Vikan - 29.07.1993, Síða 27
en hann sjálfur getur breytt
þessu ástandi, því miöur. I líf-
inu höfum viö sem betur fer
val. Viö getum valið að tapast
alveg eins og viö getum valiö
aö bjargast viö flóknar og niö-
urlægjandi aöstæöur eins og
dæmin sanna.
SKILNINGSGJÁ
OG SEKTARKENND
Hann er í þeim ham núna að
finna sökudólga í foreldrum
sínum og kenna þeim um
hvernig málum er háttaö í til-
veru hans. Eiginmaöur Tótu
hafnar þeim ásökunum en
gerir hana aftur á móti ábyrga
fyrir ónytjungshætti sonarins
og ásakar hana um eftirgjöf
viö piltinn frá upphafi. Hans
eigin ótti við ástandiö virðist
aö þessu leyti snúast algjör-
lega upp í andhverfu sína og
skapa magnaöa skilningsgjá
á miili þeirra hjóna. Þaö er vit-
anlega fráleitt af eiginmannin-
um að hlaða Tótu stöðugri
sektarkennd og enn þá fráleit-
ara er fyrir hana að láta hon-
um takast slíkt því þaö veldur
henni sálarangist.
AÐSTOÐ SÉRFRÆÐINGA
MIKILVÆG
Hvorugt þeirra getur að því
gert hvernig komiö er fyrir
drengnum. I svona málum
væri satt best að segja mjög
eðlilegt fyrir þau hjónin aö
leita sér hjálpar sérfræöings á
sviöi sálrænna vandamála,
svo sem geðlæknis, sálfræö-
ings eöa félagsráðgjafa. Þau
geta þannig fengiö faglega
ráðgjöf og leiðbeiningar um
hvernig eölilegast sé að
bregðast viö þeim vanda sem
hefur skapast í fjölskyldunni.
Sérfræðingur myndi jafnframt
geta skoöað í gegnum þau
mögulega fjötra fortíöarinnar í
samskiptum þeirra þriggja, ef
þeir eru þá nokkrir. Hafi þeir
aftur á móti veriö er hyggilegt
aö uppræta þá. Betra er aö
reyna að sameinast um
mögulegar lausnir til léttis
fremur en aö falla í gryfjur á-
sakana.
FÁVÍS OG ÓÁBYRG
LÍFSGANGA
Hvaö varöar aftur á móti
stööugar ásakanir drengsins
um aö þau hafi brugðist er
heilmikið viö aö athuga. Á
meðan allir eru til dæmis ó-
mögulegir í hans augum
nema hann sjálfur tekst hon-
um aö viðhalda aumu ástandi
sínu og hreinlega afneita öll-
um raunverulegum staöreynd-
um í sínum málum. Þaö segir
aö hann þarfnast sárlega
hjálpar. Sannleikurinn er
nefnilega sá aö á meðan
neytandinn kemst upp meö
aö telja sér og öðrum trú um
aö allir aðrir en hann sjálfur
beri ábyrgö á axarsköftum
hans - og skaffi honum enn-
þá frekari tækifæri til neyslu -
eykst vandi hans. Á slóðum á-
byrgðarleysisins viö sjálfan
sig, fjölskyldu sína og samfé-
lagiö getur hann vandræöalít-
iö haldiö sinni fávísu lífsgöngu
áfram. Þaö getur svo eölilega
oröiö honum ennþá frekari
fjötur um fót.
FREKLEGUR REKSTUR
OG VOND MÁL
Þaö er vel athugandi og
reyndar eölilegt aö setja hon-
um öll þau mörk sem mögu-
legt er aö finna út til þess að
hann að lokum átti sig á aö
eitthvað meira en lítið er bog-
iö við framferði hans. í fram-
haldi af þvi getur hann leitaö
sér réttrar hjálpar. Hann ætti
reyndar strax aö fara í meö-
ferö hjá til þess gerðum meö-
ferðarstofnunum og þar á
hann aö þiggja alla þá hjálp
sem fæst. Þaö hlýtur aö verða
dráttur á þessari framkvæmd
ef hann getur sífellt látið for-
eldra sína ala önn fyrir sér.
Hann er þegar kominn í vond
mál vegna afbrota. Foreldrar
hans eiga alls ekki að standa
straum af freklegum rekstri
hans og kannski kunningj-
anna lika.
ÓSMEKKLEGAR
AÐDRÓTTANIR
OG ÓRÉTTMÆTAR
Hann lætur sér aldrei segjast
ef ekki veröa aö þessu leyti
teknar upp nýjar og ögn
harkalegri aðferöir viö hann.
Þaö má þvi segja sem svo aö
hvaö þetta varðar hafi pabbi
hans rétt fyrir sér. Hann geng-
ur þó skref ásakana fremur
ósmekklega vegna þess að
hann segir Tótu beinlinis ala á
vandræðum drengsins og þaö
er óréttmætt. Hún hefur staöiö
sig vel en ekki ennþá fengið
viðeigandi hjálp til frekari
breytinga. Eilíf tilhneiging
mannsins til aö ýta inn hjá
henni sektarkennd flýtir ör-
ugglega ekki fyrir lausn þessa
vanda og heldur ekki aðdrótt-
anir um að hún hafi gert mis-
tök i uppeldi drengsins. Þaö
hefur alls ekki veriö sannað á
hana meö til þess gerðum
rökum og rannsóknum og
verður væntanlega mjög erfitt
aö gera slíkt því mannleg
samskipti geta verið afstæð
líka.
FRJÁLST VAL OG VON-
LAUS NÆTURSTAÐUR
Áhyggjur Tótu vegna þess aö
sonur hennar er á vergangi
og sefur á götum úti eru mjög
eölilegar. Málið er bara aö
hann hafnar þvi aö nokkuð sé
athugavert hjá sér og kýs þar
af leiðandi að lifa því lífi sem
meðal annars býður upp á
þaö aö oftar en ekki er notast
viö vonlausan næturstað. Eöa
eins og konan með sektar-
kenndina sagöi eitt sinn aö
gefnu tilefni viö vini sína:
„Elskurnar mínar, hér á
árum áöur taldi ég mig
ábyrga fyrir öllu sem miður
fór í kringum mig og mína.
Af þeim ástæöum var sekt-
arkenndin alveg aö drepa
mig. Núna veit ég svo sann-
arlega betur og veit meira
aö segja aö ég get ekki bor-
iö ábyrgð á þvi hvernig mín-
ir nánustu kjósa aö lifa líf-
inu. Þeir hafa val rétt eins
og ég og frjálsan vilja aö
auki. Þeir geta sem sagt
klúðraö lífi sínu eöa staöiö
sig og komist í hóp sigur-
vegaranna.
Meö vinsemd,
Jóna Rúna
Móöirin
skrifar
m.a. um
son sinn:
„Hann
hefur lent
í lögregl-
unni hvaö
eftir
annaö og
á heil-
mikiö eftir
óuppgert
við lögin
vegna
þjófnaöar-
mála og
hvers
kyns
afbrota
annarra
sem ýmist
eru ný-
tilkomin
eöa
gömui.
15.TBL. 1993 VIKAN 27