Vikan


Vikan - 27.07.1999, Side 12

Vikan - 27.07.1999, Side 12
Texti: Margrét V. Helgadóttir Sumarfrí á erlendri grund heillar marga. Að geta gengið að því vísu að flatmaga í sól og hita er fyrirheit um afslöppun svo framarlega sem GSM- síminn er skilinn efti heima. Væntanlegir ferðalangar þurfa að huga að mörgu áður en þeir leggja land undir fót. Ferðataskan Ferðalagið er að hefjast. Rykugar ferðatöskur eru dregnar fram og hætt við að hamagangurinn verði mikill þegar á að byrja að pakka niður. I hefðbundnum sólar- landaferðum er hámarks- þyngd á farþega 25 kg og það á jafnt við um börn eldri en tveggja ára og fullorðna. Ferðatöskur eru misjafnlega stórar og því þarf að fylgjasl vel með þyngdinni á þeim. Sannir Islendingar gera nú líka ráð fyrir smá aukaplássi fyrir heimferðina. Það er einfaldlega skylda að taskan sé þyngri í bakaleiðinni. Gæta þarf þess að taka ekki með of mikið af fötum á börnin því í flestum tilfell- um geta þau verið á sund- fötunum einum saman allan tímann. • Sundföt á fjölskylduna ættu að vera efst í tösk- unni. Ef til eru aukasund- föt til skiptanna ættu þau að fá að fara með. • Stuttbuxur, bolir og sandalar eru algjört þarfaþing á ströndinni. • Ein til tvenn spariföt ættu að nægja. Gott er að hafa þau með til að nota þegar farið er út að borða og eins eru stundum sameig- inlegar skemmtanir á kvöldin í hópferðum. Sparifötin þurfa að vera úr þunnu efni og helst að vera víð. Þegar húðin er heit eftir mikla útiveru er gott að vera í víðum föt- um. • Nærföt og sokkar fyrir hvern og einn á tímabil- inu. • Derhúfur eða hattar fyrir fjölskylduna. Við íslend- ingar eigum það til að verða of sólarþyrst og gleyma því að sólin getur verið varasöm. Litlir koll- ar þola ekki sólskin í langan tíma og því getur gott höfuðfat komið í veg fyrir sólsting. • Gott er að hafa með sér eitt sett af skjólgóðum fatnaði, t.d. íþróttagalla, ef veðrið bregst. • Stór og góð handklæði til að nota á sólbekkina og við sundlaugina. Á hótel- unum eru einungis bað- handklæði til að nota inn- andyra. • Ef sólgleraugu eru til á heimilinu er gott að hafa þau með en annars eru þau í flestum tilfellum ódýrari á sólarströndinni en hér heima. • Fyrir þá sem eru ósyndir þarf að huga að kútum. í strandbúðum er reyndar mikið úrval af kútum en séu þeir til inni í baðskáp er upplagt að kippa þeim með. • Fyrir börnin er gott að taka með leikföng bæði til að hafa í flugvélinni og svo á áfangastað. Gott er að kaupa eitthvert lítið leikfang og gefa það í flugvélinni. Þá beinist at- hyglin að nýja hlutnum og tíminn líður hraðar. Leikföngin þurfa ekki að taka mikið pláss, t.d. púsluspil, litlar dúkkur eða karlar og kubbar. Börnin fá leið á að vera úti í sólinni allan daginn og því gott að geta farið inn og leikið sér. • Myndavél, filmur, vasa- diskó og allt hitt sem gleymist oft í stressinu. Pakkið þessum hlutum strax niður til að tryggja að þeir fari örugglega með.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.