Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 19
ALTARIÐ'
gat ekki hugsað mér að
bregðast pabba með því að
sofa hjá bláókunnugum
manni nóttina eftir að ég
kynntist honum, jafnvel
þótt hann væri eiginmaður
minn.“
Næstu nótt eyddu þau á
flughóteli í London. Aftur
lögðust þau til svefns í tví-
breiðu rúmi og aftur sofnaði
Carla samstundis. Nóttinni
þar á eftir eyddu þau um
borð í þotu á leiðinni til Ba-
hamaeyja. Og þarnæstu nótt
var það Greg sem steinsofn-
aði á undan brúðinni. Fjórir
dagar voru liðnir frá brúð-
kaupinu og enn hafði ekk-
ert gerst.
A fimmta degi vöknuðu
þau snemma, borðuðu
morgunmat, fóru á strönd-
ina og sóluðu sig við sund-
laugarbakkann. Um kvöldið
var Greg dasaður eftir alla
sólina og fór í háttinn
klukkan hálfellefu. Carla
fór upp hálftíma seinna.
Greg segist feginn því þegar
honum tekst að sofna á
undan Cörlu.
„Hún er ótrúlega
fallega vaxin og
girnileg. Þegar
hún kemur upp í
rúm, klædd gegn-
sæum náttkjól, fer
ímyndunaraflið á
fulla ferð. Það er
erfitt fyrir mig að
berja náttúruna
niður, þ.e.a.s. þeg-
ar ég get haldið
mér vakandi!“
„Mér líkar alls ekki illa
við Greg,“ segir Carla.
Hann kemur mér til að
hlæja og ég kann vel að
meta menn sem hafa kímni-
gáfuna í lagi. I raun og veru
finnst mér hundleiðinlegt að
hann skuli alltaf vera sofn-
aður þegar ég er búin að
bursta tennurnar.“
En nú var kominn laugar-
dagur og ekki einu sinni
kímnigáfa Gregs hafði kom-
ið þeim saman í rúmið.
Carla viðurkennir að hún sé
svolítið skotin í Greg. „En
ég hef mína siðferðiskennd
HVORT ANNAÐ EFTIR VIKU KYNNI *
Það kynþokkafyllsta í fari hans/hennar:
Carla: Hann er góður við mig og veitir mér
öryggistilfinningu án þess að sýna mér yfirgang.
Greg: Röddin, það er ekki spurning. Hún hefur svo
kynþokkafulla rödd að hún ein nægði til þess að ég
varð ástfanginn af henni.
Það eftirminnilegasta og besta hingað til:
Carla: Þegar við Greg dönsuðum saman brúðarvalsinn í
veislunni varð mér litið á bróður minn og sá að hann
var með tárin í augunum. A því augnabliki gerði ég
mér grein fyrir alvöru málsins.
Greg: Jafnvel þótt við höfum aðeins þekkst í nokkra daga
sakna ég Cörlu ef hún er ekki nálægt mér.
Um fataval:
Carla: Hann er sætastur í hversdagsfötunum.
Greg: Hún kann að klæða sig þannig að vöxturinn njóti sín.
Það versta í fari hans/hennar:
Carla: Hroturnar.
Greg: Hún er hræðileg á morgnana, það er hreint út sagt
martröð að fá hana til þess að opna augun.
og hann verður að gjöra svo
vel að bíða þangað til ég hef
áttað mig á því hvort ég
elska hann eða ekki.“ Greg
segist aftur á móti vera yfir
sig ástfanginn. „Eg sé ekki
eftir neinu,“ segir hann
ákveðinn.
Þau njóta þess að ganga
eftir ströndinni og kyssast
undir stjörnubjörtum himni.
Enn sem komið er virðast
þau ekkert frábrugðin ást-
föngnu fólki í brúðkaups-
ferð, nema auðvitað að einu
leyti! Þegar þau sitja í garð-
inum undir trjánum sem
skýla þeim fyrir heitri eftir-
miðdagssólinni, borða fisk
og suðræna ávexti, kemur
matreiðslumaðurinn og spyr
hvað þau vilji borða í kvöld-
mat. „Það hljómar nú
kannski undarlega, en ég
hef bara ekki hugmynd um
hvað konunni minni þykir
gott,“ svarar Greg afsak-
andi.
Hvernig gengur scinni hluti
brúðkaupsfcrðarinnar? Tekst
Greg að fá Cörlu með sér í
rúmið? Framhald í næsta hlaði!
Vikan 19