Vikan


Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 25

Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 25
FYRIR ALLA - KONUR OG KARLA vegna þess að jóga krefst mikillar ögunar sem aftur auðveldar okkur að halda einbeitingunni. Unga fólkið er svolítið vanræktur hópur að þessu leyti, það er á sí- felldum hlaupum í stað þess að staldra við og hugsa mál- ið. Konur hafa hingað til verið duglegastar að stunda jóga, en sífellt fleiri karlar bætast í hópinn.“ „ í nútímaþjóðfélagi eru margir haldnir ótta og kvíða. Margir óttast í raun ^ og veru óttann sjálfan mest n. af öllu,“ segir Ingibjörg að e> lokum. „Fólk sem stundar 3 jóga lærir að meðtaka um- “ hverfið öðruvísi. Jóga kenn- n ir okkur að við þurfum ekki | að forðast tilfinningar okkar S| og auðveldar okkur að mæta þeim á réttan hátt.“ 3 Ingibjörg Sigurjónsdóttir er jógakennari hjá lík- amsræktarstöðinni Þokkabót og Jógastúdíói í Kópavogi. Sjálf hefur hún iðkað jóga í nokkur ár og útgeislun hennar er líklega besta auglýsingin sem hægt er að hugsa sér. Hún segir að jóga sé líkamsrækt sem allir geti auðveldlega tekið þátt í. „Jóga er á margan hátt öðruvísi en önnur lík- amsrækt. Æfingarnar eru rólegri og stefna að því að komast í betri tengsl við til- finningarnar, líkamann og sjálfan sig í gegnum öndun- ina. Þar sem æfingarnar eru rólegar og mjúkar er nánast engin hætta á meiðslum og þess vegna er jóga tilvalin líkamsrækt fyrir fólk á öll- um aldri.“ Margir sem leiða hugann að því að spreyta sig á jóga hætta kannski við þegar þeir sjá í hugan- um myndir af fólki í undarleg- ustu stellingum og jafnvel svíf- andi yfir gólfflet- inum. Þarf maður ekki að vera liðugur til þess að gera jógaæfingar? „Með því að komast í betri tengsl við sjálfa þig hættir þú að bera þig saman við aðra. Hér byrja allir á sama punkti. í byrjun sérðu kannski næstu manneskju gera hitt og þetta af mikilli mýkt og hugsar með þér að þetta takist þér aldrei. En af því að allar æfingarnar, hvort sem það eru öndunar- eða teygjuæfingar, eru gerðar hægt, mjúklega og rólega og af virðingu fyrir líkamanum þá ferðu aldrei fram úr sjálfri þér og bætir þig stöðugt hvern einasta dag. Segjum sem svo að fólk stundi jóga tvisvar til þrisvar í viku, sem er ekki óalgengt, þá eykur það get- una á hverjum einasta degi. Arangurinn kemur fljótlega í ljós og það er gefandi og hvetjandi að finna hvað maður er í rauninni fljótur að ná tökum á þessu.“ Allar jógaæfingar miða að slökun. „Það er mikilvægt að kunna að slaka á. Þá eyðum við ekki orkunni í vitleysu heldur nýtum hana til fulls. Besta slökunar- tæknin er að vera meðvitað- ur. Oft tölum við um að við „Við getum lært að segja hingað og ekki lengra, við get um ráðið því sjálf hvernig við bregðumst við umhverfinu.“ séum löt, það felur ekki endilega í sér að nenna ekki að gera hitt eða þetta, frek- ar það að hafa ekki orku til þess. Með því að læra að slaka á endurnýjar þú þig og fyllist orku á stuttum tíma. Með æfingunum för- um við í gegnum bæði and- lega og líkamlega slökun og lærum að hafa stjórn á því hvernig orkunni er varið. Það eru svo mörg neikvæð áreiti í umhverfinu sem hafa áhrif á okkur. En við getum lært að segja hingað og ekki lengra, við getum ráðið því sjálf hvernig við bregðumst við umhverf- inu.“ Ingibjörg seg- ir jóga vera fyr- ir alla aldurs- hópa, jafnt konur sem karla. „í flestum, ef ekki öllum, jógastöðvum eru til útfærslur sem henta hverjum og einum. Það er byrjað á auðveldum æfing- um og síðan farið dýpra og dýpra inn í stöðuna. Þannig er jóga fyrir alla aldurs- hópa, unglinga jafnt sem eldra fólk. Jóga er t.d. góð líkamsrækt fyrir skólafólk, Vikan 25 Texti: Þórunn Stefánsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.