Vikan - 25.03.1993, Side 79
íslandshönd. Linda Péturs-
dóttir hefur líka fengið hana til
samstarfs við sig við nýstofn-
aða umboðsskrifstofu sína,
Wild. Um þessar mundir vinn-
ur Kristín með Ijósmyndaran-
um Max Bradley sem tekur
myndir fyrir nýtt, breskt tísku-
blað sem heitir Bite en hann
er hér á vegum Lindu Péturs-
dóttur.
„Ég rétt gef mér tíma til að
koma við heima til að gefa
hundinum mínum í svanginn
en það er átta ára kínverskur
pug. Mér finnst gaman að
koma víða við og vil ekki festa
mig í einhverju einu,“ segir
Kristín. „Ég hef verið free
lance síðastliðin þrjú ár og
kann því vel.“
VIKAN hefur ekki farið var-
hluta af handbragði Kristínar
en hún hefur farðað margar
stúlknanna sem hafa trónaö á
forsíðum blaðsins síðustu tvö
árin.
Þótt kvölda taki er ekki þar
með sagt að vinnudegi Krist-
ínar sé lokið því þá taka við
námskeiö í kjallaranum hjá
henni. Þar leiðbeinir hún kon-
um um daglega förðun. Nám-
skeiðin hafa verið geysivinsæl
og segir Kristín færri hafa
komist að en vildu. En hvernig
hófst þetta allt?
„Ég lærði snyrtifræði hjá
Maríu Dalberg á Snyrtistofunni
Maju. Þá var ekki búið að inn-
lima fagið í skólakerfið. Nú er
þetta þriggja ára nám í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti."
Kristín lét ekki þar viö sitja
heldur bætti förðunarnámi við
snyrtifræðina, fór í skólann
Complexion International í
London. Þegar heim kom
opnaði hún Snyrtistofuna NN
sem hún rak í sex ár en seldi
fyrir um það bil þremur árum.
Þá hafði hún þegar tryggt sér
umboð fyrir No Name og Gale
Hayman vörurnar og vinnan
sem því fylgdi tók meiri og
meiri tíma eftir því sem um-
fangið varö meira. í byrjun
seldi Kristin þessar vörur ein-
ungis sjálf en núna dreifir hún
þeim til um það bil þrjátíu út-
sölustaða.
Myndir af mörgum kunn-
ustu fyrirsætum okkar hafa
einmitt prýtt auglýsingaspjöld-
in frá No Name. Þar ber að
nefna Elínu Reynisdóttur,
sem var kjörin fyrsta forsíðu-
stúlka Samútgáfunnar, Jónu
Björk Helgadóttur en Magnús
Hjörleifsson tók myndina af
henni og hlaut fyrstu verðlaun
i Ijósmyndasamkeppni fyrir
hana. Þá tóku þær Linda Pét-
ursdóttir, Unnur Steinson og
Laufey Bjarnadóttir, sem var
kjörin forsíðustúlka Vikunnar
1991, við og um þessar
mundir er verið að kynna
sjöttu stúlkuna. Það er Nanna
Guðbergsdóttir sýningarstúlka
og þátttakandi í keppninni
um titilinn feguröardrottning
Reykjavíkur. Þetta veggspjald
er með nokkru öðru sniði en
hin fyrri.
„Já,“ segir Kristín. „Þetta er
gjörbreyting og ég ætla að
stefna að því aö hafa þetta
sem breytilegast héðan í frá.“
Snúum okkur nú að ný-
afstaðinni íslandsmeistara-
keppni. Hún var haldin á
Hótel íslandi 7. mars síðast-
liöinn og var keppt í hár-
greiðslu, fatahönnun - sem er
nýjung - og í förðun. í förðun-
inni var keppt í fimm flokkum,
þaö er að segja dagförðun,
tísku- og samkvæmisförðun,
Ijósmyndaförðun, leikhúsförð-
un og fantasíuförðun.
„Þetta var bráðskemmtileg
keppni. Þaö voru um þrjú
hundruð keppendur saman-
lagt, þar af milli fimmtíu og
sextíu sem kepptu í föröun.
Ég tók þátt í þremur flokkum."
Kristín fór enga erindis-
leysu f förðunarkeþþnina þar
sem hún sigraðir í tveimur af
þeim þremur flokkum sem
hún tók þátt f.
„Já, ég vann í dagförðun og
Ijósmyndaförðun en lenti í
öðru sæti í tísku- og sam-
kvæmisförðun."
Kristín Hlín Pétursdóttir var
módel Kristínar í dagföröun.
Hún var klædd sem brúöur og
hafði reyndar litla brúðarmey,
Guðríði Jóhannesdóttur, sér
viö hlið og hana farðaði Krist-
ín líka.
í Ijósmyndaförðuninni var
sýningarstúlkan Birna Braga-
dóttir verkefni Kristínar en
henni var stillt inn í umgjörð
sem átti að vera forsíða hins
fræga tískublaðs Vogue. Það
eru ekki síst hugmyndir sem
slíkar sem vekja athygli og
undirstrika sjálfa förðunina.
Þórey fris Halldórsdóttir var
módel fyrir tísku- og sam-
kvæmisförðun Kristínar.
Keppnin hófst klukkan ellefu
að morgni og stóð með hléum
til klukkan að ganga sjö um
kvöldið. Stöðugur straumur
fólks var allan daginn til að
fylgjast með handbragði fag-
fólksins. Keppendur dreifðu
sér um allt húsið en að end-
ingu voru sýningar á sviði og
svo verðlaunaafhendingar.
„Hárgreiðslu- og förðunar-
sýningar sem þessar hafa
verið haldnar í sex ár og það
er Pétur Melsted sem er frum-
kvöðullinn," segir Kristín.
„Þetta er hins vegar þriðja
árið sem keppt er og hefur
hróður keppninnar borist víða
því keppendur frá Færeyjum,
Englandi, Kína og Hong Kong
hafa tekið þátt í henni í gegn-
um tíðina.“
Þegar hér er komið sögu er
Kristin farin að ókyrrast og lít-
ur á klukkuna. Hún á að vera
mætt í öðrum bæjarhluta eftir
A Frá
vinstri:
Kristín
Hlín Pét-
ursdóttir,
Guðríóur
Jóhannes-
dóttir,
Birna
Bragadótt-
ir og Þórey
íris Hall-
dórsdóttir.
stutta stund. Þar bíður hvít-
þvegið andlit einhverrar fyrir-
sætunnar eftir að Kristin laði
fram fönguleika heimskon-
unnar. Við tefjum Kristínu því
ekki lengur og brátt sést undir
iljarnar á henni þar sem hún
tekur á sprett eftir ganginum
með föröunartöskuna undir
annarri hendinni og bíllyklana
í hinni. □
SUZUKISWIFT
3 DYRA, ÁRGERÐ1993
*
*
*
*
*
Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu.
Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraöið.
Framdrif.
5 gíra.
Verð kr. 795.000 á götuna, stgr.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 SlMI 685100
SPARNEYTINN BlLLÁVÆGU VERÐI
6. TBL. 1993 VIKAN 79