Vikan - 21.12.1999, Page 30
Samantekt: Steingerdur Steinarsdóttir Myndir: Sigurjón Ragnar
Góð kuikmynd er ekki
síður til bess fallin að
auðga andann um jól en
góð bók. Fjölskyldu-
myndir eru yfirleitt ofar-
lega í huga flestra á
bessum tíma og eðlilegt
að fjölskyldan njótí bess
saman að horfa á góða
mynd. Eftir að mynd-
bandauæðingin hófst og
myndbandaleigur
spruttu upp eins og
gorkúlur um allan bæ
eru menn ekki háðir
sjónuarpsdagskránni og
misjöfnum jólaleikritum
sér til skemmtunar. Hér
á eftir eru nefndar
nokkrar frábærar kuik-
myndir sem hentar uel
að horfa á um jól.
Jólamyndir
Fyrri útgáfa Miracle on
34th Street var lengi vel
sýnd á hverju ári í banda-
rísku sjónvarpi. Hún var í
hugum Bandaríkjamanna
álíka nátengd jólunum og
Amal og næturgestirnir voru
orðnir meðal íslenskra sjón-
varpsáhorfenda en ónefndur
maður sver að hann hafi
talið átta skipti sem sú
barnaópera var endursýnd í
Ríkissjónvarpinu. Kvik-
myndin um kraftaverkið á
32. stræti var endurgerð fyr-
ir nokkrum árum með Dyl-
an McDermot, Elisabeth
Perkins og David Atten-
borough í aðalhlutverkum.
It's a Wonderful Life er fal-
leg, klassísk kvikmynd með
James Stewart. Þetta óður
til lífsins og mannkærleik-
ans. Hún segir af manni sem
er búinn að missa alla von
eftir röð óhappaatvika og er
kominn á fremsta hlunn
með að svipta sig lífi. Ná-
grannar hans sýna honum
þá í verki hversu mikils þeir
meta hann og það nægir til
að vekja lífsvilja hans að
nýju. Meðal annarra jóla-
mynda má nefna ótal útgáf-
ur af jólasögu Charles Dick-
ens, ein sú nýjasta er nokk-
urs konar nútíma- og grínút-
gáfa og heitir Scrooged.
Gamanleikarinn Bill
Murray leikur aðalhlutverk-
ið í þeirri. Önnur létt gam-
anmynd er National
Lampoons Christmas
Vacation með hinum óborg-
anlega Chevy Chase.
Ævintýrin enn gerast
Ævintýri tilheyra jólun-
unt. Þegar vel er að gáð er
jólahátíðin hreinlega ævin-
týri og á hverju heimili ætti
að vera skylda að horfa á
minnst eina góða ævintýra-
mynd um hver jól. Willow er
yndislega falleg ævintýra-
mynd. Leikurinn er stórgóð-
ur og sagan spennandi. Will-
ow hentar eldri börnunum
því í henni eru ljótar skepn-
ur sem gætu hrætt þau sem
yngri eru. Dragonheart eða
Drekahjarta er annað
skemmtilegt ævintýri um
samstarf dreka og riddara á
tírnurn þegar riddarmennsk-
an á í vök að verjast fyrir
valdagræðgi. Princess Bride
eða Brúðurprinsessa er
bráðfyndin ævintýramynd
og vel þess virði að sjá bara
fyrir þær sakir. Sagan enda-
lausa I er enn eitt dæmi um
bráðfallegt ævintýri þar sem
reynir á hetjuna í barninu.
Hetjan í myndinni stenst all-
ar raunir með hjálp góðra
vina og kemur kjarkmeiri og
30 VilvHi