Vikan


Vikan - 27.07.1999, Side 48

Vikan - 27.07.1999, Side 48
Texti: Asgeir T. Ingólfsson Sönggyðjan Sharon „Seg mér sönggyðja“, kvað Hómer hér um árið - en datt einhverjum í hug að þessi aldna sönggyðja væri sú sama lostagyðja og menn muna eftir í Basic Instinct? Jú, þessi vinkona Hómers gamla er nú komin til nú- tímans og minnir ansi mikið á Sharon Stone. Leikstjóri, handritshöfundur og aðal- leikari The Muse er hinn vanmetni Albert Brooks sem hér heldur áfram að gera myndir um konurnar í lífi sínu. Síðast var það mamma gamla í Mother, sú var leikin af Debbie Reynolds, en aftur á móti var það hin eina sanna mamma sem fékk fyrst að vita að Sharon hefði sagt já er Brooks bað hana um að taka að sér hlutverk mús- unnar. Fyrst var Stone þó sannfærð um að Brooks væri að gera at í henni, hver mundi vilja fá hana í gaman- mynd? En Brooks sá enga aðra fyrir sér sem sönggyðj- una fögru, enda hafði hann verið að heyra út undan sér um alla Hollywood hvað Stone væri fyndin og varð ekki fyrir vonbrigðum: „Fædd gamanleikkona sem varð dauðfegin að komast út úr þessum alvarlegu hlut- verkum sem hún hafði verið föst í,“ var umsögnin og ein- hvern veginn sér maður fyrir sér að Stone ætti að geta verið gamanleikkona á borð við Kötu Hepburn og Doris Day - þótt það sé öllu erfið- ara að sjá þær fyrir sér í Basic Instinct. Sagan Brooks leikur handrits- höfund nokkurn í drauma- borginni sem hefur hlotið óskarstilnefningu og hvað- eina en er nú algerlega fyrir- munað að skrifa einn ein- asta staf. Það er ekki fyrr en starfsbróðir hans, sem eðal- leikarinn Jeff Bridges leikur, bendir honum á músu eina sem hjólin fara að snúast. Gallinn er sá að aðferð Seifsdóttur þessarar til að veita skríbentinum innblást- ur er fyrst og fremst sú að pirra hann - og ekki fer bet- ur en svo að það fer að hrikta í stoðum hjónabands hans, enda kona hans (Andie McDowell) varla neitt mjög sátt við að vera manni sínum sjálf ekki næg- ur innblástur. Raunar minn- ir þetta allt saman dálftið á aðra nýlega gamanmynd, Shakespeare in Love, þar sem Gwyneth Paltrow veitti Villa kallinum innblástur - og ef velgengnin verður svipuð er engu að kvíða. Ekki ætti heldur að saka að tónlistina sér sjálfur Elton John um - fyrsta kvik- myndaskor hans síðan Kon- ungur ljónanna varð að vin- sælustu teiknimynd allra tíma. Svo er bara að vona að hin raunverulega sönggyðja Alberts Brooks hafi unnið sína vinnu. Molarnir Brooks sjálfur er ekki eini leikstjórinn sem kemur við sögu í myndinni. Martin Scorese, seni lék ásamt Brooks í Taxi Driver, Rob Reiner og James Cameron eru allir í hlutverkum hér sem ánægðir viðskiptavinir gyðjunnar. Brooks var sérstaklega ánægður með gam- anleik Scorese, enda maðurinn að hans mati hraðmælt- asti maður í heimi. Svo geta menn velt fyrir sér hvort þetta sé kannski allt sannsögulegt... Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem Stone leikur í gamanmynd, hún þurfti að ganga í fjórða bekk lög- regluskólans alræmda nokkru áður en hún útskrifaðist sem stórstjarna. Þó er þetta líklega fyrsta gamanmynd Stone sem er fyndin - nema þér finnist Basic Instinct sprenghlægileg - en ef svo er ertu í félagsskap Sharon sjálfrar, sem er kannski ekki svo galið ef maður hugsar um yfirheyrsluatriðið fræga. Albert Brooks er kannski nafn sem aðeins algerir bíófíklar kannast við. Aftur á móti hljómar raunveru- legt nafn hans mun kunnuglegar - enda er hann alnafni ekki minni manns en Alberts Einsteins! 48 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.