Vikan - 20.04.1995, Síða 32
DULRÆN MÁLEFNI
viö vissar kringumstæður.
Síðast en ekki síst eru of-
skynjanir fylgikvillar ýmissa
lyfja. Af öllum þessum þess-
um ástæðum liggur beint við
að nota vísindin til að skýra
flesta hluti, því stundum getur
fólk ekki treyst skynjun sinni.
Hér á eftir kemur saga þar
sem vísindin voru notuð til að
afhjúpa hið yfirskilvitlega.
Ein þekktasta draugasaga
■ Ein þekktasta
draugasaga á
seinni hluta þessar-
ar aldar er drauga-
gangurinn á Saur-
um á Skagaströnd.
Upp úr 1960 kom
upp sú sögusögn að
þar væru miklir
reimleikar.
á seinni hluta þessarar aldar
er draugagangurinn á Saur-
um á Skagaströnd. Upp úr
1960 kom upp sú sögusögn
að þar væru miklir reimleik-
ar. Hjónin á bænum höfðu
fundið fyrir hristingi og
skjálfta í húsinu. Borð á milli
rúma hjónanna fór að hrist-
ast um miðjar nætur, auk
þess sem myndir höfðu dott-
■ Hinar vísinda-
legu rannsóknar-
aðferðir eru viður-
kenndar í okkar
samfélagi. En aðr-
ir telja að ekki sé
hægt að nota þó
aðferð til að skýra
alla flóru mann-
heima.
ið niður af veggjum. Miðlar
voru fengnir til að athuga
hvað væri á seyði en bónd-
inn vildi fá vísindamenn til
liðs við sig og veraldlega
skýringu á draugagangnum.
Tengdasonur bóndans fékk
ungan verkfræðing til að
koma með sér á bæinn til að
athuga málið. Þeir fóru
þangað ásamt öðrum verk-
fræðingi og eðlisfræðingi.
Mennirnir komu þangað um
hánótt og inni í baðstofunni
var rökkur og þungt loft.
Þeir félagar höfðu tekið
með sér jarðskjálftamæli,
innrauðan kíki til að nota í
myrkri, ef brögð skyldu vera
í tafli, áttavita og svo bjuggu
þeir til pendúl til að athuga
þyngdarsviðið. Daginn eftir
komust þeir að því að gólfið í
húsinu hallaði talsvert og því
var skrftin tilfinning að vera
þar inni í myrkrinu kvöldið
áður. Bærinn stóð á malar-
kambi við sjávarströnd og
var grunnurinn gerður af
rekaviðardrumbum sem lágu
þvert á malarkambinn. Einn-
ig voru holrými víða undir
bænum. Félagarnir komust
að þeirri niðurstöðu að lík-
legasta skýringin á látunum
væri sú að bærinn væri
smám saman að síga í átt-
ina til sjávar. Við það mynd-
aðist spenna í rekaviðar-
drumbunum. Spennan myndi
losna í höggum þegar hún
yfirynni mótstöðuna. Því
gátu myndir hrokkið niður af
þiljum sem hölluðu tvær til
þrjár gráður. Spennan gat
líka gert það að verkum að
titringur myndaðist sem olli
því að hlutir gátu farið að
hristast. Þeir félagar voru
aðeins tvo daga á bænum
og á þeim tíma gerðist ekk-
ert. Greinilegt er af framan-
sögðu að margar mismun-
andi skoðanir og skýringar
eru á hinu yfirskilvitlega
meðal fólks. Hinar vísinda-
legu rannsóknaraðferðir eru
viðurkenndar í okkar samfé-
lagi. En aðrir telja að ekki sé
hægt að nota þá aðferð til að
skýra alla flóru mannheima.
Flestir eru sammála um það
að í nútima samfélagi sé far-
sælast að byrja á því að úti-
loka alla utanaðkomandi,
veraldlega þætti þegar
furðulegir atburðir eiga sér
stað. Þegar það hefur verið
gert er rétt að spyrja sig
hvort eitthvað sé að eiga sér
stað sem vísindin geta ekki
skýrt. Það er ekki til svar við
öllu sem gerist í okkar heimi
og því má segja að ekki sé
allt sem sýnist og sumir sjá
meira en aðrir.
NÚTÍMA FRÁSÖGN
í húsi nokkru í Reykjavík
býr maður sem þurfti að leita
til miðils. Við skulum kalla
hann Sigurð.
„Ég hef aldrei verið opinn
fyrir yfirskilvitlegum hlutum.
En af einhverjum ástæðum
fór ég og konan mín að
skynja furðuleg fyrirbæri. Ég
sá meira en konan mín en
hún heyrði meira en ég.
Þetta fór svo að ágerast og
ég vissi ekki hvernig ég átti
að bregðast við.“ Sigurður
segist hafa kynnt sér þessi
mál eftir að hann varð fyrir
fyrstu reynslu sinni og segist
í dag skilja að þetta hafi ekki
verið draugagangur í þeirri
merkingu að um svipi eða
framliðna hafi verið að ræða.
„Það sem gerðist heima hjá
mér var að reiði birtist í orku
sem var hrein illska. Þetta
kom fram á ýmsan hátt. Til
að byrja með kom svo skært
Ijós að ég hrökk aftur en
þegar ég fór að kynna mér
þessi mál kom orkan í sinni
réttu mynd. Hún gat birst
mér í ýmsum myndum og af
þessu stafaði gífurlegur kuldi
og vanlíðan. Birtist þetta f
margbreytilegri lögun og
gátu komið eldglæringar
sem stungu. Þegar á leið
fékk ég stór sár um líkam-
ann sem ekki hurfu.“ Sigurð-
ur telur að slík neikvæð orka
geti haft veruleg áhrif á and-
lega og líkamlega líðan
fólks. Fólk geti jafnvel magn-
að upp slíka orku sjálft. Hjá
honum kom þetta fram í allri
íbúðinni en mest í svefnher-
berginu áður en hann fór að
sofa. Alls kyns áþreifanlegir
hlutir fóru einnig að haga sér
skringilega.
Að lokum ákváðu þau
hjónin að leita sér hjálpar. Til
þeirra kom miðill sem rak
orkuna út úr hverju herbergi
fyrir sig en alls tók þetta um
þrjár klukkustundir. Á meðan
miðillinn rak út úr stofunni
sátu hjónin í eldhúsinu. Þau
heyrðu svo mikinn hávaða úr
stofunni að það var eins og
fjöldi manna væri að rífast.
íbúðin, sem venjulega var
mjög köld, varð skyndilega
svo heit að það var eins og
skrúfað væri frá öllum ofnum
í húsinu. Sigurður segir enn-
fremur að á meðan á bur-
trekstrinum stóð hafi mátt sjá
eldglæringar sem lýstu sér í
litlum Ijósögnum sem söfn-
uðust saman í ský. Það
dansaði eins og norðurljós
um alla íbúðina meðan á að-
gerðunum stóð. Þegar þessu
öllu var lokið voru þau öll
mjög þreytt. Miðlinum tókst
að hreinsa íbúðina og eftir
þetta hafa hjónin ekki orðið
vör við neitt af þessu tagi.
DRAUGASAGA FRÁ
ÚTLÖNDUM
Kona, sem við skulum
kalla Jónu, segist hafa orðið
fyrir hræðilegri lífsreynslu
fyrir nokkrum árum þegar
hún bjó í stórborg á megin-
landi Evrópu. Jóna leigði
íbúð í fjölbýlishúsi með konu
sem var kaþólsk. í íbúð við
hliðina á þeim bjuggu tvær
stúlkur sem kvörtuðu mikið
„Ég hef aldrei verið opinn fyrir yf-
irskilvitlegum hlutum. En af ein-
hverjum ástseðum fór ég og konan
mín að skynja furðuleg fyrirbæri. Ég
sá meira en konan min en hún heyrði
meira en ég. Þetta fór svo að ágerast
og ég vissi ekki hvernig ég átti að
bregðast við."
■ Um klukkustund efftir að hún sofn-
aði vaknaði hún við geysilegan
skjálfta. Hún fann hvernig einhver
nálgaðist rúmið hennar og sá óljósan
skugga í myrkrinu. Djúp, rám karl-
mannsrödd ávarpaði hana og sagðist
setja brennandi hönd sína á bakið á
henni.
32 VIKAN 4. TBL. 1995