Menntamál - 01.06.1940, Síða 40

Menntamál - 01.06.1940, Síða 40
38 MENNTAMÁL neitt, sem gefi ástæðu til að svara henni öðruvísi en játandi. Og þar með er fyrstu spurningunni í raun og veru svarað. En athugum þetta samt nokkru nánar. Höfuðverkefni móðurmálskennslunnar er að gera börnin fær um að hag- nýta sér þau menningarverðmæti, sem tungan er lykillinn að, hvort sem þau eru í aðstöðu þess, sem þiggur, eða þess, sem gefur, og hvort sem um talað eða ritað mál er að ræða. Ýmsar ytri og innri aðstæður ráða því, hversu langt tekst að komast á þeirri braut. En hvort sem haldið er langt eða skammt, liggur leiðin að þessu marki fyrst og fremst gegnum algengasta orðaforða málsins, og er það augljóst, Það verður því tæplega deilt um nauðsyn þess, að hann sé vel numinn og æfður. Kemur þetta greinilega í ljós, ef athugaðir eru einstakir þættir móðurmálsins, sem skólarnir glíma við að leysa á viðunandi hátt, t. d. framburður og stafsetning. Eins og þeir vita, sem til þekkja, er framburði margra barna harla áfátt. Eru það aðallega hljóðvillur og ýmis konar latmæli, sem mest ber á. Þessi mállýti koma greini- legast í ljós og særa mest heilbrigðan málsmekk, þegar orðum, sem oft eru notuð, er þannig misþyrmt. Á sama hátt eru þær ritvillur hvimleiðastar og háskalegastar, sem sí og æ eru endurteknar í mörgum algengustu orðunum. Það eru t. d. vafalaust verri og stærri málspjöll að rita: s£m, þzgar, lefa, sömar, hust, guöð, kulluð, /cvurnin o. fl. o. fl. í stað: sem, þegar, lifa, sumár, haust, guð, kölluð, hvernig, heldur en þó að flaskað sé á orðum eins og slyddubylur, fjölkynngi, himinninn o. fl vandrituðum orðum. Skyn- samlegasta leiðin til að útrýma þessum málgöllum, er vafa- laust sú að ganga beint til verks og æfa framburð og staf- setningu þessara orða, ekki nokkrum sinnum, heldur hvað eftir annað með skipulögðum endurteknum æfingum, þar til þau eru lærð til fulls. Ætti það að vera augljós vinnu- sparnaður, auk þess sem vænta mætti betri árangurs. Einfalt dæmi sýnir þetta vel:

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.