Vikan


Vikan - 29.03.1999, Síða 4

Vikan - 29.03.1999, Síða 4
Kæri lesandi... Lesendur geta tekið þátt í vali á fegurðardrottningu Vikan er tímarit með langa sögu og hér á árum áður voru fegurðardrottn- ingar og tískusýningardömur oft á forsíðu Vikunnar. Keppendur í fegurð- arsamkeppninni voru líka um tíma kynntir í Vikunni og þótti lesendum mjög spennandi að spá og spekúlera í hver vœri föngulegasta stúlkan. Nú býður Vikan upp á þá nýjung að lesendur blaðsins geti valið falleg- ustu stúlkuna af keppendum í Fegurðarsamkeppni Norðurlands, og svo í næsta blaði, Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur. Myndir af þessum glœsilegu stúlkum eru á síðum 6-9 og þið getið greitt þeirri stúlku sem ykkur þykir fallegust, atkvæði með því að hringja í síma: 905-25OO. Sú sem fœr flest atkvœði les- enda verður kosin Vikustúlkan og verða úrslit tilkynnt við krýningu á Fegurðardrottningu Norðurlands 9. apríl og við krýningu á Fegurð- ardrottningu Reykjavíkur 15. apríl. Sumar stúlknanna sem sigrað hafa í fegurðarsamkeppni hafa orðið áberandi og þekktar sem fegurðardrottningar en minna hefur borið á öðrum. Sem dæmi um konur sem urðu þekktar fegurðardrottningar má nefna Bryndísi Schram og Rögnu Ragnars og hér á síðunni má sjá þœr í fríðum hópi á forsíðu Vikunnar árið 1962. Hrafnhildur Hafsteinsdóttir var kjörin Fegurðardrottning Islands 1995 og er hún dœmi um fegurðardís sem fólk man eftir. Hún prýðir forsíðu Vikunnar að þessu sinni og í viðtali á bls. 2 segir hún frá störfum sínum sem flugfreyja Itjá Atlanta í Afr- íku. Við óskum eftir samstarfi við ykkur; ágœtu lesendur, með því bjóða ykkur að taka þátt ísímavali í tengslum við fegurðarsamkeppni Norðurlands og fegurðarsamkeppni Reykjavíkur og í keppninni „Þvígleymi ég aldrei“, þar sem eru há verðlaun í boði fyrir áhugaverðustu frásögnina (bls. 55). En margt annað forvitnilegt er íþessari Viku. T.d. bá benda á grein um streitu og leiðir til úrbóta á bls. 20 og greinina I form fyrir vorið á bls. 26. Lífsreynslusögurnar sívinsælu eru tvær ogfjalla um ólík mál. Karlmaður segir frá því að hafa uppgötvað að „sonur hans“ var ekki sonur hans og kona segir frá ótta sínum um að maðurinn hennar haldi við vinkonu hennar. Og ekki má gleyma einni þekktustu lífsreynslusögu samtímans, frásögn Monicu Lewinsky af ástarsambandi sínu við Bandaríkjaforseta, en umfjöllun um nýju bókina hennar er á bls. 52. Hafið svo endilega samband efykkur liggur eitthvað á hjarta. Njótið Vikunnar Sigríður Arnardóttir ritstjóri I—» Jóhanna Þórunn Steingerður Kristín Harðardóttir Stefánsdóttir Steinars- Guðmunds rítstjóra- blaðamaður dóttir dóttir fulltrúi blaðamaður auglýsínga stjóri Guðmundur Ragnar Steingrimsson Grafískur hönnuður Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Flreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Flalldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Sími: 515 5582 Vikan@frodi.is Ritstjórafulltrúi Jóhanna Flarðardóttir Sími: 515 5637 Blaðamenn Þórunn Stefánsdóttir Sími: 515 5653 Thorunn@frodi.is og Steingerður Steinarsdóttir Sími: 515 5569 Auglýsingastjóri Kristin Guðmundsdóttir Sími: 515 5628 Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gísli Egill Flrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson Flreinn Flreinsson Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Askriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.