Vikan


Vikan - 29.03.1999, Side 8

Vikan - 29.03.1999, Side 8
FeymtmxtwmmigWhró'íi/ríanch I o o Guðný Berglind Garðarsdóttir (175 sm) er 18 ára Akureyrarmær og er hún nemandi á 2. ári í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Það var hvatning frá móður hennar sem ýtti henni út í að taka þátt í fegurðar- samkeppninni en systir hennar var þátttakandi í keppninni í fyrra. „Ég fylgdist að sjálfsögðu með henni og fannst þetta spennandi en hún fékk ekki að vita að ég væri að hugsa um að vera með fyrr en ég var búin að ákveða mig.“ Guðný segir að það hafi komið henni á óvart að hún skyldi vera beðin um að vera með í keppninni og hún hlær þegar hún er spurð hvers vegna. „Því mér fannst og finnst ég bara alls ekki hafa þetta fegurðardrottningarútlit. Ætli ég hafi ekki bara þolinmæð- , ina sem þarf í þessa keppni.“ j Hanna Dögg Maronsdóttir (171 sm) er 17 ára Ólafsfirðingur. Hún er nem- andi í Verkmenntaskólanum á Akureyri en fyrst og fremst ber að nefna að hún er mikil göngu- skíðakona, enda nýkomin til landsins eftir að hafa tekið þátt í Ólympíuleikum æskunnar í Slóvakfu en þess ber að geta að Hanna er fimmfaldur íslandsmeistari og bikarmeistari. Skíðadrottningunni þykir skemmtilegt að hafa mikið að gera og þess vegna segist hún vera með í þessari keppni. „Ég myndi halda að ég græddi eitthvað á henni líka. Kannski fæ ég meira sjálfsálit," segir hún alvarleg og vinkonur hennar hlæja því þær vita að henni er ekki al- vara með þessu svari. „Ég hafði aldrei leitt hug- ann að því að taka þátt í fegurðarsamkeppni, ég er meiri íþróttamanneskja og hef aldrei verið að spá mikið í útlitið. En ég er svo sæt og þess vegna ætla ég að vinna,“ bætir hún við og ekki er meiri ~ i alvara í þessu o símava,Seð' Br u„Z'Zn t>ö ,nf,krift svari en hinu. Linda Rós Magnúsdóttir (174 sm) er æskuvinkona Svönu frá Dalvík. Hún verður 18 ára í septem- ber og er á 2. ári í Verkmenntaskól- anum á Akureyri. Linda er ekki form- lega búsett á Akureyri, eins og aðrir þátttakendur í keppninni, heldur læt- ur sig hafa það að keyra á milli Akur- eyrar og Dalvíkur á hverjum degi til að fara í skólann. Hún nefnir hund- inn sinn sem sitt helsta áhugamál, English Springer, því hann sé svo góður og æðislegur, ...“auðvitað er kærastinn í þeim flokki líka,“ bætir hún við. Linda segist vera óþægilega feimin og þess vegna hafi hún ákveðið að drífa sig í keppnina, það sem henni fylgir geti ekki annað en ýtt undir sjálfstraustið. Þegar hún er spurð að því hvað hún hafi til að bera til að sigra keppnina fer hún að hlæja og segir: „Þessa svakalega löngu fótleggi." 8 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.