Vikan - 27.07.1999, Side 16
Samantekt: Margrét V. Helgadóttir
*ySSH,
aðveru/e/ka
Breska millistéttarstúlkan sem varð hertogaynjan af Wessex
Sérstakar hefðir fylgja hjónaböndum kóngafólksins. Það
þykir við hæfi að tilvonandi makar þess eigi ættir sínar að
rekja til annarra tiginna manna. Játvarður prins í Bretlandi
hunsaði allar reglur og hefðir þegar hann giftist sinni
heittelskuðu 19. júní siðastliðinn. Sú heppna heitir Sophie
Helen og er bresk millistéttarstúlka.
Breska konungsfjöl-
skyldan sér fram á
bjartari tíð í hjóna-
bandsmálum fjölskyldunnar
eftir að Játvarður prins gekk
að eiga Sophie sína. Hún
þykir vera efni í fyrirmynd-
arprinsessu þótt hún eigi að
baki skrautlega fortíð á kon-
unglegan mælikvarða.
Mörgurn brá í brún þegar
Játvarður kynnti unnustu
sína fyrir alheiminum því
hún þykir sláandi lík Díönu
heitinni prinsessu, fyrrver-
*
andi mágkonu Játvarðar.
Samband þeirra Játvarðar
og Sophie hefur þróast hægt
og rólega og þau hafa reynt
að forðast fjölmiðla eftir
bestu getu. Það var svo hinn
6. janúar á þessu ári að til-
kynning barst frá konungs-
höllinni að brúðkaup væri í
vændum 19. júní 1999.
Ástarsaga Játvarðar og
Sophie hófst árið 1993.
Fljótlega eftir þeirra fyrsta
fund fóru þau að vera mikið
saman og á undanförnum
árum hefur Sophie sést æ
oftar í l'ylgd með Játvarði.
Samband þeirra hefur staðið
yfir í sex ár sem er ólíkt ást-
arsamböndum eldri bræðra
Játvarðar, þeirra Karls og
Andrésar. Þeir bræður gift-
ust báðir unnustum sínum
eftir fremur stutt kynni. Sag-
an um hrakfarir þeirra er
öllum kunn.
Sophie Helen Rhys-Jones
er fædd 20. janúar 1965.
Hún er dóttir hjónanna
Christophers og Mary Rhys-
Jones. Faðir hennar starfar
sem sölumaður en móðir
hennar er ritari. Sophie ólst
upp í rólegu hverfi, í út-
hverfi London, ásamt Dav-
id, eldri bróður sínum. Hún
átti góða barnæsku og naut
ástúðar og öryggis á upp-
vaxtarárum sínum. Strax í
barnaskóla kom fram áhugi
hennar á leiklist og hún
stundaði ballettnám um
tíma.
Þegar í framhaldsskóla
var komið togaði við-
skiptaumhverfið fljótlega í
Sophie og hún lauk námi í
ritaraskóla eftir að faðir
hennar hafði lagt mikla
áherslu á að hún gengi
menntaveginn. Að útskrift
lokinni starfaði hún sem rit-
ari hjá útgáfufyrirtæki í
London. Árið 1986 fékk hún
nýtt starf sem blaðafulltrúi
hjá útvarpsstöð og starfaði
þar í nokkur ár. Að sögn
Sophie voru það skemmti-
legustu árin í lífi hennar.
Henni líkaði mjög vel í vinn-
unni og um helgar skemmti
hún sér í góðum félagsskap.
Árið 1990 skipti hún um
starfsvettvang og fór að
starfa fyrir ferðaskrifstofu
sem sérhæfir sig í skíðaferð-
um. Þar hæfði Amor Sophie
og hún varð ástfangin af
áströlskum skíðakennara.
Hún elti hann til Ástralíu og
reyndi að tileinka sér siði
þarlendra. Ástin dofnaði og
fljótlega slitnaði upp úr sam-
bandinu. í staðinn fyrir að
fljúga beint heim til pabba
og mömmu ákvað Sophie að
skoða land og þjóð og ferð-
aðist um Ástralíu ásamt vin-
konu sinni. Ári síðar flaug
hún aftur til Bretlands.
Sophie var enn og aftur á
byrjunarreit og hóf að starfa
við almannatengsl ásamt
vini sínum. Fljótlega var hún
aftur farin að vinna með
gömlum starfsfélögum hjá
útgáfufyrirtækinu í London
þar sem hún hóf starfsferil
sinn sem ritari. Núna var
hún komin í draumastarfið,
að vinna við almannatengsl.
Á svipuðum tíma tók hún
að sér verkefni fyrir tennis-
klúbb í London og þar hitti
hún engan annan en Játvarð
prins. Fljótlega fóru þau að
draga sig saman en tókst að
halda sambandi sínu leyndu
fyrir fjölmiðlum í nokkurn
tíma. Um leið og til þeirra
sást saman var ekki aftur
snúið en Játvarður bað þó
sérstaklega um að þau
fengju frið fyrir ljósmyndur-
um á rneðan þau væru að
þróa samband sitt.
Þau Sophie og Játvarður
eru bæði miklir íþróttaá-
hugamenn en vatnaíþróttir
eru í sérstöku uppáhaldi hjá
henni. Að auki eru þau bæði
mikið áhugafólk um leiklist.
Sophie virkar full af sjálfs-
trausti og þykir örugg með
sig enda hefur hún náð langt
á framabrautinni. Væntan-
leg prinsessa gæti ekki hafa
valið sér betra starf til að
vera viðbúin að takast á við
ljósmyndara og fréttamenn.
Sophie þykir koma vel fyrir
og greinilegt er að hún kann
á fjölmiðlaliðið, sem fyrrum
prinsessur hafa átt í mesta
basli með að hemja.
Tengdamóðirin sjálf, El-
ísabet Bretadrottning, er
engin venjuleg tengdamóðir
og því eru tengdadætur
hennar ekki öfundsverðar.
Sophie virðist samt hafa náð
góðu sambandi við hana og
ber henni vel söguna. Sam-
kvæmt hefðum og venjum
konungsfjölskyldunnar er
ekki viðeigandi að fólk búi
16