Vikan - 29.07.1993, Blaðsíða 60
TEXTIOG UOSMHJALTIJON SVEINSSON
Eins og endranær mun Siggi Reim tendra bálköstinn á Fjósakletti á föstudagskvöld.
Þeir munu halda uppi fjörinu
á þjóöhátið ásamt fjölda
annarra skemmtikrafta -
Helgi Björnsson í SSSól og
Árni Johnsen alþingismaöur
og brekkusöngvari.
Iþrottafelagiö Tyr, sem stendur aö
þjóöhátíðinni þetta áriö, hélt mjög svo
frumlegan blaöamannafund úti í Elliðaey
þar sem dagskráin var kynnt. Þar mætti
Gísli Helgason, Eyjapeyi og flautuleikari
eins og ýmsir aðrir þeir sem koma munu
fram á þjóöhátíö. Árni Johnsen tók
hraustlega á móti.
IOGAÍNIR
DANSANDI
LYSA
TJOLD
Knattspyrnukappar Týs munu klæöast treyjum merktum
Samútgáfunni Korpus í sumar en þaö eru einmitt Týrarar
sem halda þjóöhátíöina í ár. Hjá leikmönnunum ungu standa
þeir Pétur Steinn Guömundsson sölustjóri útgáfunnar t.v. og
Sigurgeir Sigmundsson framkvæmdastjóri Týs.
- A ÞJOÐHATIÐ
í EYJUM
jóðhátíðin í Vest-
mannaeyjum um versl-
unarmannahelgina
verður nú haldin í 119. skipti
en það var árið 1874 sem
eyjaskeggjar héldu hana í
fyrsta sinn. Tilefnið þá var að
þeir komust ekki vegna veð-
urs til hátíðahaldanna í landi
þar sem minnst var þúsund
ára byggðar á Fróni. íþróttafé-
lög Eyjamanna, Týr og Þór,
hafa annast hátíðahöldin í
Herjólfsdal síðan 1920 og að
þessu sinni er það Týr sem á
leikinn og búist er við metað-
sókn.
Mikið verður um dýrðir f
Eyjum þjóðhátíðardagana
eins og endranær. Bæjarbúar
láta ekki sitt eftir liggja frekar
en fyrri daginn og setjast að
mótsdagana í Dalnum þar
sem hvít hústjöld þeirra
mynda götur, stræti og torg á
stóru svæði. Aðkomufólk mun
vafalítið skipta mörgum þús-
undum enda er þjóðhátíðin
líkast til orðin vinsælasta úti-
hátíð verslunarmannahelgar-
innar. Flugleiðir og Herjólfur
hafa aukið við ferðum vegna
hátíðarinnar og hafa gefið út
sérstaka áætlun sem gildir
dagana 27. júlí - 4. ágúst.
Margt verður sér til gamans
gert f Herjólfsdal þar sem
fram fer skemmtidagskrá sem
hefst síðdegis og stendur
jafnan fram á morgun föstu-
dag, laugardag og sunnudag.
Meðal þeirra hljómsveita sem
koma munu fram eru t.d. SS-
Sól, Todmobile, Pláhnetan og
Hálft f hvoru, Herramenn,
Blúsmenn Andreu og Rokka-
billyband Reykjavíkur. Einnig
verður sérstök dagskrá fyrir
börn og hefur verið sérstak-
lega vandað til hennar. Því
má heldur ekki gleyma að þeir
sem meira gaman hafa af að
stíga dansinn að gömlum og
góðum sið, - með öðrum orð-
um að iðka gömlu dansana,
hafa til þess sérstakan pall.
Fastir liðir verða á dag-
skránni eins og endranær og
mun nú Siggi Reim tendra
brennuna á Fjósakletti einn
ganginn enn á föstudags-
kvöldinu. Árni Johnsen verður
þá heldur ekki langt undan og
mun hann leiða brekkusöng-
inn af þeim knáleika sem hon-
um einum er lagið. □
60 VIKAN 15.TBL. 1993