Vikan - 27.07.1999, Blaðsíða 61
ILLA VIÐ FARSIMA
Sandra Bullock er enn aö leita að stóru
ástinni. Hún féll fyrir Matthew McCon-
aughey þegar þau léku saman í mynd-
inni A Time To Kill fyrir fjórum árum en
samband þeirra gekk ekki upp. Þau
hættu saman og byrjuðu saman aftur
oft og mörgum sinnum. Nú segir Bull-
ock að þau séu „bara vinir“. Stúlkan er
greinilega enn mjög hrifin af McCon-
aughey og er meira að segja hrifin af
aðferðum hans til aö slíta sambandinu.
Þaö geröist á Valentinusardag, degi
elskendanna. Kærastinn haföi skipulagt
fullkomið kvöld - ein i fjallakofa, blóm,
heimagerður matur og full karfa af
brauði og víni - síðan sagði hann henni
upp á meöan þau voru að boröa. „Þetta
var ekki eins hrikalegt og þaö hljómar.
Þetta var falleg stund. Þetta heföi getað
verið fullkomiö kvöld. Hann eldaði og
það voru blóm út um allt. Síðan sleit
hann sambandinu og ég gat ekki sagt
neitt annað en okei! En hann bætti það
upp á Valentínusardag árið eftir.“ Bull-
ock fullyrðir að þó svo hún og McCon-
aughey séu ekki par þá muni þau alltaf
vera bestu vinir.
Laurence Fishburne kallar ekki allt
ömmu sína. Þessi skapstóri leikari
verður t.d. alveg brjálaður ef ein-
hver dirfist að kalla hann Larry. En
það er ýmislegt fleira en nafna-
styttingar sem fara í taugarnar á
leikaranum. í vor var Fishburne að
leika í leikritinu The Lion in Winter
í Roundabout-leikhúsinu í New
York þegar sími byrjaði að hringja.
Einhver bjálfinn í áhorfendaskar-
anum hafði gleymt að slökkva á
farsímanum sínum. Eftir að hafa
hlustað á skerandi hringinguna í meira en 20 sekúndur
hætti Fishburne að leika í atriði á móti Stockard Chann-
ing og öskraði: „Viltu gjöra svo vel að slökkva á þessum
djöfulsins síma?“ Sökudólgurinn varð frekar
skömmustulegur og læddist í burtu en aðrir leikhúsgest-
ir stóðu upp og klöppuðu. Eftir fagnaðarlætin tók Fis-
hburne upp þráðinn í leikritinu þar sem frá var horfið
SKILNAÐURINN BÆTTI SAMBANDIÐ
Ellismellurinn Mick Jagger er búinn að ganga frá skilnaði við
eiginkonu sína, fyrirsætuna Jerry Hail, og þau eru aftur orðin
bestu vinir. Jagger og Hall fóru . .--MfW- "
á dögunum með börnin sín
fjögur í frí til Frakklands. Þau
mættu líka saman á kvik-
myndafrumsýningu og Jf' • v ^
orðrómur komst á kreik um að f ' '*
þau ætluðu að draga skilnað- t ^
inn til baka. Það gerðist þó i ■
ekki og Jagger er enn sami Æ ^* -jfl
kvennabósinn. Nýlega náðust W " )
myndir af honum þar sem fty &
hann yfirgaf heimili nýjustu \ . v Jt'yi
kærustu sinnar, tæplega þrí- ' j’'
tugrar Ijósku frá Venesúela. v ' , • ■*
Hún heitir Vanessa Neumann t/, y t
og er dóttir milljónamærings. 7 %
Þau hafa verið saman í sumar !, ■* |
en Jagger var ekki sagður \ \ r 1
sáttur viö að hún talaöi viö s /*
blaöamenn um sambandið. /
Hún greindi m.a. frá því aö •
Jagger væri gamall fjölskylduvinur sem hefði fyrst séð hana
þegar hún var enn í vöggu. Gamli karlinn viröist vera húinn
að fyrirgefa henni og sambandið er komið í góðan gír á ný.
Pq£ yj Það er Dagný Björk Pjetursdóttir, sem sendir kveðju með Rós Vikunnar að þessu sinni. Hún skrifar:
Mig langar að biðja ykkur að senda Rós Vikunnar á endurhæfingarstööina að Reykjalundi í Mosfellsbæ
og sérstakar kveðjur til starfsfólks C-deildar. Ég hef dvalist undanfarnar 11 vikur á Reykjalundi en er nú útskrifuð þaðan sem ,,ný
manneskja". Konurnar sem vinna á C-deild eru yndislegar, þær vinna að uppbyggingu einstaklinganna og þær eru svo
gefandi. Þær eru alltaf tilbúnar til að veita manni athygli og umhyggju. Oft
gleymir maður að þakka það sem vel er gert, en það að senda þeim Rós
Vikunar og Guðs blessun er mín tilraun til að sýna þeim þakklæti mitt.
Vikunnar
Séð yfir Reykjalund
Ljósmynd: Jón Karl Snorrason
Þekkir þú einhvern sem á
skilið að fá rós Vikunnar? Ef
svo er, hafðu þá samband
við „Rós Vikunnar, Seljavegi
2,101 Reykjavik" og segðu
okkur hvers vegna. Einhver
heppinn verður fyrir valinu
og fær sendan glæsilegan
rósavönd frá
Blómamiðstöðinni.