Vikan


Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 44

Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 44
f r Yseulta neri saman hönd- unum. Hún hafði tekið af sér svarta hanskana og her- toginn horfði hugfanginn á langa, granna fingurna sem voru næstum því jafn af- hjúpandi og augu hennar. Það er yndislegt að heyra þig tala svo fallega um föður minn, sagði hún. Venjulega talar fólk aðeins um ... Hún þurfti ekki að útskýra mál sitt frekar og hertoginn sagði: Föður þínum varð á glappaskot en þú verður að reyna að gleyma því og fyr- irgefa honum. Hvernig ætti ég að geta gleymt því. Lionel frændi minnir mig stöðugt á að ég geti ekki ætlast til þess að fólk komi fram við mig öðruvísi en af fyrirlitningu. Það fór hrollur um hana, svo leit hún á hertogann og spurði: Hvers vegna ert þú svona vingjarnlegur við mig? Lionel frændi bjóst við að þú myndir senda mig til baka með skömm. Hann lét vagninn sinn bíða eftir mér svo þjónustufólkið yrði ör- ugglega vitni að niðurlæg- ingu minni. Hertoginn hataði grimmd. Hann sá að markgreifinn hafði búist við því að hann myndi sýna þessari aumkun- arverðu stúlku fyrirlitningu og óvild eins og markgreif- inn hafði greinilega sjálfur gert frá því að faðir hennar dó. Hann dreypti á kon- m h a I d s s í HÁLÖNDUNUM íakinu og sagði: Ég er með góða hugmynd.Yseulta leit varlega á hann og hann flýtti sér að bæta við: Það er ekk- ert að hræðast. Þú verður aðeins að gera þitt besta og gera það sem ég segi. Hvað viltu að ég geri? spurði Yseulta. Rödd hennar titraði og hann vissi að hún væri hrædd um að hann ætlaði að senda hana í burtu um leið og lestin kæmist á leiðar- enda. Hann hafði ekki hug- mynd um hvernig hann vissi það og hann flýtti sér að bæta við: Ég endurtek að þú hefur ekkert að hræðast. Þvert á móti er ég viss um að þú kemur til með að njóta þess að hlýða mér. Hann hélt áfram: Fram- koma föður þíns hefur vald- ið þér óhamingju og þér hef- ur alsaklausri verið refsað fyrir syndir hans. Þess vegna heimta ég að þú, svo lengi sem þú ert gestur minn í Skotlandi, gleymir fortíðinni og njótir lífsins. Yseulta starði á hann stór- um augum. Hann vissi að hún var ekki viss um hvort hún skildi hann rétt eða hvort hann væri að ýja að einhverju sem hún ekki skildi. Hún leit svo hjálpar- vana og brjóstumkennan- lega út í svarta kjólnum og hann reyndi að finna réttu orðin til þess að hún skildi að hann. Hann var samt hræddur um að hún yrði ennþá taugaóstyrkari en hún þegar var ef hann reyndi að útskýra mál sitt frekar. Hann lét sér því nægja að segja: Frændi þinn er harð- stjóri og harðstjórar þurfa alltaf á einhverjum minni- máttar að halda sem þeir njóta að kúga. En nú ertu laus frá honum og þú verður að reyna að gleyma honum. Ég vildi óska þess að ég gæti það, svaraði Yseulta. Mér líst illa á þá hugmynd að þú látir þig hverfa, sagði hertoginn. Þú ert ung og fal- leg og það gæti komið þér í vandræði. Aftur fannst honum semYseulta þyrði ekki að trúa orðum hans. Hann fann að hún var ekki vön að fá hrós og uppörvun og ætti bágt með að trúa því sem hann segði. Ég óska einskis heitara, flýtti hann sér að segja, en að þú skemmtir þér vel á dansleik móður minnar og njótir dvalarinnar í höllinni sem er mjög falleg. Móðir mín sagði mér oft frá höllunum í Skotlandi og mig hefur alltaf langað til þess að fá að sjá einhverja þeirra, sagði Yseulta. Nú er tækifærið, sagði hertoginn brosandi. Ég verð mjög vonsvikinn ef þér finnst höllin mín ekki með því alfallegasta sem þú hefur nokkurn tíma séð. Það mundi líka valda mér mikl- um vonbrigðum ef þú nytir þess ekki að vera gestur minn og móður minnar. Ertu viss um að þú gerir rétt? spurði Yseulta hvís- landi. Ég er hrædd um að vinum ykkar finnst ég svolít- ið skrýtin. Hvers vegna í ósköpunum heldur þú það? spurði her- toginn. Þegar Yseulta leit undan vissi hann að þetta hafði verið heimskulegt svar. Hann bætti við: Þú verður að reyna að líta gjörðir föð- ur þíns raunsæjum augum. Þú átt kannski bágt með að trúa því, en staðreyndin er sú að fólk er fljótt að gleyma og þú átt allt lífið fram und- an. Mundu það að hvað sem við gerum getum við ekki breytt fortíðinni. Hann fann að hún slakaði á. Svo sagði hún: Þú ert góð- ur maður. Þakka þér fyrir góð ráð. Ég mun gera mitt besta til þess að fylgja þeim. Hún brosti dapurlega og bætti við: Ég veit að vinum þínum finnst ég svolítið und- arleg en syndaselir teljast ekki til venjulega dýra! Her- toginn fann reiðina aftur blossa upp í sér. Orð Yseultu sögðu honum hvernig komið hafði verið fram við hana. Það lék ekki nokkur vafi á því að mark- greifinn hafði kvalið hana með því að minna hana stöðugt á mistök föður hennar og hvernig dauða hans bar að höndum. Lofaðu mér því að reyna að gleyma fortíðinni, sagði hann og lagði áherslu á orð sín. Gleymdu þessu! Hugs- aðu þér þessa ferð sem upp- haf annars lífs. Þú ert á leið- inni á dansleik og hér eftir mun líf þitt einkennast af fjörugum dansleikjum og skemmtilegum veislum. Yseulta hló. Þetta hljómar eins og ævintýri, sagði hún, 44 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.