Vikan - 25.03.1993, Side 66
TEXTIOG UÓSM.: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓniR / stúdíómyndir fró Vidol Sassoon
Ll NAN SOH Tl L
LON DON
Vikan ræðir viS hár-
greiSslukonur á nám-
skeiSi hjá Vidal Sassoon
Vidal Sassoon er leið-
andi fyrirtæki á sviði
hártísku og hármeð-
ferðar. Á vegum þess er rek-
inn alþjóðlegur skóli þar sem
boðið er upþ á löng og stutt
námskeið fyrir fólk í faginu.
Hárgreiðslufólk alls staðar að
sækir þessi námskeið því fyr-
irtækið er þekkt fyrir vönduð
vinnubrögð og góða tækni.
Blaðamaður Vikunnar hitti
Bryndísi Jónsdóttur, Sigríði
(Siggu) Guðmundsdóttur og
Hrönn Helgadóttur á slíku
námskeiði en þær vinna allar
á hárgreiðslustofunni Hrönn í
Austurveri í Reykjavík og sú
síðastnefnda rekur stofuna.
TÍSKAN OG TÆKNIN
BREYTIST STÖÐUGT
Hrönn fer utan á námkeið og
sýningar einu sinni til tvisvar á
ári. „Það er nauðsynlegt í
þessu starfi að fylgjast með
því að tískan og tæknin er
stöðugt að breytast." Hún
segir að haustin séu oft mjög
skemmtilegur tími því þá komi
meira fram í tískunni en á öðr-
um árstímum. „Það helst í
hendur við selskapslífið. Fólk
fer almennt meira út að
skemmta sér á veturna. Þá
eru leikhúsin opin og árs-
hátíðir og hvers kyns skemmt-
anir algengari."
Það vekur athygli að þær
eru þrjár á sama námskeiðinu
en þær eru sammála um að
þær fái mikið út úr því.
Bryndís, Hrönn og Sigga í London ásamt Dananum Henrik (t.v.), listráðu-
naut Vidal Sassoon, og Friz, gestakennara á námskeiöinu frá Toronto í
Kanada.
Bryndís aö Ijúka viö einn kollinn á námskeiöinu og Sigga viö annan
í baksýn.
„Þannig sjáum við hlutina frá
fleiri sjónarhornum og deilum
reynslunni."
Á hárgreiðslustofunni Hrönn
vinna alls sex fulllærðar hár-
greiðslukonur og tveir nemar.
Hrönn segir að til að reynslan
nýtist sem best á stofunni
haldi þær innanhússnámskeið
og síðan séu alltaf æfinga-
kvöld einu sinni í viku. Þá ráða
þær ráðum sínum og æfa sig.
Hvers mega svo viðskipta-
vinirnir vænta í vetur þegar
þeir setjast í stólinn og hleypa
hárgreiðslukonunum í Austur-
veri f hárið á sér?
FRJÁLST OG EÐLILEGT
„Áherslan er lögð á fríhendis-
klippingu," segir Sigga. „Allt á
að vera laust og létt og klippt
eftir tilfinningu fremur en millí-
metramáli."
Hárið á að hafa eðlilegan
blæ og tilfinningin fyrir ein-
staklingnum er ráðandi. Bryn-
dís bendir á að þannig sé far-
ið að nota meira en áður það
sem er í hárinu. Sveipir og
önnur ólánsfyrirbæri, sem fólk
hefur löngum eytt ómældri
vinnu í að reyna að fela, eru
nú látnir njóta sín í klippingu.
í stuttu máli er kjarni hár-
tískunnar, sem Vidal Sassoon
boðar í vetur, að endurspegla
anda frelsis og áhersla er
lögð á litun (jarðliti), form,
áferð og mismunandi sídd en
fyrst og fremst á klippingin að
vera einstaklingsbundin. □
◄ Svart og
slétt og
eölilegt. Þessi
minnir óneit-
anlega á tón-
listarmanninn
Neii Young en
hann hefur
haft þessa
hárgreióslu
síöan á
Woodstock-
hátíöinni 1970
-dHáriöáaó
hafa eólilegan
blæ og til-
finningin fyrir
einstakl-
ingnum er
ráöandi
► „Allt á aó
vera laust
og létt og
klippt eftir
tilfinningu
fremur en
mllli-
metramáli.