Vikan


Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 48

Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 48
Smásaga eftir Richard Macker. Arnfinni. Arnfinnur hélt dauða- haldi í gluggakarminn og reyndi að átt sig á því hvað væri að gerast. Hann sá glitta í rautt, reiðilegt andlit fyrir innan. Sannleikurinn rann upp fyrir honum: Nils Kristoffersen var að reyna að drepa hann. Helmer Kristoffersen sat á stól við sjúkrarúmið. Hann horfði á Erik, eldri son sinn, liggja hreyfingar- lausan á bakinu. Súrefnis- gríma huldi munn og nef. Hljóðið sem barst frá önd- unarvélinni hljómaði eins og andardráttur dauðans. Brjóst sjúklingsins reis og seig með reglubundnum hætti. Ung, sólbrún hjúkrunar- kona var að setja upp vökva í æð sjúklingsins. Helmer Kristoffersen fylgdist með hverri hreyfingu hennar. Er allt eins og það á að vera? spurði hann. Já, ég fæ ekki betur séð. Ert þú nýbyrjuð að starfa hér, ég minnist þess ekki að hafa séð þig áður? Það er vegna þess að ég er búin að vera í sumarfríi á Spáni. Ég hef starfað hér á skurðlækningadeildinni í tvö ár. Helmer Kristoffersen kinkaði kolli. Það er gott til þess að vita að til er ungt, heilbrigt fólk sem getur farið í sumarfrí. Þegar Erik hressist aftur ætla ég að bjóða honum í tveggja mánaða heimsreisu. Hjúkrunarkonan leit á hann með meðaumkvun. Síðan brosti hún vingjarn- lega. Hann kemur til með að hafa gaman af því. Helmer Kristoffersen færðist allur í aukana. Já, það er nú ekki mikið mál fyrir mig að bjóða hon- um í slíka ferð. Ég vil allt fyrir syni mína gera. Erik er aðeins 27 ára en þrátt fyrir það er hann mín hægri hönd í fyrirtækinu. Ég hef ákveð- ið að hann taki við rekstrin- um þegar hann verður þrí- tugur. Það er einmitt það. Já, hann er einstaklega duglegur og afkastamikill í vinnu. Satt að segja líkist hann mér mikið. Þetta veika hjarta kemur úr móð- urfjölskyldunni. Er það ekki undarlegt að svona myndar- legur ungur maður sé með svona veikbyggt hjarta? Hjúkrunarkonan þurrkaði háls og brjóst sjúklingsins varlega með rökum klút. Jú, svaraði hún. Jú, það er rétt. En læknavísindin ráða við erfiðustu hluti í dag. Þetta kemur allt til með að ganga vel. Við gætum hans vel þangað til við finnum handa honum nýtt hjarta. Þú mátt treysta því. Reynslan hafði kennt henni að tala við kvíðafulla aðstandendur. Ég er viss um að Erik fær nýtt hjarta áður en langt um líður, sagði Helmer Kristoff- ersen. Ungt, sterkt, heilbrigt hjarta sem gerir honum kleift að verða allra karla elstur. Erik er líkur þér, sagði hjúkrunarkonan og reyndi að skipta um umræðuefni. Sömu andlitsdrættirnir, sama líkamsbyggingin. Hún hafði rétt fyrir sér. Sjúklingurinn í rúminu var vægast sagt líkur föður sín- um. Það sem sást af andlit- inu sýndi það ótvírætt. Vissulega er hann líkur mér, sagði Helmer Kristoff- ersen. En eftir hjartaáfallið liggur hann hér alveg ósjálf- bjarga. Þetta er svo órétt- látt. Þú átt annan son, er það ekki? spurði hjúkrunarkon- an. Jú, hann heitir Nils og hann er einnig líkur mér. Við tveir erum fæddir með sterkt hjarta. Við erum góð- ir félagar. Við stöndum saman í blíðu og stríðu, eins og sagt er. Og nú einbeitum við okkur að því að Erik nái heilsunni aftur. Þetta á allt eftir að ganga vel, sagði hjúkrunarkonan. Helmer Kristoffersen leit á klukkuna. Ur grófu, rauð- leitu andlitinu mátti lesa vissa sálarró. Hann var bú- inn að bíða lengi eftir lífs- marki frá Erik, en hann var þekktur fyrir að vera þolin- móður maður. Dyrnar að sjúkrastofunni opnuðust og inn kom yfir- læknir sjúkrahússins, eldri læknir, með gleraugu og hrukkótt enni. Hann var al- varlegur í bragði og hjúkr- unarkonan yfirgaf herbergið eftir að þau höfðu skipst á nokkrum orðum, lágri röddu. Helmer Kristsoffersen stóð upp úr stólnum. Hann horfði á manninn í hvíta sloppnum. Er eitthvað nýtt að frétta? Það var þreytusvipur á fölu andliti yfirlæknisins. í nokkrar sekúndur stóð hann og horfði niður fyrir sig. Já, en það eru slæmar fréttir. Hvað meinar þú? Gengur ykkur illa að finna hjarta- gjafa? Yfirlæknirinn andvarpaði. Svo dró hann djúpt að sér andann og horfði beint í augu Helmer Kristoffersen. Ég veit satt að segja ekki hvernig ég á að fara að því að segja þér þetta, sérstak- lega undir þessum kringum- stæðum. En hjá því verður ekki komist. Fyrir stundu var komið hingað með ung- an mann sem hafði fallið niður af háhýsi. Ég sá strax að þarna var kominn Nils, sonur þinn. Hann hefur svo oft komið í heimsókn til bróður síns að ég var ekki í nokkrum vafa að þetta var Nils. Skilríkin sem fundust á honum staðfestu það. Helmer Kristoffersen gekk aftur á bak og studdi sig við vegginn. Það var ekki blóðdropi í andliti hans og hann átti erfitt með and- ardrátt. Þetta getur ekki verið satt! Segðu mér að þetta sé einhver misskilningur! Það getur ekki verið að þetta sé Nils! Er hann mikið slasað- ur? Hann er í öndunarvél og satt að segja er hann mjög alvarlega slasaður. Hann er heiladauður og ég vil ekki gefa þér falsvonir. Helmer Kristofferson lét sig falla þungt niður í stól. Þungur líkaminn titraði og skalf. Yfirlæknirinn lagð hönd á handlegg hans. Ég geri mér grein fyrir því hversu hræðilegt þetta er fyrir þig. En alltaf má finna glætu í myrkrinu. Nils er með sterkt og heilbrigt hjarta. Með þínu samþykki get ég nú þegar hafið skurð- aðgerðina og Erik getur öðlast nýtt og betra líf. Helmer Kristoffersen sat hreyfingarlaus í stólnum. Augnaráðið var flöktandi, andardrátturinn þungur og óreglulegur. Hvað vilt þú að ég geri? Samþykkir þú þetta? Feiti maðurinn stóð snögglega á fætur, lyfti krepptum hnefunum og glennti upp rauðsprengd augun. Hryglukenndur and- ardráttur reyndi að brjóta sér leið úr hálsi hans. Yfirlæknirinn, rétt náði því að grípa Helmer Kristoffersen áður en hann féll andvana í gólfið. 48 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.