Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 18
Þýðing: Þórunn Stefánsdóttir
SÁUST í FYRSTA SINN VIÐ
„Ég hafði aldrei séð
Cörlu fyrr en hún kom
gangandi inn kirkjugólfið en
ég féll kylliflatur fyrir henni
um leið og ég sá hana. Ég
leit á svaramanninn og hann
kinkaði samþykkjandi kolli.
Ég vissi nú fyrirfram að hún
væri ekki á fimmtugsaldri,
ekki stór og feit en ég varð
samstundis heillaður af
henni. Hún var miklu
fallegri en mig hafði
dreymt um. Þegar ég
heyrði rödd hennar í út-
varpinu reyndi ég að
gera mér í hugarlund
hvernig hún liti út. Hún
hafði þá kynþokka-
fyllstu rödd sem ég
hafði nokkru sinni
heyrt en ég hafði samt
aldrei ímyndað mér hún
liti út eins og Pamela
Anderson.“ „Nema hún
er auðvitað miklu fal-
legri,“ flýtir hann sér að
bæta við.
Carla segist einnig
hafa fallið fyrir rödd
Gregs en hann liti allt
öðru vísi út en hún
hafði gert sér í hugar-
lund. „Þegar Greg sagð-
ist æfa box hugsaði ég
sem svo að hann hlyti
að vera vöðvastæltur og
í góðri þjálfun. Þegar ég sá
hann bíða mín við altarið
var það fyrsta sem kom upp
í hugann að hann væri nú
alls ekki sem verstur. I
fyrstu sá ég ekki framan í
hann og var viðbúin því
versta. En þegar hann sneri
sér við og brosti til mín
Það tíðkast enn einhvers staðar í
heiminum að ungir menn og konur
séu gefin hvort öðru, án þess
nokkurn tímann að hafa litið hvort
annað augum. En að ungt fólk bú-
sett í Englandi taki þátt í þannig
leik, af fúsum og frjálsum vilja,
þykir aftur á móti hið undarleg-
asta mál!
Það vakti óskipta at-
hygli þegar þau Greg
Cordell, 28 ára, og
Carla Germaine, 23 ára,
giftu sig aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að þau
kynntust í gegnum útvarps-
þáttinn Two Strangers And
A Wedding. Ýmsar spurn-
ingar brunnu á vörum
bresku þjóðarinnar, t.d.
veltu menn því fyrir sér
hvernig tveir ókunnugir ein-
staklingar kæmu til með að
eyða brúðkaupsnóttinni,
hvernig þeim litist hvort á
annað og hvort þau myndu
yfirhöfuð þola hvort annað.
hugsaði ég með mér: Guði
sé lof, hann er bara svolítið
sætur.“
Brúðkaupsnóttinni eyddu
þau á hóteli í Birmingham.
„Ég þekkti manninn ná-
kvæmlega ekki neitt. Nú var
hann orðinn eiginmaður
minn og við vorum alein í
brúðkaupssvítunni! Greg
opnaði kampavínsflösku og
við settumst niður og horfð-
um á myndbandsupptöku af
brúðkaupinu. Það er ekki
nokkur leið að lýsa því
hvernig mér var innan-
brjósts. Á myndinni sést
hvernig ég hallaði mér upp
að Greg. Það virtist vera
mjög rómantískt en satt að
segja hékk ég utan á honum
því ég var svo hrædd um að
það liði yfir mig af einskærri
skelfingu."
Eftir að myndbandinu
lauk átti Carla þá ósk
heitasta að standa upp og
kyssa Greg góða nótt. Greg
hafði allt annað í huga. „En
ég vildi ekki hræða hana
með því að haga mér eins
og steinaldarmaður og not-
færa mér það að hún væri
lögleg eiginkona mín. Mér
fannst meira um vert að
vinna traust hennar. Ég
klæddi mig úr öllu nema
nærbuxunum, breiddi sæng-
ina yfir mig og beið eftir
henni.“
Þegar Carla kom fram úr
baðherberginu lagðist hún
fullklædd ofan á sængina og
steinsofnaði. „Þegar allt
kemur til alls er ég ennþá
litla stelpan hans pabba. Ég
Greg og Carla kynntust í gegnum keppnina TWo Strangers And A Wedding, sem
útvarpsstöð í Birmingham á Englandi stóð fyrir. Keppnin var nokkurs konar út-
sláttarkeppni um fullkomnasta parið og fór eingöngu fram í gegnum útvarp.
Keppendur vissu það fyrirfram að vinningsparið ætti að giftast án þess að hafa
nokkru sinni sést áður en þau gengu upp að altarinu! Glæsileg verðlaun voru í
boði: Ein nótt í brúðarsvítu Hyatt Regency hótelsins í Birmingham, brúðkaups-
ferð til Bahamaeyja, þar sem allt var innifalið, m.a. einkamatreiðslumaður sem
hefur unnið sér það til ágætis að vera í þjónustu Sean Connery, nýr bíll af gerð-
inni Ford Puma og lúxúsibúð að kostnaðarlausu í eitt ár. Brúðhjónin skrifuðu
undir sáttmála þar sem fram kemur að þau geti hætt við allt saman án nokk-
urra eftirmála, ef sambandið gengur ekki upp.“
18 Vikan