Menntamál - 01.03.1953, Side 28
22
MENNTAMÁL
í stöðum sínum en áður. Þá voru eilíf kennaraskipti öllu
skólahaldi til ótrúlega mikillar óþurftar. — En starfsfólk
skóla er fleira en kennarar einir. Einkum hafa ráðskonur
heimavistarskóla mikilvægu hlutverki að gegna í þessu
efni. Telur námsstjórinn mikla nauðsyn á því, að sérstak-
ar menntunarkröfur séu til þeirra gerðar, engu síður en
kennara. Ekki standi heldur á sama, hvernig ræstingar-
fólk leysi sín störf af hendi. — „Úr því að við erum farn-
ir að ræða um starfsfólk skóla, get ég ekki stillt mig um
að minnast á einn aðila enn, og það eru skólanefndirnar,“
segir námsstjórinn. Misjafnt kveður hann það, hverja alúð
skólanefndarmenn leggi í störf sín, en þeir, sem bezt
standi í stöðu sinni, vinni skólunum ómetanlegt gagn, alveg
sérstaklega sem meðalgöngumenn milli heimila og skóla,
að ógleymdum þeim mikla þætti, sem þeir hafa átt í fram-
kvæmdum t. d. í húsnæðismálum skólanna og aðbúð allri.
Starfstími.
Daglegur starfstími er allmisjafn, svo og árlegur. Sums
staðar hefja skólar starf kl. 8 að morgni, á öðrum stöðum
kl. 9—10. Sums staðar er starfi lokið kl. 3, annars staðar
kl. 5—6. Fer það allt eftir aðstæðum. 1 bæjum, fjölmenn-
um kauptúnum og þéttbýlum byggðarlögum eru skólahús
yfirleitt tvísett og verður því að nota húsnæðið sem lengst
dag hvern. í bæjunum þremur og enn fremur í Kópavogi
og á Seltjarnarnesi starfa skólar 9 mánuði á ári, í kaup-
túnunum 8 mánuði, en víðast hvar annars staðar 7 mán-
uði, að undanteknum farskólum. I fámennustu farskóla-
hverfunum stendur skólahald aðeins 4 mánuði.
Ég spyr námsstjórann, hvaða áhrif honum virðist lengd
skólahaldsins hafa á kunnáttu barnanna. Hann telur það
ótvírætt, að í þeim skólum, sem lengst starfa, nái börnin
að öðru jöfnu mestri leikni, sérstaklega í lestri og skrift.
Þessi leikni hafi einnig áhrif á nám í öðrum greinum, vel