Vikan - 27.07.1999, Side 4
Kæri lesandi...
Sársaukalaust
Hver hefur ekki fengið tak í bakið, tannpínu eða
tíðaverki sem œtla þá lifandi að drepa í skamman
tíma?
Á okkar tímum er sem beturfer hœgt
að lina þjáningar þeirra sem einhverra
hluta vegna kenna sér meins, nóg er
nú til afalls konar „tylum og dílum“ í
deyfilyfjaflórunni.
Vandinn er bara sá aðfólk sem þarfá
þeim að halda nær ekki í þœr. Fólk er
nefnilega sjaldnast búið að panta sér
verkina fyrirfram og þessvegna koma
þeir almúgafólki á óvart. Og hafir þú
lent í þeirri stöðu að þurfa að ná þér í
deyfilyf t.d þar sem þú ert staddur í
vinnu eða annars staðar þar sem þú
getur ekki legið í símanum þá veistu
að það er ekki hœgt!
Símatímar lœkna eru stuttir og ásetnir
og ekki á fœri nema færustu símafíkla
að ná sambandi.
Auðvitað getur maður reynt að fara út í apótek til
að kaupa sér deyfilyfán lyfseðils, en þœr tegundir
sem seldar eru þannig gera fœstum fullorðnum gagn
hafi ástœðan fyrir kaupunum verið œrin.
Allt sterkara en sœmilegan kaffibolla er bannað að
kaupa nema hámark 10 stykki í einu!!!
Hvers vegna? Ef ég œtla að kaupa 20 stykki get ég
farið tvisvar inn í apótekið eða beðið þann sem er
með mér í bílnum að kaupa aðrar 10. Og hvers
vegna má ég ekki kaupa AlkaSetser eða Aspirin sem
eru algengustu lyfin víða erlendis og má kaupa þar í
nœstu matvörubúð?
Er meiri hœtta á að við Islendingar misnotum lyfen
aðrar þjóðir?
Ég get ómögulega skilið þetta. Ég er orðin hundleið
á forsjárhyggjunni,- að „ríkið" þurfi að segja mér,
lögráða manneskju, hvað ég má og hvað ég má
ekki.
Ég blœs á þau heimskulegu rök að það sé verið að
„vernda eiturlyfjasjúklinga“. Dettur virkilega ein-
hverjum í hug að þetta skipti þá einhverju máli?
Ekki aldeilis, þeir eru ekki að snapa eftir svona rusli
og fara annað en í apótekið eftir sínu „kikki".
Pessi heimskulegu lög bitna eingöngu á venjulegu
fólki með tannpínu, tíðaverki eða þursabit.
En það er komin ný Vika sem er algerlega sársauka-
laust að skoða.
Hér eru leiðbeiningar fyrir ferðafólk, tvœr mergjað-
ar lífsreynslusögur, hugmyndir að sœngur- og skírn-
argjöfum, viðtal við Ellý sem á von áfjórða barn-
inu, sagt frá Sophie Rhys Jones, nýstárlegu dag-
heimili í Skerjafirði ogfyrstu ástinni í lífifólks. SVo
er það framhaldssagan um Rósalíu, einnig hvatning
til kvenna um að lifa lífinu lifandi, bíópistill, 21
merki um að elskhuganum sé ekki alvara, heimsókn
til Nýfundnalands ogmargt, margt fleira. Hug-
myndaflugi okkar eru engin takmörk sett...
... Njóttu Vikunnar!
Jóhanna Harðardóttir
Steingerður
Steinars-
dóttir
blaðamaður
Hrund Margrét V. Kristín Anna B. Guðmundur
Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- Þorsteins- Ragnar
blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir Steingrímsson
augiýsinga- auglýsinga- Grafískur
stjóri stjóri hönnuður
; Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Utgefandi Fróði
| Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
!. Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal-
í ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
!j Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
Ij 5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími:
j 515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður
} Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V.
| Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds-
f dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein-
í grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð I áskrift ef
! greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef
< greitt er meö gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið i
! Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi
!j efni og myndir