Vikan - 29.03.1999, Síða 6
stúlkuna!
Fegurðardrottning Norð-
urlands verður krýnd í
Sjallanum á Akureyri 9.
apríl nk. Stúlkurnar sem
taka þátt í keppninni
eru ellefu talsins, á
aldrinum 17 til 21 árs,
þær koma víða að af
Norðurlandi og eru allar
búsettar á Akureyri þar
sem þær sækja skóla.
Lesendum Vikunnar
gefst nú kostur á að
láta álit sitt í Ijós og
velja Vikustúlkuna úr
hinum föngulega hópi.
Til að taka þátt í valinu
þarf einungis að hringja
í síma 905-2500 og
greiða fallegustu
stúlkunni atkvæði. Mín-
útan kostar kr. 66.50,-.
Á úrslitakvöldinu í Sjall-
anum verður tilkynnt
hver var fallegust að
mati lesenda blaðsins.
Vikustúlkan prýðir svo
forsíðu blaðsins á næst-
Myndirnar tala sínu máli.
Veljið fallegustu stúlkuna.
Þeim er raðað eftir staf-
rófsröð til að auðvelda val-
ið í símanum. Þeir sem
hringja inn komast í pott
og 3 heppnir verða dregnir
út og fá 6 mánaða áskrift
að Vikunni í verðlaun:
6
Anna Berglind
Pálmadóttir
(171 sm) er Akureyringur. Hún verðurtvítug í
júní og er á lokasprettinum í Verkmenntaskól-
anum. Anna Berglind stundar þolfimi og aðra
líkamsrækt af kappi og það að prófa eitthvað
nýtt og spennandi dró hana í fegurðarsam-
keppni Norðurlands. „Ég viðurkenni þó að ég
sagði ekki strax já þegar ég var beðin um að
vera með,“ segir hún. „Ég þurfti að hugsa mig
um, bæði hvort ég hefði áhuga á að taka þátt
og eins hugsaði ég um gagnrýnina sem maður
fær á sig. En maður lætur hana ekkert á sig fá,
enda lærir maður heilmikið á þessu. Það er
staðreynd.“ Anna Berglind er hógvær og tekur
því létt þegar hún er spurð að því hvað hún hafi
til að bera til að sigra. „Á ég virkilega að svara
þessu?...“
Bjarney Þóra
Hafþórsdóttir
(173 sm) er 19 ára Vopnfirðingur og
hún er á 3. ári í Menntaskólanum á
Akureyri. Áhugamál Bjarneyjar tengj-
ast skólanum en hún segist einnig
vera mikið fyrir börn og stefna á það
að vinna með börnum í framtíðinni.
Þegar Bjarney er spurð að því hvað
hafi dregið hana í keppnina segir
hún: „Ætli það sé ekki ágætt að
reyna að vinna aðeins á feimninni.
Það háir mér hvað ég er feimin.
Annars lærum við einnig heilmikið á
þessu, aðallega þó að bera okkur
vel. Æfingarnar miða náttúrlega að
því.“ Bjarney viðurkennir að auðvitað
hafi hún hugsað út í það hvort hún
ætti möguleika á að sigra þegar hún
ákvað að vera með en hún segist
ekkert hugsa út í það þessa dagana,
bara gera sitt besta. En því skyldi
Bjarney eiga að vinna keppnina?
„Ætli það séu ekki Pamelu brjóstin
sem gera gæfumuninn," segir hún
án þess að meina neitt með því.