
samkeppni um hvort hefur rétt
fyrir sér, samkeppni um styrk,
samkeppni um virðingu, sam-
keppni um ást og svo fram-
vegis. Oft stafar þetta af
ósjálfstæði annars hvors eða
beggja aðilanna og þörf fyrir
sambandið sem slíkt, þörf fyrir
að vera háður. Þá verður oft
spurningin um ást ofarlega á
blaði og tiltölulega óþroskuð
viðbrögð eða barnaleg við-
brögð láta á sér kræla: „Ef þú
hugsar ekki eins og ég þá
elskar þú mig ekki og berð
enga virðingu fyrir mér.“ „Ef
þú elskar mig þá berstu ekki
viö mig.“ „Ef þú elskar mig þá
kemur þú til móts við mig,
jafnvel þótt ég sé illa fyrirkall-
aður/kölluð og komi illa fram
við þig þess vegna.“ „Ef þú
elskar mig áttu að skilja mig.“
Þetta eru nokkur augljós
dæmi um viöhorf sem leiða til
samkeppni, samkeppni um
ást og virðingu makans.
Fjárhagserfiðleikar geta
einnig ieitt til samkeppni
vegna þess að þeir leiða oft til
þess að hjónin geta ekki leyft
sér það sjálfstæði sem þeim
finnst þörf fyrir. Fjárhagserfið-
leikar og smábörn á sama
tíma leiða enn frekar til upplif-
unar af því að vera heftur og
nauðbeygöur til að lifa lífi sem
fyrst og fremst er eins konar
skylda og hefting. Þetta leiðir
þá oft til þess að hjónin eru
meira eða minna alltaf saman
og fara svo að kenna hvort
öðru um heftinguna.
SAMKEPPNI
í RIFRILDUM
Þegar um samkeppnissam-
band er að ræða verða rifrildi
einnig samkeppnisrifrildi. Rifr-
ildin einkennast þá af ásökun-
um í stóru og smáu. Makan-
um er kennt um allt og allt tínt
til, bæði gamalt og nýtt. Hin
ómeðvitaða hugmynd er þá
að „ef þú bara viðurkennir að
þú ert alltaf að gera rangt get-
ur þú breytt því og þá getur
mér farið að líða vel með þér“.
Mín vanlíðan stafar af þinni
framkomu. Vegna ósjálfstæð-
is okkar hættum við að sjá að
við sjálf erum þau einu sem
getum gert eitthvað í okkar
eigin vanlíðan. Við hættum að
sjá að það eru okkar eigin við-
brögð sem leiða til þess að
okkur líður áfram illa. Þó svo
að makinn segi eða geri eitt-
hvað sem veldur því að okkur
líður illa höfum við sjálf ótal
möguleika á viðbrögðum, sem
ýmist leiða til áframhaldandi
vanlíðunar eða leiða smám
saman til vellíöunar. Með því
að taka þátt í samkeppnisrifr-
ildi mun okkur aldrei Kða vel á
eftir. Ástæöan er einfaldlega
sú að út úr slíkum rifrildum
kemur enginn sem sigurveg-
ari. Báðir tapa.
RIFIST UM AUKAATRIDI
Eins og þú nefnir verða þessi
rifrildi undantekningarlaust um
aukaatriði. Samkeppnin um
sigur leiðir til þess að rifrildið
færir okkur langan veg frá
aðalatriðinu. Með því að
hlusta á tilfinningar okkar get-
um við haldið okkur við aðal-
atriðið og það er eina leiðin til
þess að rifrildi leiði til niður-
stöðu, sem síðan getur leitt til
jákvæðs framhalds.
VIRK HLUSTUN
OG UMRÆ.ÐA UM
SJÁLFAN SIG
Reynið að beita því sem kall-
að er virk hlustun og ræðið
um ykkur sjálf í stað þess að
ásaka stöðugt makann. Virk
hlustun gengur út á það að
hlusta eftir því sem okkur
finnst hinn aðilinn vera að
koma á framfæri, bæði með
orðum og látbragði, og spyrja
til baka hvort sú túlkun sé rétt.
Tilgangurinn er aö halda sig
við aðalatriði umræðunnar.
Að ræöa um sjálfan sig er að
segja frá eigin líðan, hugsun,
túlkun á viðbrögðum hins og
svo framvegis í stað þess að
segja alltaf „þú gerir", „þú seg-
ir“ og svo framvegis. Dæmi:
Þegar þú talar svona til mín
líöur mér svona, er það það
sem þú vilt? Ég fæ á tilfinn-
inguna að þú sért að kenna
mér um hvernig þér líður.
Viltu aö ég geri eitthvað sér-
stakt til að þér líði betur? Eftir
slíkar spurningar eru meiri lík-
ur til þess að þið getið komist
að niðurstöðu um hvað hægt
sé að gera í málinu í staö
þess að ásaka hvort annað
og bíða eftir því að hinn aðil-
inn skilji hvað hann er vitlaus.
Um virka hlustun og ég og
þú boð hefur verið ritað í ýms-
ar bækur um sjálfsstyrkingu
og uppeldi. Það er of langt
mál til að fara nánar út í það
hér. Lesið ykkur gjarnan til.
Með kveðju,
Sigtryggur
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
VELKOMINA SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR x*
| ROFABÆ 39 - SIMI 68 - 93 - 10 | Irn.A
► ANDLITSBÖÐ
► HÚÐHREINSUN
SÉRMEÐFERÐ:
HULDA
► PLOKKUN
► VAX-MEÐFERÐ
► FÓTSNYRTING
► FÖRÐUN
JURTAMASKI: f. bóluhúS, f. háræðaslit,
f. eldri húS. HITAMASKI: f. þurra húS,
f. óhreina húS, f. vannærSa húS.
AUGNMASKI: f. poka og hrukkur.
SILKINEGLUR • TRIM FORM • GERUM GÖT í EYRU
Erna Guðmundsdóttir
Porgerður Pálsdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
HÁ RGREIÐSL US TOFA N CRESÍKA
Raudarárstíg 27-29, 2. hæó
Sími 22430
HÁRSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <p 62 61 62
RAKARA- db HÁRqœtÐSCMSrDFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
6.TBL. 1993 VIKAN 49