Vikan


Vikan - 25.03.1993, Síða 60

Vikan - 25.03.1993, Síða 60
INGA GUNNARSDÓTTIR í HÁRI OG FÖRÐUN að tileinka sér nýbreytni. Inga segir karla vera að sækja tölu- vert í sig veðrið á þessu sviði sem hingað til hefur einkum höfðað til kvenna. „Fólk vill nánast mánaðar- lega fá nýjar línur í hár og við þurfum því ávallt að vera með nýjungar á takteinum. Og það er farið að bera sífellt meira á því að karlar vilji breyta til,“ segir Inga en hún hefur nú starfað sjálfstætt að rekstri hárgreiðslu- og snyrtistofunn- ar Hár og förðun í tvö ár eða síðan hún yfirtók reksturinn. Og fram kemur í spjallinu við Ingu að ráðgjafarþátturinn gerist æ ríkari í starfseminni enda úr mörgu að velja, bæði hvað varðar form hárs og meðferð þess. Efnin eru orðin fjölmörg og sum hver henta betur en önnur. Sjálf segist Inga eingöngu vera með vörur frá Matrix sem hún noti til alls og ennfremur hefur hún til sölu vörur frá Sebastian. Allar eru vörurnar umhverfisvænar í takt við tímann. Tlnga, fjóróa frá vinstri, ásamt fríöu föru- neyti við krýningar- hátíö forsíöu- stúlku Vikunnar. í samtali viö Vikuna leggur Inga áherslu á aö starfs- fólk Hárs og förö- unar vinni sem ein heild. VIUA REYNA NÝTT Eins og nafnið gefur til kynna er farið mjúkum höndum um fleira en hár viðskiptavina. Þarna í Faxafeninu númer níu hefur Kristín Stefáns tekið upp samstarf við Ingu og vin- konur hennar og sér Kristín um förðunina. Sú þjónusta nýtur mikilla vinsælda og er rétt að benda væntanlegum viðskiptavinum á að panta tímanlega í hárgreiðslu og/eða förðun þannig að þeir þurfi vart annað en að smeygja sér í viðeigandi fatn- að að meðhöndlun lokinni. „Konur eru mjög viljugar til að reyna eitthvað nýtt og þær eru orðnar meðvitaðar um það hve gott útlit hefur mikið að segja í daglegu lífi. Einnig hafa margar gert sér góða grein fyrir því að ef þær líta vel út eykst þeim sjálfsörygg- ið,“ segir Inga en hún vill ekki síður líta á ýmislegt í starfinu sem listsköpun þar sem reynt er að laða fram alla bestu eig- inleika og fegurð með hár- greiðslu og förðun. Veigamikill þáttur í viðhaldi á þekkingu og leiðum til fram- fara í hárgreiðslunni er að þeir sem starfa í greininni taki virk- an þátt til dæmis í keppnum og námskeiðum sem haldin eru. Inga hefur sjálf tekið þátt í fjölmörgum keppnum og má nefna keppni í tískulínu á síð- astliðnu ári en þá kepptu reyndar allar sem á stofunni starfa. Inga hefur einnig unnið aö uppsetningu sýninga og þá ekki aðeins í hárgreiðslu held- ur einnig í fatahönnun svo dæmi sé tekið en hún sá til dæmis um sýninguna FAT ‘89. BETRI LÍÐAN - BETRA LÍF Eins og fram hefur komið gekk Inga inn í rekstur sem var I fullum gangi fyrir tveim- ur árum. Hún segist frá upp- hafi hafa lagt á það meginá- herslu að starfsfólkið ynni þar sem ein heild en hún hefur á sínum snærum fimm útlærð- ar hárgreiðslukonur og tvo nema, þessa dagana. Hún stílar einnig inn á það að fólk geri sér grein fyrir því að betra útliti fylgi betri líðan og þar af leiðandi betra Iff. Þetta byggir hún meðal annars á því að hárið sé prýði höfuðs- ins og því mikil nauðsyn að hugsa vel um það. Inga seg- ist hvetja viðskiptavini sína til þess að breyta til þegar svo ber undir ásamt því að leggja áherslu á að viðskiptavinir hiki ekki við að spyrja í þaula og leita þannig ráða um með- ferð hárs og klippingar. Og punkturinn yfir i-ið er síðan sá að öll efni eru umhverfis- væn. Inga brosir breitt þegar hún talar um fyrirtæki sitt við erindreka Vikunnar og hún segist hafa mjög gaman af því að starfa við iðnina. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. Við erum allar mjög sælar með það hvernig okkur hefur gengið og stefnum að sjálf- sögðu að því að svo verði áfrarn." □ 60 VIKAN 6.TBL. 1993
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.