Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 9
Maja Eir
Kristinsdóttir
(173 sm) verður tvítug í júní. Hún er
frá Bakkafirði en er búsett á Akureyri
þar sem hún er nemandi í Verk-
menntaskólanum. Hún nefnir
skemmtilegt fólk sem sitt helsta
áhugamál og það að kynnast stelp-
unum og einhverju nýju sem ástæðu
fyrir þátttöku sinni í keppninni. „Ég
þurfti samt langan umhugsunarfrest
áður en ég sagði já við því að vera
með,“ segir Maja og viðurkennir að
það hafi aðallega verið umtalið sem
truflaði hana. „Það eru allir mældir
svo út sem taka þátt í fegurðarsam-
keppni. En ég ætla að standa mig og
er ekkert kvíðin fyrir sundbolaatrið-
inu,“ bætir hún við og hlær.
Sigurborg
Bjarnadóttir
(168 sm) erfrá Möðruvöllum í Hörgárdal. Hún
er 19 ára og á 3. ári í Menntaskólanum. Sigur-
borg segist hafa gaman af því að ferðast,
skemmta sér, fara í bíó og stunda líkamsrækt
og það að komast í gott form hafi ekki dregið úr
áhuganum að taka þátt í keppninni. „Ég tók
mér smá tíma til að ákveða mig um þátttöku en
ég var hvött áfram af vinum mínum sem sögðu
að þetta væri spennandi tækifæri. Þetta tekur
að vísu ansi mikinn tíma frá skólanum og
þessu fylgir kostnaður en ég sé ekki eftir að
hafa sagt já.“ Það er dómaranna að dæma um
það hver sigrar á úrslitakvöldinu. En ef hún
væri dómari, hvaða einkunn gæfi hún sjálfri
sér? Hún brosir að spurningunni. „Ég er sko
óhæf til að segja nokkuð um það.“
Svana Rún
Símonardóttir
(173 sm) verður 18 ára í ágúst. Hún er
ættuð frá Dalvík og er á 3. ári í Mennta-
skólanum á Akureyri. Þegar hún er
spurð út í áhugamál segir hún þau aðal-
lega vera hesta, ferðalög og skíði, en
svo bætir hún við ...“ætli það sé ekki
bara ýmiss konar útivera.“ Svana er
langyngst fjögurra systkina og tók önnur
systir hennar þátt í fegurðarsamkeppni
Norðurlands á 9. áratugnum. Svana
segir að hún hafi hvatt sig til að taka
þátt í keppninni og sjái hún ekki eftir því
þótt hún hafi þurft að hugsa sig aðeins
um í upphafi. „Það var aðallega út af
þeirri gagnrýni sem stelpur sem taka
þátt í keppninni fá á sig,“ segir hún. Að-
spurð um hennar möguleika til að sigra
segist hún ekkert spá í þá. „Ég er hérna
til að hafa gaman af en auðvitað vona
ég að maður standi sig vel,“ segir
Svana.
Vikan 9