Vikan


Vikan - 27.07.1999, Síða 63

Vikan - 27.07.1999, Síða 63
rtjW' gjÉ^' ... Kaffi Flóru í Grasagaröinum. Heimsókn á þann fallega og gróöursæla stað jafnast á við ferð til útlanda. Það er sama hvort sólin skín eða það sé hellirigning; það er alltaf mikil stemmning að setjast niður á Kaffi Flóru og njóta frábæru veitinganna hennar Marentzu Poulsen. . . , Jólahúsinu á tniðju SUITiri! Þetta erheilsársverslun með jólavörur sem er ævintýri líkust. Þar fæst úrval af dásamlegu jólaskrauti, allt frá perluskreyttum englum til sápustykkja með kanil- og engiferilmi. Einnig fást í Jólahúsinu sniðugar og kómískar styttur eftir bandaríska listamenn af Nóa gamla, golfleikurum og englum. Nú styttist í aldamótin og margir forsjálir farnir að safna að sér viðeigandi skrauti. I Jólahúsinu fæst margt spennandi af því tilefni. Á boðstólum er líka úrval af íslenskum vörum tengdum jólahátíðinni eins og laufabrauð úr postulínsleir, jólakúlur merktar íslandi og handmálaðar svuntur. Ungt fóik sem er að byrja að búa á sjaldnast mikið af jólaskrauti og því gæti það verið skemmtileg og sérstæð gjöf að fá gjafakassa úr Jólahúsinu í brúðargjöf.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.