Vikan - 27.07.1999, Side 8
8 Vikan
og vil helst eiga stóran
barnaskara. Eg veit að ég
ber það ekki utan á mér en
ég er mikil húsmóðir og tel
mjög mikilvægt að hafa
reglu í uppeldinu. Ég elda
heitan mat á hverju
kvöldi og legg fal-
lega á borð því mér
finnst skipta miklu
máli að við borðum
saman. Börnin mín
eru mjög fjörug svo
hér er oft heilmikið
stuð en þau eru að
sama skapi alveg
yndisleg og ég elska
þau meira en lífið
sjálft. Þau fara alltaf
að sofa klukkan átta
þótt önnur börn séu
enn úti að leika sér
og ég stend fast á
slíkum reglum. Það er al-
vöruheimilishald á þessum
bæ. Ég er mjög trúuð og
signi börnin mín á hverju
kvöldi og þakka guði fyrir
að hafa gefið mér heilbrigð
börn. Við megum ekki
gleyma að þakka fyrir allt
það góða sem við fáum í líf-
inu.“
Á hvað trúir þú?
Ellý verður hugsi á svip og
gefur sér góðan tíma til að
Heimili Ellýjar er rómantískt og fullt af fallegum munum sem hún
hefur safnaó að sér í gegnum tíðina. Hér hefur hún stillt upp gömlum
stiga og notar hann sem hillur undir ýmsa skemmtilega smáhluti.
svara svo stórri og persónu-
legri spurningu: „Ég trúi á
svo margt. Ég trúi því að við
lifum endalaust og að sálin
deyi aldrei. Við erum
hér í þessum heimi til
að læra. Ég velti því
stundum fyrir mér
hvers vegna sumt fólk
kemst upp með að
standa aldrei skil á gjörðum
sínum á meðan aðrir eins og
ég fá það yfirleitt tífalt í
hausinn ef þeir klúðra ein-
hverju! Ég held þó að það
komi alltaf að skuldadögum
hjá öllum vegna þess að því
lengur sem þú veður í þín-
um eigin skít, því dýpra
sekkurðu.
Auk þess að vera trúuð þá
heillast ég af mismunandi
spádómafræðum. Það er
auðvitað mismikil lífsspeki
hollt og gott að stúdera slíka
lífsspeki og skoða sjálfan sig
en það er hættulega hárfín
lína á milli þess að velta sér
„Þótt ég sé margra barna móðir
og hafi mýkst og þroskast með
aldrinum þá blundar alltaf rokkar-
inn i mér og verður ávallt hluti af
minni persónu.11
upp úr hlutunum og þess að
hreinsa hressilega til í sál-
inni.“
Hvað ertu að gera í
dag?
„Ég hef verið að mála frá
því að ég var barn og fór
fljótlega að læra málun en
flosnaði upp úr öllum skól-
um því það var svo mikil
ólga í mér. Ég hélt fyrstu
sýninguna mína 18 ára göm-
ul og svo var ég roslega dug-
leg að selja myndirnar
mínar og handmálaða
boli í Austur-
stræti á góð-
viðrisdögum.
Sjálfsbjargar-
viðleitnin lét
Ellý er búin að vera að inála
frá því hún var barn og í dag
er hún komin langt á veg í
námi við Myndlista- og hand-
íðaskólann. Myndir hennar
hafa yfir sér dularfullan blæ
og hún málar mjög oft engla
og annað sem tengist helgi-
dómi.
innan þeirra en samt ber
þetta allt að sama brunni;
fólk er í leit að auknum
þroska og innri ró. Það er
öðruvísi fatnaði og hafa
gaman af því, þá fá þær
þennan neikvæða stimpil á
sig. Þótt ég sé margra barna
móðir og hafi mýkst og
þroskast með aldrinum þá
blundar alltaf rokkarinn í
mér og verður ávallt hluti af
minni persónu. Ég er mjög
sátt við hver ég er þótt ég
vildi stundum gjarnan vera
venjuleg og róleg kona. Ég
veit fátt skemmtilegra en að
horfa á barnamyndir með
krökkunum mínum, mála og
njóta íslenskrar náttúru. Ég
er að fara með börnin í
vikufrí út á land í sumarbúð-
ir hjá Ævintýralandi og við
hlökkum öll æðislega mikið
til. Ég óskaði mér þess
aldrei að verða einstæð
móðir en sú er nú staðan og
ég er harðákveðin í að vinna
sem best úr því.
Ég er löngu búin að fá nóg
„Börnin min eru mjög fjörug svo
hér er oft mikið stuð en þau eru að
sama skapi alveg yndisleg og ég
elska þau meira en lifið sjálft.“
snemma a ser
kræla. Ég náði að
klára Tollskólann,
hugsaðu þér! I dag er
ég í Myndlista- og
handíðaskólanum sem
ég útskrifast bráðum
frá en ég tók hlé frá
námi í eitt ár vegna
nýja barnsins. Ég hef verið
bæði í skúlptúr og málun og
stefni að Mastersnámi er-
lendis.
Líkamsrækt er eitt aðalá-
hugamálið mitt og ég hef æft
í 12 ár. Mér finnst gaman að
klæða mig öðruvísi og ögra
fólki en sumir túlka það sem
svo að ég sé lauslát en það
er mjög fjarri lagi. Það vill
alltaf vera svo að ef konur
eru ófeimnar við að klæðast
„Mér finnst gaman að klæða mig öðruvisi. Sumir túlka
það sem svo að ég hljóti þá að vera lauslát, en það er
mjög fjarri lagi. Það vill alltaf vera svo að ef konur eru
ófeimnar við að klæðast öðruvísi fatnaði og hafa gaman
af þvi, þá fá þær þennan neikvæða stimpil á sig.“
af einhverjum mega-töffur-
um, því tímabili í lífi mínu er
lokið. Ég er þó alveg tilbúin
til að eignast góðan mann
en hann þarf að vera með
sjálfan sig á hreinu og ekki
hræddur við mig! Mér finnst
bjart fram undan hjá mér og
horfi björtum augum til
framtíðarinnar. Ég er ákveð-
in í að verða heimsfrægur
myndlistarmaður og það er
líka búið að spá því..." segir
Ellý með dularfullu brosi og
grænu augun skjóta gneist-
um. „Ég er búin að fá minn
skerf af erfiðri lífsreynslu og
tel að hún hafi styrkt mig og
þroskað sem persónu. Öll
reynsla er til að læra af og
öll sár gróa um síðir. Guð
hjálpar sínum.“