Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 38
Prjónað úr
Mandarin
Classic
(^Hr. 22TIHHfl) 10QD/o bómu,|
Falleg sígild jakkapeysa
fer vel við kfól, bils eða buxur
Jakkinn er með laskaermum,
sem er auðveld ermaísetning.
Upplýsingar um hvar
Tinnugarnið fæst
i síma: 565-4610
Stærðir á flikinni sjálfri:
(2) 4 (6) 8 ára
Yfirvídd: (72) 77 (82) 87 sm
Sídd: (35) 38 (42) 45 sm
Ermalengd: (20) 24 (27) 31 sm
Mandarin Classic 100% egypsk bómull, fæst
í 18 litum.
Gult 717/2315
Fjöldi af dokkum: (5) 6 (7) 8
ADDI prjónar frá TINNU
60 sm hringprjónar nr. 3 og 3,5
Mælum með BAMBUSPRJÓNUM frá ADDI
Tölur: (5) 5 (6) 6
Hægt er að hafa tölurnar fleiri ef óskað er.
Jafanál
miðja á ermi byrjið hér
Gott að eiga: Merkihringir, prjónanælur,
þvottamerki fyrir Mandarin Classic.
PJÓNFESTA Á MANDARIN CLASSIC:
22 lykkjur á sléttu prjóni = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
FRAM - OG BAKSTYKKI: Fitjið upp á prjóna nr.
3,5 (179) 195 (211) 227 lykkjur. Prjónið fram
og til baka. Byrjið frá réttu með munstur A
þannig: Prjónið 1 kantlykkju, (hún er ekki talin
með og sést ekki á munstri) byrjið við örina og
prjónið munstrið út prjóninn, endið á 1 sléttri +
1 kantlykkju. Kantlykkjurnar prjónast alltaf
sléttar. Ljúkið við að prjóna munstur A, og á
næsta prjóni (réttunni) er prjónað slétt, jafnframt
er fellt af eins og munstur sýnir. Eftir úrtökuna
er á prjóninum sami lykkjufjöldi og í byrjun.
Prjónið áfram 3 prjóna slétt prjón = 2 garðar.
Prjónið 1 umferð munstur B og fellið af (20) 24
(28) 32 lykkjur jafnt yfir prjóninn = (159) 171
(183) 195 lykkjur á prjóninum. Prjónið áfram
munstur B og prjónið kantlykkjuna áfram, (hún
er ekki talin með og sést ekki á munstrinu).
Þegar munstur B hefur verið prjónað er prjónað
munstur C þar til að bolurinn mælist (22) 24
(27) 29 sm. Endið á réttunni. Skiptið nú bolnum
frá röngunni þannig: Prjónið (34) 37 (40) 43
lykkjur, fellið af næstu 10 lykkjur, prjónið (71) 77
(83) 89 lykkjur, fellið af næstu 10 lykkjur, prjónið
síðustu (34) 37 (40) 43 lykkjurnar. Leggið bolinn
til hliðar meðan ermarnar eru prjónaðar.
ERMAR: Fitjið upp á prjóna nr. 3,5 (51) 55 (59)
63 lykkjur. Prjónið munstur fram og til baka
þannig: (1) 3 (5) 7 sléttar, prjónið munstur A
þrisvar sinnum, (2) 4 (6) 8 sléttar. (Aukalykkjurn-
ar 2 eru kantlykkjur, prjónast sléttar og teljast
ekki með). Þegar munstur A hefur verið prjónað
er fellt af eins og munstur sýnir. Eftir úrtökuna
er á prjóninum sami lykkjufjöldi og þegar byrjað
var. Á næsta prjóni (röngunni) er prjónað slétt
og jafnframt er fellt af (6) 8 (10) 12 lykkjur jafnt
yfir prjóninn = (45) 47 (49) 51 lykkja á prjónin-
um. Prjónið 2 prjóna slétt prjón = 2 garðar.
Prjónið áfram munstur B, teljið út frá örinni sem
sýnir miðju á ermi og aukið jafnframt út 1 lykkju
hvorum megin með (1,5) 2 (2) 2 sm millibili. Eft-
ir munstur B er munstur C prjónað og aukið
áfram út þar til að (63) 67 (73) 77 lykkjur eru á
erminni. Þegar ermin mælist u.þ.b. (20) 24 (27)
31 sm endið þá á sömu munsturumferð og á
bol til að ermar og bolur prjónist rétt saman.
Fellið af 5 lykkjur hvorum megin. Setjið ermina
á prjónanælu og prjónið hina ermina eins.
LASKAÚRTAKA: Setjið nú ermarnar á prjóninn
þar sem fellt var af 10 lykkjur fyrir handveg og
setjið merki á hver samskeyti = (245) 265 (289)
309 lykkjur á prjóninum. Prjónið áfram munstur
C, byrjið frá réttu og prjónið þar til 2 lykkjur eru
eftir á hægra framstykki, takið 1 lykkju óprjón-
aða, prjónið næstu lykkju, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir. Prjónið tvær fyrstu lykkjurnar á
erminni saman, endurtakið þessa úrtöku á 3
næstu samskeytum (ermi og bolur). Prjónið
brugðið til baka á röngunni. Fellið af á þennan
hátt á öllum 4 samskeytunum (þar sem merkin
eru) í öðrum hverjum prjón þar til að (21) 22
(23) 24 lykkjur eru eftir á hvoru framstykki.
Fellið af fyrir hálslíningu í byrjun á hverjum
prjóni (4) 5 (6) 7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3
sinnum (ATHUGIÐ: Laskaúrtakan heldur áfram
óbreytt) og 1 lykkju þar til að allar lykkjurnar á
framstykkjunum eru felldar af.
HÁLSLÍNING: Skiptið yfir á prjóna nr. 3 og takið
upp meðfram hálsmálinu (72) 74 (77) 80 lykkj-
ur. Prjónið 5 prjóna slétt prjón = 3 garðar. Fellið
af frá röngu, hvorki of laust né of fast.
LISTAR: Takið upp með prjóni nr. 3 u.þ.b. 11
lykkjur á hverja 5 sm meðfram öðru framstykk-
inu. Prjónið 5 prjóna slétt = 3 garðar. Fellið af
frá röngu ekki of fast. Merkið fyrir tölum, þeirri
fyrstu á miðja hálslíninguna og þeirri neðstu við
garðana á eftir munstri A, hinar með jöfnu milli-
bili, eins margar og óskað er. Prjónið hinn list-
ann eins en með hnappagötum á 3. prjón.
Hnappagat: Fellið af 2 lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur
í næstu umferð.
FRÁGANGUR: Saumið blómin í með einföldu
garni á bol og ermar í hvert gat á munstri B eins
og skýringarmynd sýnir. Saumið ermar saman
og saumið affellinguna á ermum við affellinguna
á bol. Saumið tölur í. Saumið Mandarin Classic
þvottamerki innan í peysuna.
□ = rétt á réttu, brugðið á röngu
0 = brugðið á réttu, rétt á röngu
@ = sláið bandi upp á prjóninn
g = 2 réttar saman
y = Prjónið 2 lykkjur saman með því að fara
I aftan í lykkjurnar
= takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 2 lykkjur
saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
[^l = Prjónið aðra lykkjuna slétta fyrir framan
fyrstu lykkjuna án þess að taka hana af
vinstri prjóninum. Prjónið fyrstu lykkjuna
slétta og sleppið báðum lykkjunum yfir á
hægri prjóninn.
= Prjónið aðra lykkjuna slétta fyrir aftan fyrstu
lykkjuna án þess að taka hana af vinstri
prjóninum. Prjónið fyrstu lykkjuna slétta og
sleppið báðum lykkjunum yfir á hægri prjóninn.