Vikan - 29.07.1993, Side 36
YORKSHIREMAÐU
SMÁSAGA EFTIR ERIC KNIGHT
Sam Small sannfæröist ekki um þaö
smám saman aö hann gæti flogiö - þaö
kom yfir hann allt í einu. Hann hafði far-
iö meö Mully um kvöldiö niöur í Los Angeles
til þess aö hlusta á systur Minnie Tekel Up-
harsin Smith á samkomu í Musterinu. Sam
hafði ekki langað til aö fara en áöur en lauk
varð hann aö viðurkenna aö þetta hefði
reyndar ekki veriö svo vitlaust og Mully var frá
sér numin af hrifningu.
Eftir fyrsta sálminn bað systir Minnie allt
kalifornískt fólk aö standa upp og taka í hend-
ur hinna er viðstaddir voru og segja: „Guö
blessi þig, bróðir eöa systir," eftir því sem við
átti.
Sam varö dálítið hvumsa þegar bráöókunn-
ugt fólk fór aö taka í höndina á honum en
Mully þótti gaman aö þvi. Þegar systir Minnie
baö allt útlent fólk aö standa upp og segja frá
hvaðan þaö væri fór Mully að leggja aö Sam
aö gera þaö. En Sam vildi ekkert viö þaö
eiga. Fólk fór aö hrópa aö þaö væri frá Þýska-
landi, Ítalíu, Kína og Hawaii, þaö var meira að
segja frá Indlandi.
Loks stóðst Mully ekki mátiö. Hún hnýtti
hattbandinu þétt undir hökuna, reis á fætur og
kallaði eins hátt og hún gat: „Herra og frú
Sammywell Small, Powki thorpe Brig, Hudd-
ersfield, Yorksha, England."
Svo settist hún niöur, kafrjóö í framan, en
allir viöstaddir klöppuðu. Kona frá loway, sem
sat næst henni, gaf sig á tal viö hana og Mully
lýsti því yfir aö Kalifornía væri yndislegasti og
vinalegasti staðurinn sem þau hjónin heföu
fyrirhitt á ferð sinni umhverfis jörðina.
Sam reyndi aö láta sér fátt um finnast en
jafnvel hann fór að leggja við hlustirnar þegar
systir Minnie hóf ræöu sína.
Ræöan bar titilinn „Trúin flytur fjöll". Allt
byggist á trúnni, sagöi systir Minnie og hún
var svo trúuö aö hún vissi að færu þessi 5000
systkini niður til San Bernhardioni gætu þau
flutt Boldyfjallið tíu fet nær sjónum. Auðvitað
væri ekki ráölegt aö reyna þaö því aö mikiö
rask væri því samfara aö flytja fjall um tíu fet.
Jarðfallið öörum megin fjallsins gæti legið um
ágætis landareignir og ruöningurinn hinum
megin væri skaölegur Kaliforníu. Samt sem
áöur var trúin dásamleg; ef bræöurnir og syst-
urnar voru nógu trúuö væri enginn sá hlutur til
sem þau gætu ekki gert. Enginn!
Samkomunni lauk meö sálmasöng. Fyrst
söng annar helmingur áheyrenda og síðan
hinn, til þess að vita hvor heföi meiri hljóö. Aö
því loknu ruddust allir til dyra.
Þegar Mully og Sam stóöu á horninu og
voru aö bíöa eftir strætisvagninum gat Mully
loksins stuniö upp: „Ég veit nú ekki hvernig
þér hefur líkað, Sammywell, en mér fannst
voöa gaman og ég held aö þetta sé alhuggu-
legasti staðurinn sem viö höfum rekist á í
ferðalaginu.
Sam vissi ofurvel aö þessi ummæli hennar
voru þáttur í árásarherferð þeirri sem haföi
þaö markmið aö fá hann til aö vera um kyrrt í
Kaliforníu. Hvorki Mully né Lavinia, dóttir
þeirra, létu neitt tækifæri ónotað til að hrósa
staðnum. Vinnie langaði aö vera kyrr svo aö
hún gæti orðið kvikmyndastjarna;
Mully vildi ekki fara vegna þess að hún var
svo hrifin af því að pálmatré yxu í landi hvítra
manna. Þess vegna voru þær alltaf að sýna
Sam fram á aö hann ætti ekkert erindi til Eng-
lands þar eö hann væri hættur aö starfa sök-
um aldurs og væri auk þess sæmilega efnað-
ur.
Sam þóttist vita aö þær mundu fá sínu
framgengt að lokum en þó reyndi hann að
streitast á móti. Hann snýtti sér og sagði:
„Ójá, þaö er alls ekki sem verst hér, þegar
öllu er á botninn hvolft. Þó vildi ég nú gefa tíu
skrotuggur fyrir aö vera kominn heim í Arnar-
krána í kunningjahópinn, með ölkrús fyrir
framan mig og arineld til að ylja á mér end-
ann.“
Mully fussaði. „Sammywell, sagði ég þér
ekki aö fá þér hreinan vasaklút áður en viö
fórum út í kvöld!“
Sam vissi aö hann mundi bíöa ósigur ef
hann léti hafa sig út í pex um smámuni svo
hann stakk bara klútskömminni í vasann og
þagði. Mully hélt áfram aö nöldra og narta í
hann - eins og konum er lagið; og loks hætti
Sam aö hlusta á hana - eins og menn gera
undir slíkum kringumstæðum.
Og meðan hún hélt áfram aö nudda var
hann önnum kafinn viö aö hugsa um trúna.
Hann var aö velta því fyrir sér hvort hóþur af
samtaka fólki gæti í raun og veru flutt fjall úr
staö - þótt ekki væri nema einn eöa tvo þuml-
unga. Honum fannst auðskiliö að sá sem ætl-
aöi aö flytja eitthvaö meö trú yröi aö byrja á
einhverju auðveldara fyrst og auka síðan
verkefnin uns hann legði í fjallið. Strætisvagn
væri ágætur til aö byrja meö - og þar sem
hann væri á hjólum gæti maður sagt aö þaö
væri síst til að spilla.
Sam lokaði því augunum og sagöi viö sjálf-
an sig; „Ég trúi því aö þegar ég opna augun
veröi strætisvagn kominn.“
Hann haföi ekki fyrr sagt þetta viö sjálfan
sig en Mully rak olnbogann í síöuna á honum
svo mælandi: „Vaknaöu, dauöyfliö þitt!“
Hann lauk upp augunum og þarna stóö
strætisvagninn fyrir framan hann.
Sam varö bæöi forviða og ánægöur. Þetta
gat auðvitað veriö hreinasta tilviljun en þaö
var samt ímyndunarefni. Og Sam var aö
hugsa um þetta alla leiðina heim.
Sam og Mully fóru úr vagninum hjá Strand-
götu og gengu hægt heim aö gistihúsinu þar
sem þau bjuggu. Mully þótti gaman að ganga
eftir þessari götu - hún var friðsamleg, róm-
antísk og svo suðræn. Hún liggur meöfram
bjargbrún, langt fyrir ofan ströndina; þaðan er
hægt aö horfa yfir trjágiröinguna, niður á hallir
kvikmyndastjarnanna og út yfir hafiö.
Þegar þau voru komin móts viö hús Marion
Davies staönæmdust þau og horföu yfir grind-
verkið. Sam var ennþá hugsi. Hann tottaði
pípuna í ákafa, horföi út á sjóinn og hugsaði.
Þaö var á þessu augnabliki sem hann varö
altekinn af hinni furðulegu fullvissu. Ef til vill
stafaði þaö af því aö hann stóö svo hátt uppi
eftir aö hafa hlýtt á ræöuna og haföi orðiö fyrir
hinu kynlega atviki meö strætisvagninn. Hver
svo sem orsökin var þá var hann fullkomlega
sannfæröur um að hann gæti flogið. Hann átti
erfitt með aö standa kyrr.
„Mully," sagöi hann, „stundum finnst mér aö
maður gæti hent sér hérna fram af og flogið ef
maöur heföi nógu mikla trú.“
„Já, ef!“ sagöi Mully og saug upp í nefið.
Það var svo sem ekki mikla uppörvun aö
sækja til hennar. En því er svo varið meö
Yorkshiremann aö því meiri andstööu sem
hann mætir þeim mun ákveðnari veröur hann.
„Jæja þá,“ sagöi Sam viö sjálfan sig, „ég er
viss um aö maður gæti gert það - ef trúin
væri nógu sterk.“
Þegar hann var háttaður um kvöldið fór
hann aö hugsa um hve gaman væri að geta
flogið til þess að geta sýnt Mully fram á aö
hún hefði á röngu aö standa. Svo fór hann aö
trúa því, trúa því statt og stööugt aö hann
gæti flogið. Hárin risu á höföi hans þegar
hann varö þess var allt í einu aö hann fór aö
lyftast hægt og hægt upp úr rúminu.
Hann átti bágt meö aö skilja þetta. Hann
fálmaði meö hendinni undir líkama sinn. Þaö
var satt! Hann náði ekki niður í rúmiö meö
hendinni. Hann varð svo hissa að hann lét sig
detta ofan í rúmið til þess aö geta íhugað mál-
iö. Þaö marraöi í dýnunni viö fallið og Mully
hreytti út úr sér: „Sammywell, ef þú hættir ekki
að hamast svona í rúminu sef ég í stólnum.
Sam ákvaö aö bíöa þar til Mully væri sofn-
uö og gera þá aöra tilraun en svo illa tókst til
aö hann sofnaði sjálfur.
Þegar hann vaknaöi morguninn eftir var
hann fyrst aö hugsa um aö segja Mully allt af
létta. En þaö var ekki svo auðvelt um hábjart-
an daginn, þegar sólin skein á morgunverðar-
þoröiö og Mully og Lavinia sátu þarna svona
eðlilegar og rólegar. Sam sagöi því aðeins:
„Mig dreymdi skrítinn draum í nótt, Mully. Mér
fannst ég vera aö fljúga."
„Hmmm,“ sagði Mully. „Hvaö sagöi nú pilt-
urinn á ferðaskrifstofunni okkur aö segja ef
viö vildum fá hér höggvinn sykur?"
„Molasykur, mamma," svaraði Lavinia.
„Já, þaö var rétt. Flýttu þér nú aö borða,
telpa mín, og komdu þér af staö. Viö áttum að
hitta kvikmyndastjórann í Coolver City klukk-
an tíu.“
Sam talaði ekki meira um flug en hann var
ákveðinn í að reyna aftur þegar hann væri
einn. Þegar Mully og Lavinia voru farnar sló
hann öskuna úr pípunni, lagðist á sófann og
einbeitti huganum. Áöur en varöi sveif hann í
lausu lofti. Hann sveif til annarrar hliöar, rúm-
lega þrjú fet frá gólfinu. Hér var ekkert um að
villast.
Hann sneri sér á kviöinn svo aö hann gæti
horft niður, hann kunni betur viö þaö. „Auðvit-
aö er þetta betra,“ sagöi hann, „hinsegin er ég
eins og fugl sem er aö reyna aö fljúga á bak-
inu. Þetta er rétta stellingin."
Hann baöaöi út höndunum og sveif aö sóf-
anum. Þegar hann var svo sem eitt fet frá
36 VIKAN 15.TBL. 1993