Vikan


Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 46

Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 46
Smásaga eftir Richard Macker. KÓNGULÓARMAÐURINN Fyrir venjulegan mann væri þetta verkefni óðs manns æði, en fyrir kóngulóarmanninn væri það eins og að drekka vatn. Ekki sakaði það að góð laun voru í boði. Hversu löglegt verkefnið var og hvað það var, skipti ekki máli. Hver hefur efni á því að velta slíku fyrir sér þegar hálf milljón er í boði fyrir tveggja tíma verk. Auðvitað get ég það. Fyrir mig er ekkert auðveldara en að klifra upp húsveggi. Arnfinnur hallaði sér aft- ur í stólnum og sjálfsöryggið skein úr sterklegu andlitinu. Flann var 24 ára, vel vaxinn og vöðvastæltur. Það sást móta fyrir sterklegum upp- handleggsvöðvunum þegar hann notaði hendurnar til þess að leggja áherslu á orð sín. Eftirmiðdagssólin skein á svalirnar á stóra einbýlis- húsinu uppi á hæðinni. Eig- andinn, Helmer Kristoffer- sen, strauk svitann af enn- inu með bláum silkivasa- klút. Hann var feitur, and- stuttur, þrjátíu árum eldri og sextíu kílóum þyngri en Arnfinnur. Hann vildi að- eins það besta. Þess vegna hafði hann leitað til Arn- finns, eða „kóngulóar- mannsins", eins og hann kallaði sig þegar hann sýndi klifurleikni sína. Eg skal veðja hausnum á mér upp á að ég kemst upp þennan vegg án nokkurra vandræða, sagði Arnfinnur. Þú skalt ekki hafa höfuð þitt í flimtingum ungi mað- ur. Svo mikið hef ég lært í skóla lífsins. Og ekki hjart- að heldur. Fyrir nú utan það þá hlýtur maður í þinni at- vinnugrein að þurfa að hafa sterkt hjarta. Er langt síðan þú fórst síðast í læknisskoð- un? Ég þarf ekkert á því að halda. Ég veit að pumpan í mér kemur til með að standa sig næstu hundrað árin. Gott og vel. En hvað með fjölskyldu þína? Er hún ánægð með þetta undarlega starfsval? Hvaða fjölskylda? Ef þú ert að meina Maríu gömlu frænku, þá er hún fyrir löngu komin á elliheimili. Sem betur fer kemur mér einum við hvað ég geri. Arnfinnur tæmdi glasið. Svo hallaði hann sér aftur og teygði úr löngum, sterk- legum fótleggjunum. Hann var afslappaður og það var ekki annað að sjá en að þar færi afslappaður og áhyggju- laus maður. Helmer Kristoffersen virti unga manninn fyrir sér og brosti. Hann hafði svo sann- arlega dottið í lukkupottinn. Fáðu þér annan drykk, sagði hann. Nei takk. Of mikið af þessu eitri er hættulegt heilsunni. Helmer Kristoffersen blandaði sér sterkan drykk. Síðan sagði hann: Ef þú treystir þér til þess að klifra upp þennan vegg án hjálpartæka þá ert þú maðurinn sem ég leita að. Hvers vegna vantar þig mann til þess að klifra upp vegg á skrifstofubyggingu um miðja nótt? Það er mitt mál. Meira færð þú ekki að vita. Þitt mál? Er þetta kannski eitthvað ólöglegt? Þungur líkami Helmer Kristoffersen hristist af hlátri. Ólöglegt? Hvað heldur þú eiginlega að ég sé, ungi maður? sagði hann og veif- aði höndunum í kringum sig. Líttu í kringum þig. Allt þetta og mikið meira til hef ég eignast með mikilli vinnu og á heiðarlegan hátt. Arnfinnur leit í kringum sig. Dyrnar inn í stofuna voru opnar. Stofan var yfir- full af dýrum húsgögnum. Stórum garðinum fyrir utan var vel við haldið og í enda hans var tvöfaldur bílskúr. Fyrir utan bílskúrinn stóð stífbónaður, grænn Jagúar. Jæja, sagði Helmer Kristoffersen. Ertu með? Þú lítur út fyrir að vera sterkur maður, alla vegna hvað fjármálahliðina varðar. Helmer Kristoffersen hristist aftur af hlátri. Ég skil sneiðina ungi maður. I heilan mannsaldur hef ég unnið eins og skepna og hef ekki haft rnikinn tíma aflögu til þess að stunda líkamsrækt. Oft öf- unda ég vöðvabúnt eins og þig. A hinn bóginn á ég nóga peninga til þess að kaupa allt sem hugurinn girnist. Reynslan hefur kennt mér að allt er falt fyr- ir peninga. Hvernig er það annars? Getur þú lifað góðu lífi af klifursýningum? Arnfinnur ók sér í stólnum. Ég er ekki kröfuharður maður. Og ég nýt þeirra for- réttinda að geta sameinað tómstundagaman og at- vinnu. Það er meira en margur maðurinn getur sagt. Já, þar hefur þú rétt fyrir þér. En snúum okkur þá að viðskiptunum. Ég borga þér hálfa milljón út í hönd ef þér tekst ætlunarverkið. Ég get ímyndað mér að það taki þig varla meira en tvo tíma. Hálfa milljón? Já. Er það kannski of lít- ið? Ég er reiðubúinn til samningaviðræðna ef þú ert óánægður með upphæðina. Jæja, hvað segir þú þá? Arnfinnur sat með opinn munninn. Ég kann vel að meta hæfi- leika þína, hélt Helmer Kristoffersen áfram. Ég lít á þig sem hæfan listamann. Ég hef alltaf haft þá skoðun að listamenn eigi að fá góð laun fyrir störf sín eins og við hin. Ertu til í að taka þetta að þér? Ég hefði nú reyndar viljað vita svolítið meira um hvað málið snýst. Gott og vel. Það sem þú átt að gera er að ná til baka iðnaðarteikningum sem var stolið frá fyrirtækinu mínu. Nægir þessi skýring? Já. Og ertu til? Gott og vel. Ánægjubros breiddist yfir rautt, feitlagið andlit Hel- mer Kristoffersen. Hann stóð upp og rétti Arnfinni þvala, kubbslega höndina. Þá er það ákveðið. Nils, yngri sonur minn, sækir þig á gulum Volvo. Vertu við innganginn að almennings- garðinum á miðnætti. Hann mun aka þér að bygging- 46 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.