Vikan


Vikan - 29.07.1993, Blaðsíða 17

Vikan - 29.07.1993, Blaðsíða 17
Romeo Gigli, t.v., kom aðeins fram fyrir myndavélarnar fyrir sýninguna. Myndin varö eiginlega til fyrir slysni því maöurinn hlaut aö vera frægur. fram undir berum himni að mestum hluta. Sýningarfólkið kemur innan úr skemmu sem virðist yfirgefin og búin að missa hlutverk sitt. En hvað sem hún hefur hýst, þessi skemma, áður fyrr þá er hún miðdepill sýningarinnar, það er að segja þangað til sýning- in hefst. KANNSKI ÖRYGGISVÖRÐUR Ég fer snemma á staðinn til að þurfa ekki að slást við marga Ijósmyndara um pláss, hef nefnilega heyrt að þetta sé barningur. Þeir eru ekki margir komnir þegar íslend- ingurinn mætir með græjurn- ar. Ekkert smá Ijósmyndara- legur, með þrjár linsur auka og stórt flass. Ekkert smá Ijós- myndaralegur svona til að byrja með, á meðan enginn er mættur. En smám saman tín- ast þeir inn á svæðið, inn fyrir girðinguna sem afmarkar það svæði sem okkur er skammt- að. Enginn í jakkafötum. Helst gallabuxur og bolur. Úps! Eins og álfur út úr hól frá íslandi. Ber mig vel, teinréttur. Gæti jafnvel verið leyniþjónustu- maður eða öryggisvörður! Læt á engu bera enda skiptir fatnaðurinn engu máli og eng- inn virðist veita þessum fárán- legu hugrenningum og augna- gotum á klæðnað annarra at- hygli. Eftir því sem fleiri koma inn í girðinguna og hjörðin stækk- ar vex tækjakosturinn. Sumar linsurnar eru svo langar að þeir hljóta að verða að passa að þær rekist ekki f sýningar- fólkið. Og nú er jakkafatagrey- ið orðið hálf vesældarlegt. Það er að verða þröng á þingi því allir virðast þurfa að vera á sama fermetranum að taka myndir. Einhver kemur til sparifataljósmyndarans og spyr hvort hann megi ekki tylla sérfyrirframan hann. - Ja, bitte! svarar íslending- urinn því hinn hafði spurt á þýsku. Eitthvað fór svarið undarlega í þann sem spurði því hann glápti skilningsvana á íslendinginn sem hann hafði sennilega haldið að væri Þjóðverji. - Æ, fyrirgefðu, elsku kall- inn minn, hvað er ég að bulla, fáðu þér endilega sæti hvar sem þú vilt vera! bæti ég við upp á vort ylhýra og bendi gestrisinn út fyrir girðinguna. Þetta skildi hann, settist á töskuna sína, leit á mig og spurði: - Okey? - Já, já, ekki málið. EINHVER MERKILEGUR Nú eru gestir farnir að streyma inn á svæðið og margir komnir í sætin sín. Stólaraðir beggja vegna gönguleiðar sýningarfólks eru merktar með nöfnum og hvar- vetna gefur að líta konur og karla, bograndi yfir stólum að leita sæta sinna. Fyrir framan Ijósmyndarahrúguna stað- næmist fólk. Það er aðallega klæðnaður, förðun og atgervi fullorðinnar konu í hópnum sem vekur athygli íslendings- ins. Hann ætlar að taka mynd. En þá kemur einhver gaur í 15. TBL. 1993 VIKAN 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.