Vikan - 29.03.1999, Qupperneq 60
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
SYNGUR I STURTU
Dekurdúllan Whitney Houston lætur til sín
taka hvar sem hún kemur. Fyrir skömmu var
hún á hóteli í Beverly Hills og heyrst hefur aö
hún hafi verið í annarlegu ástandi allan tím-
ann. Þegar hún kom var henni mjög umhug-
að um að taskan með „lyfjunum" hennar yrði
ekki fyrir hnjaski. Hún sagði að þar væru
flöskur og þess háttar sem mættu ekki
brotna. Á meðan á dvölinni stóð bannaði
söngdívan öllu starfsfólki hótelsins að koma
inn í svítuna sína. Hún var umkringd vinkon-
um sínum sem hleyptu engum nálægt henni
auk þess sem hún var með lífverði til að
gæta öryggis síns. Það eina sem starfsfólkið
komst að um stjörnuna, á meðan á dvöl
hennar stóð, var að hún syngur í sturtu og
hún hefur alltaf rétt fyrir sér.
Christian Slater er nú farinn að búa sig undir
að verða faðir í fyrsta sinn en hann á nú "
barn í vændum með sambýliskonu sinni,
Ryan Haddon. Þau eiga von á erfingjanum í
apríl og hafa mikinn hug á að setjast að í
New York og ala upp barnið á Manhattan.
„Christian hlakkartil að verða pabbi,“ segir
Stan Rosenfield, talsmaður leikarans, en
hann segir að Slater og Haddon liafi engin
áform um að gifta sig. Slater er orðinn 29
ára og er búinn að ná sér á réttan kjöl í líf-
inu eftir að hafa lent i eiturlyfjarugli sem
endaði með 59 daga fangelsisvist á síðasta
ári. Kunnugir segja að hann hafi kynnst
Haddon á meðferðarheimilinu Promises í
Malibu á síðasta ári en talsmaðurinn segir að þau hafi
kynnst þegar þau voru þæði í göngutúr
JÉflRfc um Malibu. Á árum árum var Slater
iðulega orðaður við fínar og frægar
p leikkonur eða fyrirsætur. Þeirra á
ff , f meðal voru Winona Ryder, Sam-
antha Mathis og Christy Tur-
lington. Síðan átti
f 'V-'-' hann í nokkurra
/ ástarsam-
bandi við unga
og ,
■k leikkonu,
fek Ninu Hu-
ang. sem
■ fór fram a fram-
þau hættu
H saman árið
1995. Haddon var
H eitt sinn kærasta
David Charvet sem
lék i Baywatch og
W síðar í Melrose Place.
Afmælisbörn vikunnar
29. mars: Lucy Lawless (1968), Elle Macþherson (1964),
Christopher Lambert (1957) 30. mars: Donna D'Errico
(1968), Céline Dion (1968), lan Ziering (1964), Paul Reiser
(1957), Robbie Coltrane (1950), Eric Clapton (1945), Warren
_____ Beatty (1937) 31. mars: Giovanni Ribisi (1976),
jR?? Ewan McGregor (1971), Rhea Perlman (1948), Al
SL Gore (1948), Christopher Walken (1943) 1. apríl:
í Annette OToole (1952), Ali MacGraw (1938),
P> Tj Debbie Reynolds (1932) 2. apr- —.
t Jj íl: Marvin Gaye (1939) 3. apríl: m
jkj Mili Avital (1972), Jennie Garth
f H (1972), Eddie Murphy (1961),
David Hyde Pierce (1959), Alec
Baldwin (1958) 4. apríl: Robert Downey
Jr. (1965), Christine Lahti (1950), Maya
Angelou (1928) 5. apríl: Sir Nigel Hawt- FU ™
horne (1929) 6. apríl: Paul Rudd (1969), Marilu Henner
(1952), Barry Levinson (1942) 7. apríl: Russell Crowe
(1964), Jackie Chan (1954), Francis Ford Coppola (1939),
James Garner (1928) 8. april: Patricia Arquette (1968),
Robin Wright-Penn (1966), Julian Lennon (1963) 9. apríl:
Paulina Porizkova (1965), Dennis Quaid (1954), Jean-Paul
Belmondo (1933), Hugh Hefner (1926) 10. apríl: Steven
Seagal (1952), Max von Sydow (1929) 11. apríl: Vincent
Gallo (1961).
VILL EKKI BORGA
Kraftakarlinn Jean Claude Van Damme er ekki sáttur við fjórðu og nýjustu fyrrum eiginkonu sína,
Darcy La Pier. Aðeins örfáum dögum eftir að hann var dæmdur til að borga henni rúmlega 80
milljónir króna á ári í framfærslu giftist hún aftur og nýi eiginmaðurinn er ekki á flæðiskeri stadd-
ur með peninga. Hann heitir Marc Hughes og er stofnandi Herbal Life megrunarveldisins. Þau
létu pússa sig saman á Valentínusardag við mikla viðhöfn. Bara blómaskreytingin kostaði 40
milljónir króna og meira en 500 veislugestir drukku fínasta kampavín eftir veitingarnar sem voru ekkert
slor. La Pier hafði barist hatrammri baráttu fyrir framfærsluaurunum en nú hótar Van Damme að fara
aftur með málið fyrir dómstóla til að komast hjá því að borga henni. Hann er líka óánægður með hversu
lítið hann fær að sjá son sinn, Nicholas, sem býr með mömmu sinni í glæsivillu nýja eiginmannsins.
SVITINN AF
SONGKONU
Söng- og leikkonan Madonna
hefur haldið sér í góðu formi og
ekki að sjá að hún sé komin á
fimmtugsaldurinn. Nú gefst að-
dáendum hennar kostur á að
kaupa af henni svitann! Lík-
amsræktarsamstæða sem
Madonna hefur haft í íbúð sinni
á Manhattan síðasta áratuginn
er nú til sölu. Hún gaf skóla í
úthverfi New York græjurnar
fyrir skömmu en þar voru ekki
not fyrir tækin og þau rötuðu
inn í verslunina Gotta Have It! á
Manhattan. Alls eru þetta 13
mismunandi líkamsræktartæki
og -tól. Hægt er að kauþa
græjurnar fyrir 2,7 milljónir
Það er ekki líklegt að Julia Roberts og
Nick Nolte vinni saman í framtíðinni. Nolte
var að skrifa ævisögu sína sem fékk titilinn
Staðinn að verki eða Caught in the Act. Þar
. segir hann frá ósætti sínu
við Roberts þegar þau léku í
I ' myndinni I Love Trouble árið
^ 1994. „Ég reyndi að tala við
■ Juliu en hún vildi ekki einu
sinni hitta mig,“ segir Nolte.
Hann kveðst engan veginn
aaaaM__J geta áttað sig á hvað hann
gerði sem fór svona fyrir brjóstið á mót-
leikkonunni. „Ég fór meira að segja í hjól-
hýsið hennar og baðst afsökunar, hvað svo
sem ég hafði gert af mér. Ég sagðist taka
á mig alla ábyrgð en hún byrjaði að berja
mig og rak mig út.“ Talsmaður leikkon-
unnar vill ekkert tjá sig um atvikið en segir
aö sagan hljómi ótrúlega.