Vikan - 20.04.1995, Side 25
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
að slá gullhamra á jafn
snilldarlegan hátt.
EFTIR HVERJU SÆKIST
FÓLK?
Sumir geta ekki hugsað
sér að takast á við skuld-
bindingar og eru einungis á
höttunum eftir spennunni og
þeirri vellíðan sem framkall-
ast þegar morfínskyld efni
spýtast út í blóðið á fyrstu
stigum ástarinnar. Og fyrir
utan spennuna þá getur
þetta verið vítamínsprauta
fyrir sjálfstraustið. „Ef ég get
kveikt áhuga þessarar
drottningar á mér þá hlýtur
það að tákna að ég sé feiki-
legt kyntröll." Ef þessi sama
persóna hættir að hafa
áhuga getur sjálfsálitið hrun-
ið að sama skapi. Sjálfs-
traust sumra er þó í svo
miklu lágmarki að þeim
finnst að eitthvað hljóti að
vera að vonbiðlinum fyrst
hann sýni þeim áhuga þótt
ekki sé hægt að koma auga
á það í fljótu bragði.
Þegar annar aðilinn ætlar
sér eingöngu næturskemmt-
un en hinn aðilinn er ást-
fanginn getur málið orðið
erfitt. Ein af konunum hitti
mann sem hún varð mjög
hrifin af. Þau höfðu bæði
verið að vinna tímabundið
fyrir sama fyrirtækið og þeg-
ar árshátíðin stóð fyrir dyrum
var þeim báðum boðið. Þau
sátu við sama borð þegar
þau voru að borða og með
þeim tókust miklir kærleikar.
Áður en ballið var búið
kvöddu þau, fóru heim til
hans og eyddu saman nótt-
inni. Um morguninn sagði
hún honum að hún hefði
áhuga á að kynnast honum
nánar. Hann sagði fátt en
þakkaði fyrir nóttina um leið
og hún fór. Hann hringdi
aldrei og skömmu seinna,
þegar þau hittust fyrir tilviljun
á hárgreiðslustofu, varð
hann vandræðalegur og
hraðaði sér út. Það tók hana
nokkrar vikur að jafna sig á
þessu. Hún sagðist að vísu
ekki hafa gefið sig alla í kyn-
lífið af ótta við að svona
myndi fara. Einnig sagðist
hún alls ekki hafa ætlað að
sofa hjá honum svona fljótt
en þegar hún ætlaði heim til
sín kom í Ijós að hún var
læst úti og því hefði hún
bara farið heim með honum.
Og úr því sem komið var gat
hún svo sem alveg eins sof-
ið hjá honum. Það hefði nú
ekki skipt svo miklu þaðan
af. Allan tímann hljómaði
samt rödd í höfðinu á henni
sem sagði: „Þú þarft ekki að
gera þetta, þú getur hætt
við." Um leið vonaði hún að
þetta yrði til þess að það yrði
kannski eitthvað meira úr
þessu. Þegar það brást upp-
lifði hún vonbrigði og niður-
lægingu.
Vandamálið við atburði
eins og þessa er að fólk talar
ekki saman áður en það
byrjar. Ef það er ekki gert
eru miklar líkur á því að ann-
ar aðilinn verði fyrir sárum
vonbrigðum. Karlmaðurinn
hefði t.d. getað komið sér
beint að efninu og sagt eitt-
hvað á þessa leið: „Heyrðu,
elskan, ég er nú ekki ást-
fanginn og er alls ekki á leið-
inni í hnapphelduna en mér
líst nú samt svo fjári vel á
þig. Hvað segirðu um að við
skellum okkur í bólið í nótt
og látum svo bara þar við
sitja?“ Þá hefðu báðir aðilar
vitað nákvæmlega að hverju
þeir væru að ganga og hann
hefði sloppið við vandræða-
leg augnablik og tonn af
sektarkennd. Hún hefði þá
getað sagt: „Ja, því ekki að
skella sér á einn gráan, Sig-
urður minn?“ eða „Nei,
veistu að ég er alfarið á móti
kynlífi fyrir hjónaband, Gauk-
ur karlinn.“
Hún hefði líka getað sagt
eitthvað á þessa leið:
„Heyrðu, ég er mjög hrifin af
þér og gæti hugsað mér að
kynnast þér nánar. Ég er
hins vegar ekki mikið gefin
fyrir skyndikynni og þegar ég
geri eitthvað þá meina ég
það og tek það alvarlega. En
hvernig er með þig? Hvað er
það sem þú vilt?“ „Jaaa.
. .eeuu. . . .hehe. . . .það er
nú það.“
Stundum eru báðir aðilar
að leita sér að einnar nætur
gamni og eru með það á
hreinu frá upphafi. Ein vin-
konan hafði á tímabili farið
mikið út með það fyrir aug-
um að finna sér einhvern til
þess að sofa hjá um nóttina.
Svo þræddi hún barina þar
til hún fann það sem hún var
að leita að. Yfirleitt vissi hún,
um leið og hún kom inn,
hvort þetta gengi upp eða
ekki. Hún skannaði staðinn
með því að láta radarinn líða
vandlega yfir höfuð gest-
anna. Þegar augu hennar
mættu augum manns, sem
I henni leist á, þá vissi hún
Í
HAR-
TÍSKAN
Dalshrauni 13 - 220 Hafnarfirði - Sími 555 0507
FYRIR OLL
STOFUBLÓM
GARÐAIVIOLD
Hörgatún 25-210 Gbær
S: 565 8722 - fax: 565 8723
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 62 61 62
s N YRTI
S T 0 F A N
• N •
ANDLITSBOÐ/
HÚÐHREINSUN
M.D. Formulations ávaxtasýrumeðferð,
áhrifamesta húðmeðferðin
sem kostur er á í dag.
Handsnyrting - Fótsnyrting
Vaxtanieðferð - litun o.tl.
Gjafakort - góð gjöf fyrir alla
Borgarkringlunni, 4. hæö,
norðurturn, sími 568 5535 Ath. kvöldtímar á tiiiinitudögiim
\SfMf 13314
<unstc
RAKARA- <k HA^RF/ÐSU/STDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
4. TBL. 1995 VIKAN 25
NAFNSPJOLD