Vikan


Vikan - 27.07.1999, Page 22

Vikan - 27.07.1999, Page 22
Texti: Hrund Hauksdóttir Smekklegir gera óðir litir og gooir in krartaverk Um þessar niundir cru pastellitir og millisterkir litir vinsælir við inálun jafnt utanhúss sem innan og inunii á næstunni setja svip sinn á umhverfið í ríkari mæli en áður. Litaval manna á húsum og öðr- um mannvirkjum er mjög breytilegt eftir þjóðlöndum. Víða erlendis draga borgir og bæir sérkenni sín af því hvaða litir eru á byggingum. Sums staðar má sjá hús og húsaþök í sama lit svo langt sem augað eygir. Þau mynda litabreiður í landslaginu. Hér á landi er þessu þó ólikt farið og hefur það lengi vel vakið athygli er- lendra gesta hversu skrautleg ásýndum Reykjavík er. Einkum eru það húsaþökin sem skera sig úr þar sem þau eru máluð í fjölbreyttum litum. Reykjavík er oft eins og litrík mósaíkmynd yfir að líta frá ákveðnu sjónarhorni. Djarfir og fjölbreyttir litir hafa glaðleg og jákvæð áhrif á um- hverfið. Sumar þjóðir bregða á leik og mála útihurðir í öllum regnbogans litum til að lífga upp á múrsteinsgráan hvers- dagsleikann og setur það afar skemmtilegan svip á húsin og nágrenni þeirra. Við ísiending- ar mættum gjarnan taka okkur þetta til fyrirmyndar. 22 Vikan Samsetning lita hrífur rétt eins og falleg hljómlist Litaval í tölvu Pað er mörgum mikill höf- uðverkur að velja liti á hús sín. í dag er hægt að láta tölvuna hjálpa sér með það eins og svo margt annað. Hún aðstoðar við val á rétt- um litum og litasamsetning- um. Harpa býður t.d. við- skiptavinum sínum nýja þjónustu við litaval á húsum og öðrum mannvirkjum, jafnt að utan sem innan. Viðskiptavinir geta komið með ljósmyndir eða teikn- ingar af húsum sínum og þær eru skannaðar inn í tölvu. Þeir fletir sem mála á eru síðan skilgreindir, svo sem veggir, þök, þakskegg og gluggapóstar. Litur er valinn á hvern og einn flöt eftir ósk viðskiptavina. Með Djarfir og fjölbreyttir litir hafa hressandi og jákvæð áhrif á umhverfið þessum hætti er hægt að sjá heildarmynd af húsinu í nýju litunum á skjánum og skoða hvernig þeir passa saman. Mynd af „nýmáluðu“ húsinu er prentuð út í svipuðum gæðum og ljósmynd. Ef menn eru ekki ánægðir með útkomu litanna er einfald- lega hægt að láta tölvuna mála húsið aftur. Þetta er bráðsniðugt og afar þægilegt fyrir þann sem er að fara að ráðast í að mála húsið sitt. Litir og hljómlist Málningarverksmiðj an Harpa er elsta málningar- verksmiðjan hérlendis. Hjá fyrirtækinu hefur alla tíð verið lögð áhersla á að framleiða hágæðamálningu sem stenst allan samanburð við aðra málningu og kröfur íslendinga, íslenskt veðurfar og séríslenskar aðstæður, sem eru með þeim erfiðustu sem þekkjast í heiminum. Forsenda velgengninnar er stöðug vöruþróun, skilvirkar rannsóknir og fullkomið gæðaeftirlit. Við geturn hæglega líkt lit- um við hljómlist þar sem samræmi er rnjög mikilvægt í báðum tilvikum. Litir geta verið fallegir hver í sínu lagi þótt þeir myndi ekki sam- ræmda heild. Með því að skoða litakortin vandlega er nær óhugsandi að slá falskan tón! Litakortið sýnir hvorki meira né minna en 106 liti og til viðbótar er hægt að velja um þúsundir litatóna af flestum tegundum Hörpu- málningar. Því ættu allir að finna liti við sitt hæfi. Þakmálning fyrir íslenskt veðurfar Þegar málað er utanhúss ber að huga að undirvinn- unni því hún skiptir megin- máli. Við nýmálun og end- urmálun á bárujárni skal hreinsa valsaolíur, fitu, gróð- U-138 U-139 U-140 Barkarbrúnt Roðabrúnt5 U-146 U-147 U-141 Jaröbrúnt dökkt Aldinrautt Roðableikt U-154 Fjólugrátt U-155 Öskugrátt Þegar málað er utan- húss ber að huga að undirvinnunni því hún skiptir meginmáli. U-148 Jarðrautt U-149 Oxýðrautt

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.