Vikan - 29.07.1993, Blaðsíða 19
um kvennanna sleppti voru
pilsin oft mjög aðskorin, þröng
um hnén meö klauf að aftan.
Á hinn bóginn voru karl-
mannafötin meira í jarölitatón-
um, grá og brún, oft Ijósleit.
Yfirleitt var ekki mikiö um mis-
munandi liti í fötum karlanna
en því brá þó fyrir stöku sinn-
um. Nema náttúrlega hvað
skóna varöar eins og aö fram-
an segir. En þaö sem eftir
stendur eftir sýninguna er að
hún var alls ekki öfgakennd
og þar sást mikið af fötum
sem höföa til hins almenna
kaupanda. Gigli hefur víst orö
á sér fyrir að vera dálítið villtur
í hönnun. Og sýningin höföaöi
líka til okkar íslendinga, eig-
um við að segja persónulega,
því þar sprangaði um grundu
og skemmu íslensk stúlka,
starfandi viö sýningarstörf í
Mílanó.
RAKEL HIÁ GIGLI
Hún heitir Rakel og er Hall-
dórsdóttir. Svo óheyrilega ó-
heppilega vildi til aö þegar
hún birtist fyrir framan
linsurnar var sparifataljós-
myndarinn aö skipta um
filmu. Rakel gekk hringinn
sinn engu aö síður óhindraö.
Vikan náöi hins vegar tali af
Rakel og spuröi fyrst að því
hvenær hún heföi komið til
Mílanó.
„Ég fór 30. maí. Áöur en aö
sýningunni kom var ég búin
aö fara í reynslutökur en hafði
reyndar hafnað þremur tilboö-
um um vinnu.“
Af hverju?
„Vegna þess að í tveimur
tilfellum átti ég aö vinna fyrir
hárblaö og í bæöi skiptin átti
að klippa á mér hárið. Það
vildi ég ekki, er að safna,“
segir Rakel og hlær við. í
þriöja tilvikinu var um auglýs-
ingu aö ræöa. Þar átti hún aö
vera hálfnakin sem kom ekki
til greina.
Hvernig er valið í sýningar
eins og fyrir Romeo Gigli?
„Maður fer bara á staðinn
meö möppuna sína. Þegar ég
kom þangað var löng röð af
sýningarfólki fyrir utan. Þá var
tekin prufumynd af manni og
búiö! Eftir þeim var síöan val-
iö.“
Hvað með æfingar?
„Fyrir þessa sýningu var
ekkert æft. Þeir voru bara
meö myndir af fyrirsætunum
og þær notaöar til aö ákveöa
hver yröi í hverju. Þegar við
komum í mátun daginn fyrir
sýningu hangir myndin af
manni við þá flík sem maöur á
aö vera í. Myndin af mér var
viö stóran, rauðan jakka og
gylltar, röndóttar pokabuxur.
Ég mátaöi fötin og þá voru
teknar tvær myndir. Daginn
eftir mætti ég og þá var mynd-
in af mér viö fötin og hin
myndin uppi á vegg ásamt
myndum í röð af öllum öörum
sem tóku þátt í sýningunni.
Þannig var rööin á okkur
skipulögö," segir Rakel. „Þetta
var þara tveimur tímum fyrir
sýningu. Síöan vorum viö látin
ganga hringinn en ekkert sagt
til um hvernig viö ættum aö
haga okkur. Við áttum bara
að labba.“
Þið hafið ekki spjallað við
Romeo Gigli, sjálfan?
„Nei. Hann kom ekkert ná-
lægt því aö velja sýningarfólk-
ið. Ég sá honum aðeins
bregða fyrir á sýningunni en
ekkert meira."
Og hvað er á döfinni?
„Ég er vonandi á leiðinni til
Japan í haust eftir prufur sem
ég fór í. Þaö hentar mér á-
gætlega aö vera þar því ég er
ekki mjög há og launin þar
eru líka mjög góð,“ segir
Rakel Halldórsdóttir.
FYRIRSÆTUR
FRÁ ÍSLANDI
Nokkuö margar íslenskar fyr-
irsætur starfa eöa hafa starf-
aö í Mílanó. Á dómkirkjutorg-
inu í Mílanó hitti blaðamaður
Vikunnar sex fulltrúa úr þess-
um íslenska fljóöafjöld. Þetta
eru þær Nanna, Hrönn, Birna,
Valdís, Árný Hlín og Erla.
Þarna úti starfa þær fyrir þar-
lendar umboösskrifstofur en
aö heiman koma þær frá
lcelandic Models.
Og þaö var ekki aö sjá ann-
aö en glatt væri á hjalla þegar
Vikumyndavélin var munduö.
Meira aö segja svo glatt aö
ungir sveinar, sem áttu leiö
um torgið, reyndu aö fá teknar
af sér myndir meö fyrirsætun-
um. Þeir áttu sem sagt aö fá
aö velja sér eina og ráöa á
ýmsa lund fyrirkomulagi
myndatökunnar. Þetta tóku
stúlkurnar ekki í mál. Ekki
varð því annaö úr fyrisætu-
störfum strákagreyjanna en
aö þeim var sagt aö hypja sig
meö nokkrum vel völdum orð-
um á íslensku. Þeir settu upp
súran svip en létu sér ekki
segjast heldur fylgdu í humátt
á eftir okkur eftir því sem
myndatökurnar færðust innar
á torgiö og loks inn á veitinga-
staö þar sem spjallað var upp
á vort ylhýra. Þegar þeir sáu
aö væntanlegir lífsförunautar
yröu þeim ekki skipaöir úr
þessum fagra hópi gáfust þeir
upp og reru á önnur miö. Seg-
ir ekki meira af feröum þeirra.
GLAPSTIGUPÆLINGAR
En af okkur íslendingum er
þaö aö segja aö okkur gengur
bara ágætlega aö sitja fyrir og
sýna á Ítalíu. Samkeppnin er
geysilega hörð og ef marka
má frásagnir stúlknanna er líf-
iö ekki bara dans á rósum.
Freistingarnar eru á hverju
strái og margir vilja ná nánum
kynnum við fyrirsæturnar.
Þær segjast oft þurfa að bíta
frá sér með kjafti og klóm
þegar menn gerast ágengir
með alls kyns gylliboöum,
gjöfum og giamúrboðum ým-
islegum. Ríkir karlar og ríkra
manna synir beita töfrabrögð-
um peningafólksins sem mest
þeir mega. Ef ekki á illa að
fara mega dúllurnar sko vara
sig því gloríuloforðin eru oftar
en ekki innantóm og lítils viröi
þegar menn hafa fengið það
sem þeir vilja. Lífshlaupiö er
víst yfirleitt ekki innifaliö. Aö
nálgast dóp er víst einnig hiö
minnsta mál. Þaö er yfirleitt í
boöi og ókeypis fyrir fagrar
konur! Þá veröa þær nefni-
lega svo tilkippilegar. Stúlk-
urnar sex, sem Vikan spjallaöi
við, voru mjög meðvitaðar um
þessar hættur allar saman og
töluðu um þær í líkum dúr og
um forðboðna ávexti Paradís-
ar. Hins vegar geta stúlkur
sem líta ekki við gapandi
freistingaginum samkvæmis-
Ijónanna látiö fara vel um sig
innan um hinar raunverulegu
lystisemdir og notið þeirra í
því hófi og upp að þeim mörk-
um sem eðlileg geta talist.
Þaö kom fram aö fyrirsæturn-
ar veröa fyrst og fremst að
hugsa um sjálfar sig. Engu
skiptir hvað aörir vilja gera fyr-
ir þær, yfirleitt er ekkert að
marka þaö og flagð er oftar
en ekki undir fögru skinni.
Stöldrum ekki lengur viö
glapstigupælingarnar heldur
hugum aö því sem þær hafa
fyrir stafni, stúlkurnar sex.
Vikuna ber raunar að garði á
rólegum tíma, um mitt sumar.
Aöalannirnar fyrir stúlkurnar
eru í september og október
annars vegar og síöan í janú-
ar og febrúar hins vegar. Ef til
vill af þeim sökum tókst aö ná
þeim svo mörgum saman á
einn staö. Og þaö var tilvalið
aö nota þetta tækifæri til aö
grennslast aðeins fyrir um
þaö hvaöa verkefnum þær
hafa verið að sinna upp á
síðkastið.
NÓG AÐ GERA
Nanna kom til Mílanó í sumar-
byrjun. Hún haföi áöur veriö í
Vín, Prag og Bratislava aö
vinna viö tískusýningar. Eftir
aö hún kom til Mílanó tóku viö
sýningarstörf á tískusýningum
og svokallaðar viöskiptasýn-
ingar eða showroom, eins og
það er kallað. Þá sýna fyrir-
sæturnar viðskiptavinum
framleiðendanna það sem
þeir vilja skoða. Þetta er eins
konar tískusýning þar sem
viðstaddir geta fengið aö
koma viö flíkurnar og fleira í
þeim dúr. Nanna mun enn-
fremur að öllum líkindum
koma fram í sjónvarpsauglýs-
ingum fyrir íþróttaskó.
Hrönn kom til Flórens á ítal-
íu í byrjun maí. Þar var hún í
þrjár vikur og kom síöan til
Mílanó. Þar hefur hún starfað
viö myndatökur fyrir vörulista
og hártískublað og síöan viö
tískusýningar. Erla kom í byrj-
un júní og hefur mest veriö
viö viðskiptasýningar. Hún
mun starfa viö þær áfram
fram í október fyrir hina ýmsu
aöila auk þess sem hún mun
væntanlega einnig koma fram
i sjónvarpsauglýsingu fyrir í-
þróttaskó ásamt Nönnu. Birna
kom til Mílanó frá Vín. Hún
hefur starfað við fyrirsætustörf
við myndatökur, hvort tveggja
fyrir svokallað „magasín’’ og
fyrir vörulista. Birna var hins
vegar á leiö heim til íslands.
Valdís kom til Mílanó í janú-
ar en segist alltaf vera á leið-
inni heim. Hún hefur starfaö
mikið við viðskiptasýningar,
setiö fyrir vegna veggspjalda,
fyrir hártískublað og starfaö
viö margar tískusýningar. Þá
hefur hún komið fram í sjón-
varpsauglýsingu. Árný Hlín
kom í byrjun maí til Ítalíu og
eyddi fyrstu vikunum í Flór-
ens. Hún hefur veriö að vinna
fyrir hártískublaö og að sýna
á allnokkrum viöskiptasýning-
um.
Annað verður ekki séö en
aö þær hafi feikinóg að gera,
stúlkurnar þarna úti. Allt er
þetta liður í því aö koma sér á
framfæri og dagarnir mikið
puö við það. Venjulegur dagur
hefst á því aö þær „tékka sig
inn” á skrifstofurnar, fara í
„casting", eins og þær kalla
það sjálfar. Þar fá þær aö vita
hvort og þá hvaö þær eiga aö
vinna viö þann tiltekna dag.
Stundum þurfa þær að fara út
fyrir borgina og því eru ferða-
lögin drjúgur hluti í lífi og starfi
fyrirsætunnar. Tilbreytingar-
leysi er því væntanlega víös
fjarri og greinilegt á stúlkunum
þarna úti aö þeim leiðist lífið
lítiö. Þær geta nefnilega vel
haft af öllu tilstandinu gagn og
gaman, takist þeim á annað
borö aö forðast refilstigur og
glapræöi. □
15.TBL. 1993 VIKAN 19