Vikan - 21.12.1999, Side 63
Vikaa
Kœri nyi asw
K»íJ»SS>"
"itr*—"”1"
?»«»
-SSfflSS1
.Jxd »íáa“°
rrrétlff^”
STíSS’i
,{Wf áskri/*náfl
janúar 2000, m
'smi'í6‘
Frábært tilboö...
Gjafaáskríft að Vikunni
I’LI
For
... ril Be
Home Fon
Christmas
sem er stór-
skemmtileg og
bráðfyndin jóla-
mynd frá Walt
Disney. í aðalhlut-
verki er hinn við-
kunnalegi leikari
Jonathan Taylor
Thomas sem er
þekktastur fyrir ieik
sinn í sjónvarps-
þáttunum Handlaginn heimilisfaðir. Myndin fjallar
um Jake Wilkinson sem er sjálfumglaður nemi í
framhaldsskóla í Kaliforníu. Jólin eru í nánd og fað-
ir hans hefur lofað honum nýjum Porche í jólagjöf,
komi strákurinn heim til New York yfir jólahátíðina.
Jake á hins vegar eftir að lenda í meiri hremming-
um á heimleiðinni en hann hefði órað fyrir. Stans-
laust grín frá upphafi til enda og frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Stórkostleg jólagjöf handa ömmu, mömmu,
systur eða vinkonu.
Hvað er skemmtilegra en að gefa jólagjöf
sem gleður fram á vor... og jafnvel enn
lengur! Þú hringir í áskriftasíma Fróða: 515
5556 og tryggir einhverjum sem þér þykir
vænt um áskrift að Vikunni fyrir tímabilið
janúar - mars eða 13 tölublöð fyrir aðeins
4.460 krónur!
Þú færð sent gjafabréf sem þú getur pakk-
að inn og sent sjálf(ur), eða biður okkur að
senda það beint til viðtakanda.
Gefið gjöf sem gleður... lengi!
Spá Vikunnar
Hrúturinn
21.mars-20.apríl
Viðskiptin blómstra og starfið er dans
á rósum. Þú mátt búa þig undir mikla
yfirvinnu og langar vökunætur sem endast út jólin
og alveg fram á nýár. Þú sýnir hvað í þér þýr á
vinnustað og heima heldur þú jól með glæsiþrag
þrátt fyrir eril og kapphlaup við klukkuna.
Nautið
21. apríl - 21. mai
Rétt fyrir jólin ertu kallaður til að
beina einhverjum þér tengdum á rétt-
an veg. Þá er Júpíter kominn á bás hjá Hrútnum og
sendir þér strauma sem gera þig gleggri á fínni
þræði tilverunnar og þú áorkar ýmsu sem aðrir
gáfust uþp á. Þessi orka getur einnig leitt til þess
að þú siglir inn í ástarsamband um áramótin á stað
sem þú áttir sist von á að geymdi þér gæfu.
Tuíburinn
22. maí-21.júní
Júpíter beinir spjótum sínum að þér
og gerir þig örlátan og eyðslusaman.
Þú kaupir flottar og dýrar gjafir til jólanna og gerir
vel í mat og drykk. Þetta örlæti kemur verulega
niður á pyngjunni og það íþyngir þér nokkuð, en að
gefa er að þiggja og þú uppskerð nokkuð afar
merkilegt. Þér mun vitrast vísdómur sem þig
dreymdi ekki að fyrir fyndist.
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Láttu þér ekki detta í hug að gera
eitthvað glannalegt, bara til að ganga
í augun á öðrum. Þú þarft ekki á neinni sýndar-
mennsku að halda til að öðrum finnist eitthvað til
um þig. Þú ert „orginal" og það er í tísku að vera
„orginal", nú þegar einn frumlegasti persónuleiki
allra tíma fæðist á ný.
Ljónið
24. júlí - 23. ágúst
Þinn innri maður gerir vart við sig í
gegnum draum sem þig dreymir og
minnir þig á að láta hjartað ráða ferðinni í hjartans
málum. Þetta sérðu vel þegar hátíðin gengur í garð
með sinni sérstöku hjartahlýju. Um áramótin birtist
gamall félagi sem er sólginn í ævintýri og manar
þig í eitt mest spennandi ævintýri lífs þíns.
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Jólin verða viðburðarík og minnis-
stæð. Á þriðja í jólum sest tunglið að i
húsi þínu og færir þér kraft til stórverka, það sem
þú hefur lengi haft í sigtinu að gera en aldrei látið
verða af er nú leikur einn og sjálfið glansar af
ánægju. Um áramótin fer Merkúr inn í Steingeitar-
merkið og þú finnur sterka þörf fyrir að setjast nið-
ur og hugsa um framtiðina.
n
fmc
Vogin
24. september - 23. október
Þótt umferðin sé þung og þreytandi
siðustu dagana fyrir jól þá ert þú
alltaf í sama fína skapinu og lætur ekki urrandi bíl-
stjóra ögra þér svo þú farir í fýlu. Jafnvel nánasar-
legur viðskiptavinur raskar ekki gleðinni enda
snýrðu dæminu við og flytur þeim létta jólakveðju
svo þeir verða hvumsa við og neyðast til að brosa.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Þú ert eitthvað niðurdregin fyrri part
vikunnar en það getur verið frekjan í
Satúrnusi frekar en vítamínskortur. Strax á þriðja
degi ertu þú sjálfur og á Þoriáksmessu efnir þú til
veislu. Milli jóla- og nýárs tekur Venus við og þú ert
eins og grár köttur í kringum ákveðna persónu og
gerir hosur þínar grænar fyrir henni. Gamlárskvöld
verður eftirminnilegt.
Bogamaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Sjaldan hefur þér verið álasað fyrir
nísku og því síður nú þegar þú sýnir
þann höfðingjabrag að koma gömlum vini til hjálp-
ar í þraut. Þú færð það margfaldlega endurgoldið
með gleðilegum jólum og ofan á allt gott mun hag-
ur þinn verulega vænkast um áramótin þegar þér
berst óvænt og gleðileg frétt.
Steingeitin
22. desember - 20. janúar
Það verða brothættar jólagjafir í ár en
Ijóð og góðar bókmenntir eru alltaf
vinsælar jólagjafir hjá þinni fjölskyldu svo úr vöndu
verður að ráða. Þér finnst nú alltaf best að skríða
upp í sófa með góða bók og nasl þegar jólahelgin
kemur með friðinn, en vertu samt á varðbergi því
yfir þér kviknar ástarstjarna þegar nær dregur nýrri
öld og þín bíða heitir fundir.
ák
Vatnsberinn
21.janúar- 19.febrúar
Stjörnurnar beina veg þinn til mann-
eskju einnar sem er víðsýn og marg-
fróð, sú persóna gæti verið gamall kennari eða
venslamaður. Þessi fundur mun.gera þig margs
vísari og þú færð nokkur vel valin gullkorn í vega-
nesti þegar nýja öldin mætir og þín bíður tími til að
miðla. Á meðan nýtur þú jóla og undirbýrð veisluna
stóru.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Rauð jól eða hvít? Þú ert vel í stakk
búinn að mæta hvoru tveggja enda
vön vatninu, hvort sem það rennur eða frýs. Samt
eru jólin einhvern vegin hátíðlegri, fallegri og frið-
sælli liggi dúnmjúk skjannahvít mjöll yfir öllu og
það stirni á snjóinn. Jólagjöfin í ár hlýtur því að
vera hvít með silfruðum ýrum.
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 180