Vikan - 29.07.1993, Blaðsíða 52
TEXTI: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR / MYNDIR: GÍSLIÞÓR o.fl.
ÉG VAR AÐ
KOMA FRÁ
LONDON
- ÚR HÖLLU
DROTTNINGAR
VIKAN KYNNIR SÉR OPNUN
BUCKINGHAM-HALLAR
1. Inngangur sendiherra drottningar. 2. Aö hinum konunglegu hesthúsum.
3. Aó svölum drottningar. 4. Danssalur ríkisins. 5. Borósalur ríkisins.
6. Bláa viöhafnarstofan. 7. Tónlistarherbergiö. 8. Stiginn glæsilegi.
9. Málverkasafn. 10. Hvíta viöhafnarstofan. 11. Græna vióhafnarstofan.
12. Hásætissalurinn. 13. Aöalinngangurinn. 14. Aöalsalurinn.
15. Kínverska borösstofan. 16. Hliöarinngangurinn.
Fáar byggingar laða að
fleiri ferðamenn en
Buckingham-höllin í
London enda heimili einnar
umföluðustu konungsfjöl-
skyldu heims. Hingað til hafa
þeir sem leggja leið sína
þangað þó orðið að láta sér
nægja að berja útveggina
augum frá rammgerðum hlið-
um og girðingum, nema ef
vera skyldi kötturinn í barna-
gælu Stefáns Jónssonar sem
fór og veiddi mýsnar. En nú er
þess skammt að bíða að hlið
og dyr opnist til að aðrir for-
vitnir ferðalangar geti
< ......... iliilll llli.il iiiiM llliill llliM
Greinarhöfundur ásamt tveimur lögreglumönnum viö eina
opna hallarhliöiö sem ætlaö er starfsfólki, en löggæsla
veröur mikil þegar dyr Buckingham-hallar opnast almenningi.
skyggnst inn í þessar konung-
legu vistarverur.
Eftir brunann í Windsor-
kastala sl. vetur, sem olli tug-
milljónatjóni, ákvað Elísabet
Bretadrottning að opna að-
gang að Buckingham-höll þeg-
ar hún er sjálf í öðrum bústöð-
um sínum og afla þannig hluta
þess fjár sem áætlað er að
þurfi til viðgerða á kastalanum.
Buckingham-höll mun því
verða opin til sýningar fyrir
gesti og gangandi frá og með
7. ágúst nk. í þær átta vikur
sem drottningin er í sumarfríi.
ALDREI VERIÐ OPIN
ALMENNINGI
Saga Buckingham-hallar er
ekki mjög gömul en þetta er í
fyrsta skipti sem dyr hennar
opnast almenningi í þau rúm-
lega 200 ár sem hún hefur
verið aðsetur krúnunnar og
sennilega er þetta eina kon-
ungshöllin í heiminum sem
dregur nafn sitt af aðals-
manni. Það var John Seffield,
hertogi af Buckingham, sem
árið 1702 réð William Winde,
leiðandi arkitekt þess tíma, til
að hanna höfðingjasetur á til-
komumesta stað borgarinnar.
Húsið komst í konunglegar
hendur árið 1762 þegar Ge-
org III keypti það fyrir 28.000
pund og varð því fyrst kon-
unglegur íverustaður þegar
hann ásamt Charlotte drottn-
ingu sinni og 18 ára syni
þeirra flutti þangað inn. Hús-
inu var hins vegar aldrei ætl-
að að vera opinber bústaður
konungs heldur festi hann
kaup á þvi til að Charlotte
Hvíta vió-
hafnar-
stofan er
afar glæsi-
leg. Hún
er skreytt
hvítu og
gylltu, en
Ijósgulur
er einnig
ráóandi
litur.
gæti flutt þangað ef hann dæi
á undan henni.
Við ríkistöku Georgs IV,
árið 1820, var framtíð Buck-
ingham-hússins hins vegar
ráðin.
52 VIKAN 15.TBL. 1993