Vikan - 21.12.1999, Page 58
Texti og myndir: Kristján Frímann
Bilið miili óttu og nóns
minnkar hratt þegar
Satúrnus, herskari
Steinbukksins mætir
á svæðinu og aðlag-
ar umhverfið sér og
sínum duttlungum. Lif og dauði
renna saman í eitt og norðanáttin
ýlfrar.Til forna nefndu Rómverjar
þennan guð upp á grísku og köll-
uðu hann Krónos, tákn hins enda-
lausa tíma.Áhinni dularfullu
gullöld, sem nú er sveipuð móðu
Eðli og eíginleikar
Þessa eiginleika hefur Steingeitin
erft og í henni blundar hinn gamli
og ungi Satúrnus. í eðli sinu eru því
Steinbukkar kaldir og yfirvegaðir,
valdasjúkt fólk sem svífst einskis til
að ná þeim frama sem hugur þess
girnist, hvort sem það er að vera
sálna- eða féhirðir. Því eins og Sat-
úrnus karlinn vill Steingeit dagsins í
dag vera kóngur eða drottning í ríki
sínu og geta stýrt þegnum sínum
svo sem henni þóknast. Hún er
Steingeitin er eyland,
en í góðu sanibandi
við umheiininn.
hjartahlý þótt yfirborðið sýni annað
og hefur eiginleika til að rækta allt
hið besta í manninum og stýra hon-
um til frama, en um leið er hún líka
sérfræðingur í að sundra hjörðinni
og afmá einstaklinginn úr skránni,
sýnist henni svo. Einstaklingseðli
Steingeitarinnar er sterkt og hún
ein ákveður og velur leiðir sínar til
sigurs eða glötunar; allir sem tengj-
ast henni eru því eiginlega þjónar
frekar en félagar eða makar.
Hugur og hjarta
Hinn hugumstóri Satúrnus
stjórnar lífi Steinbukkans og gerir
hann að strengjabrúðu í leikhúsi
lífsins. Hann getur losað bukkann
úr viðjum langana sinna til verald-
legra gæða og sett hana á stall með
heimspekingum og öðrum andans
mönnum, enda má finna Steingeit-
gleymskunnar, var hinn ungi og
hrausti guð, Satúrnus, settur í land-
búnaðarráðuneytið og gerður þar
að forstjóra. Þessu starfi sinnti
hann af alúð, enda uppskar hann
vel er hann hélt út á akurinn með
Ijá sinn. Þegar hann eltist og varð
hrumur gat hann ekki sinnt slættin-
um svo axið fúlnaði. Þar með
breyttist hlutverk hans og hinn
gamli guð varð herskari niðurrifs og
eyðingar. Þaðan mun hugmyndin
um ríddara dauöans, beinagrindina
með Ijáinn vera komin. En meðan
Satúrnus var ungur og uppskar vel
héldu menn honum veislu í desem-
ber ár hvert sem kölluð var Sat-
urnalia og var þá mikið um dýrðir.
Sú hátíð ummyndaðist síðar yfir í
hátíð Ijóss og friðar með komu
Krists.
ur innan veggja háskóla og annarra
háæruverðugra stofnana að miðla
þekkingu sinni. Svo kippir hann í
annan spotta og þá birtist Steingeit
sem er sjúkur safnari. Hún verður
að eiga fullt af peningum, flottasta
húsið, stærsta jeppann og allt hitt
dótið sem fyllir öll skot og kima.
Þessi árátta merkisins til eflingar
andans málum eða fikn í veraldlega
hluti gerir Steingeitina oft nískari en
allt sem nískt er, en hún fer vel með
það og aðrir verða ekki var við
neitt.
Steingeitin er mjög ráðvönd,
jarðbundin og útsjónarsöm sem
gerir hana að fyrirtaks skipuleggj-
anda og sýningar sem hún setur
upp fyrir fyrirtækið eru útpældar,
auðveldar i nálgun og skiljanlegar.
Þarna setur Steingeitin hjartað í
verk sitt því hún elskar verk sín og
þar á hjartað samastað.
Ástir og kynlíf
Þegar ástin er annars vegar þá
er hjartað annars staðar. Steingeitin
getur orðið hrifin en ekki meir, ástin
hefur alltaf verið henni ráðgáta og í
samböndum finnst henni hún alltaf
eitthvað utangátta og ein á báti.
Þetta getur gert Steingeitina ráð-
villta um sinn en þegar hún hefur
áttað sig á þessum vankanti sínum
hættir hún öllu grufli um ást og set-
ur vinnuna í staðinn. Hún er samt
bundin þörfinni fyrir að finna ná-
lægð og deila lífinu með einhverj-
um, eignast börn og buru. Stein-
geitin hefur þörf fyrir að vera í sam-
búð þótt einfari sé og verður fyrir-
myndar húsmóðir eða húsbóndi
sem hugsar vel um sitt og sína. I
rúminu er Steingeitin á heimavelli,
hún kann þá list út í hörgul að njóta
kynlífs og gefa af sér. Með Steingeit
verða samfarir himnaríki á jörð, það
er að segja, hafi hún tíma til þess.
En hún er kröfuhörð í þeim málum
svo það er ekki fyrir hvern sem er
að ætla sér í rúmið með Steingeit.
Áhugamál og störf
Að klífa metorðastigann er í
reynd eina áhugamál og starf
Steingeitarinnar en þar sem hún
kann sig og er „ung, rík og gröð",
eins og segir í texta með sama
nafni, þá freistar hennar margt ann-
að. Hún er vinnuþjarkur og hverju
því verki sem hún tekur sér fyrir
hendur verður ekki fullnægt nema
með sigri. Störfin eru flest stjórnun-
arlegs eðlis og ef þú skoðar flóru
stjórnenda í þjóðfélaginu er þar
margar Steingeitur að finna, svo
sem í stól Borgarstjóra Reykjavíkur.
Ef hún gerist leikari þá verður hún
hasar- og áhættuleikari eins og Mel
Gibson. Vinnusemi Steingeitarinnar
tengist áhugamálum hennar og þau
verða að byggjast á rökvísi og vit-
rænu innihaldi ásamt voninni um
sigur.
Tíska og litir
Steingeitin er metnaðarfullt
merki með kaldan hjúp og því ekki
sérlega næm fyrir formi og litum
þótt undantekningar séu þar á.
Þetta gerir hana tiltölulega ónæma
fyrir samsetningu fata og skrauts
svo hún virkar sundurleit í klæða-
burði og ósmekkleg. Hún þarf því á
„köldu mati" annarra að halda til
að byggja upp smekkvísina og
koma sér upp stíl. Steingeitin er af-
bragðs námsmaður og minni henn-
ar er á við tölvuna „Deep Blue", svo
hún er snögg að koma sér upp
huglægum tískusettum í litasam-
setningum og skarti. Hreinræktuð
Steingeit er jarðbundið merki sem
reiknar út hlutina, frekar en „finna"
þá. Þetta sést á yngri Steingeitum
sem klæðast fáum litum og hrein-
um, þær mála sig helst ekki og nota
ekki skartgripi nema í neyð. Dæmið
snýst svo við þegar Steingeitin eld-
ist, þá getur hún tekið upp á því að
hlaða sig glingri, mála sig og meika
svo útkoman verður ofskreytt jóla-
tré.
Líkami og heilsa
58 Vikan