Vikan


Vikan - 21.12.1999, Page 37

Vikan - 21.12.1999, Page 37
0 aStá Trönuberjasósa: 200 g trönuber 5 dl hvítvín 5-7 dl rjómi grœnmetis- og kjötkraftur notaður til að bragðbæta efþarf ........5 Sjóðið trönuber í hvítvíni í 5-7 mínútur hellið soði af rjúpum út í ásamt rjóma, þykkið örlítið og bragbætið ef með þarf. Berið fram sér eða setjið sósuna með rjúp- um í steikingarpott síðustu 10 mínúturnar og berið fram Vikan 37 í steikingarpottinum. Einnig er hægt að bera fram í sitt hvoru lagi þ.e. sósuna sér og rjúpuna sér. Að hætti Dillu Rjúpur eru steiktar ásarnt hjörtum og lærum. Kryddið með salti og pipar og setjið í pott. Vatn er látið ná 3/4 hluta upp á rjúpum, mjólk og rjóma (hlutfall 1/5 rjómi á móti 4/5 hlutum af mjólk) er hellt í til viðbótar þannig að rétt fljóti yfir rjúpurnar. Soðið í 50 mínútur. Þá eru rjúpurnar færðar upp úr og hæfilegur hluti af soðinu notaður til sósugerðar, sá hluti er þykktur með maizena sósujafnara og bragðbættur með smjöri og rjóma. Sósan er lituð örlítið með brúnum sósulit, krydd- uð að smekk og gott er að bæta í hana örlitlu rifsberja- hlaupi. Að endingu eru rjúpurnar bornar fram með tilheyrandi meðlæti. Gott meðlæti með öllum þessum réttum er t.d. léttsoðið grænmeti, eplasal- at og sykurbrúnaðar kartöfl- ur. Verði ykkur að góðu! Upplýsingar um myndir: Stollen, laufabrauð og jólakökur frá Bakara- meistaranum í Suðurveri og Mjódd. Manior diskur, fat og WMF sósu- og steikingarpottur frá Villeroy & Boch. Englar og greinar á mat- arborði frá Breiðholts- blómum við hliðina á Bak- arameistaranum í Mjódd. Tjull og satín dúkur frá Vogue, Álfabakka. Mat- vara keypt í Nóatúni. Hamborgarhryggur frá Ali, kalkúnn frá Reykjagarði og rjúpur úr kjötborði Nóatúns.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.